Morgunblaðið - 09.06.1985, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNl 1985
B 23L
Hestamannafélagið Fákur:
Æfingakvöld í Saltvík
— fýrir unglinga sera öðlast hafa þátttökurétt á
Fjórðungsmóti sunnlenskra hestamanna í sumar
FJÓRÐUNGSMÓT sunnlenskra
hestamanna verður haldið í
Reykjavík í lok júnímánaðar.
Hestamannafélagið Fákur
hefur ákveðið að bjóða þeim
unglingum sem unnið hafa sér
þátttökurétt á mótinu að hafa
hesta sína í girðingu í Saltvík á
Kjalarnesi þar til mótið hefst.
Þar er góð aðstaða til þjálfun-
ar og verða haldin sérstök æf-
ingakvöld með aðstoðarfólki kl.
20.00 á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum.
Morgunblaðið/Þorkell
Nýjung fyrir silungsveiðimenn
Seglagerðin Ægir hefur nýverið
hafið framleiðslu á þessum búnaði
fyrir silungaveiðimenn sem við
sjáum á þessari mynd. Veiðimað-
urinn situr í einskonar björgun-
arhring sem í er seta. Vöðlur
veiðimannsins eru á kafi f vatninu
og til þess að fiskurinn verði ör-
ugglega ekki neins var hefur
seglagerðin útbúið „gerviþara" úr
plasti sem hylur fæturna. Síðan
má ferðast um vatnið í þessum
búnaði og velja sér hentugustu
veiðistaðina.
Rit um vígbúnaðar-
og afvopnunarmál
ÖRYGGISMÁLANEFND hefur gefið út rit sem ber heitið „Samningar um
afvopnun og takmörkun vígbúnaðar". Hér er um að ræða tvær ritgerðir sem
greina frá öllum þeim samningum sem náðst hafa um afvopnun og takmörkun
vígbúnaðar eftir síðari heimsstyrjöldina. Tilgangurinn með útgáfu ritsins er að
hafa á einum stað öll helstu atriði samninganna. Jafnframt kemur fram megin-
þráðurinn í sögu samningagerðarinnar.
I fyrri ritgerðinni, sem er eftir
Albert Jónsson, er einkum lýst hin-
um svonefndu SALT-samningum
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
um takmörkun eldflaugavarna og
nstrategískrau kjarnorkuvopna,
sem gerðir voru á árunum
1969—1979. Einnig er greint frá
öðrum samningum og yfirlýsingum
sem beint eða óbeint tengjast
SALT-samningunum. Loks er sagt
frá sérstökum samningum milli
risaveldanna tveggja um ýmsar
ráðstafanir sem miða beinlinis að
því að draga úr hættunni á að
kjarnorkustyrjöld brjótist út milli
þeirra.
Síðari ritgerðin er eftur Þórð
Inga Guðmundsson. { henni er
greint frá innihaldi og tilurð fjöl-
þjóðasamninga um takmörkun
vígbúnaðar. I fyrsta lagi er lýst
samningum sem þróast hafa frá því
að vera tvihliða milli Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna yfir í að
verða fjölþjóða, líkt og samn-
ingurinn um bann við tilraunum
með kjarnorkuvopn í andrúmsloft-
inu, í geimnum og neðansjávar. í
öðru lagi er fjaliað um samninga
sem náðst hafa á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna, svo sem saminginn
um bann við staðsetningu kjarn-
orkuvopna og annarra gereyðingar-
vopna á hafsbotni. í þriðja lagi er
sagt frá samningum sem gerðir
hafa verið af tilteknum ríkjahópum
líkt og samningurinn um kjarn-
orkuvopnaleysi Suður-Ameríku.
Frá vinstri: Ingólfur Pétureson forstöðumaður Edduhótela, Sigurður
Aðalgeireson skólastjóri, Hrafnagili og Kjartan Lárusson foretjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins.
Hrafnagilsskóli í Eyjafirði
Hrafnagilsskóli bætist í sumar og þar er góð gistiaðstaða í 33
inn í keóju Edduhótelanna, sem tveggja manna herbergjum.
Ferðaskrifstofa ríkisins rekur um Sundlaug er í skólanum. Hótelið
allt land og bætir úr brýnni þörf opnar 14. júní og verður Ingi-
fyrir gistiaðstöðu á Akureyri og ná- björg Sigurðardóttir hótelstjóri,
grenni um háannatímann. en hún var áður á Edduhótelinu
Hrafnagilsskóli er á fögrum að Stóru Tjörnum.
stað, aðeins 14 km frá Akureyri (Krétuiiikynníng)
er betra að hafa nótu
Nótulaus viðskipti geta virst hagstæð við fyrstu sýn.
En þau geta komið þér í koll því sá sem býður þér slíkt
er um leið að firra sig ábyrgð á unnu verki.
Taktu nótu - það borgar sig
Auk fjölmargra breytinga og
leiðréttinga sem skattstjórar
landsins gera á skattframtölum,
tekur skattrannsóknarstjóri fjölda
félaga og einstaklinga til sér-
stakrar rannsóknar á ári hverju.
Árið 1984 voru 360 mál í athugun.
Dæmi eru um að skattaðilar hafi
verið rannsakaðir sex ár aftur í
tímann og fengið skattahækkanir
svo milljónum skiptir.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Efviðgerðin
bregst