Morgunblaðið - 09.06.1985, Side 42
42 6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1985
Merk bókagjöf til Héraðs
bókasafns Skagfirðinga
Gamall Skagfirðingur og Króks-
ari, Ottó A. Michelsen, er 65 ára á
morgun, mánudaginn 10. júní. Það
er í sjálfu sér ekki merkilegt, að
maður, sem varð sextugur fyrir
réttum fimm árum, hafi síðan
prílað þetta um aldursstigann.
Hitt er athyglisverðara, að for-
stjórinn gaf Héraðsskjalasafni á
sextugsafmæli sínu 15 gömul rit,
þar af voru 13 þrykkt á Hólum í
Hjaltadal. Nú færir Ottó sig upp á
skaftir: gefur 35 bindi gamalla
geistlegra rita, sem öll voru talin
ypparleg lesning, þá út komu. í
sendingunni nú eru 6 Hólaprent,
Leirárgarða- og Viðeyjarútgáfur
17. En ritið, sem kórónar allt, er á
veraldarvísu: í sendingu Ottós var
sumsé ágætt eintak Heimskringlu
Snorra Sturlusonar í tveim bind-
um, útgáfu þeirrar, sem
Perkingskiöld hinn sænski lét
prenta í Stokkhólmi 1697 og er
fyrsta prentútgáfa þess rits, og
gersemi mikii eins og gefur að
skilja. Hér hefur Ottó kosið að
hafa Andrarímur með Hall-
grímssálmum, ef svo má segja, og
fer vel á.
Af þessari merku bókagjöf
skulu einnig nefnd eftirtalin rit og
titlum hagrætt, þar eð sumir
hverjir eru nálega heil síða, svo
sem venja var: Fyrst skal tíunda 6
Hólaprent: Sjö predikanir út af
sjö orðum (Hólum 1746—1753)
Eintal sálarinnar (Hólum 1746),
Sigurhróshugvekjur (Hólum
1797), Daglegt kvöld og morgun-
offur (Hólum 1780), Píslarhug-
vekjur (Hólum 1766). Af Viðeyj-
arprenti má nefna: Agrip af hist-
orium heilagrar ritningar (1837),
Flokkabók (1843), Lærdómsbók í
evangelískum kristilegum trú-
arbrögðum handa unglingum
(1837), Andlegir sálmar og kvæði
Hallgríms Péturssonar (1838),
Messusöngs- og sálmabók (1837),
Biblía (1841), Sálma- og bænakver
(1838), Sálmabók (1834-35), Hús-
tabla (1842), Prédikanir Árna
Helgasonar (1839). Telja ber tvö
Ottó A. Michelsen
rit prentuð I Leirárgörðum:
Messusöngs sálmabók (1801),
Kristilegra trúarbragða höfuð-
lærdóm (1799).
Ottó A Michelsen og Gyða Jóns-
dóttir kona hans hafa margoft
sýnt hug sinn til Héraðssafns
Skagfirðinga með góðum gjöfum,
þótt hér sé ekki rakið frekar.
Stofnanir af sama eða líkum toga
og héraðsskjalasöfn — eigi þær að
vera annað og meira en geymslur
embætta gagna — þurfa að njóta
stuðnings og velvildar borgar-
anna, eiga að hollvini eins og Ottó
A. Michelsen og konu hans.
Stjórn Héraðsskjalasafns Skag-
firðinga sendir afmælisbarninu
heillaóskir og kærar þakkir með
von um langa og farsæla framtíð,
ekki sízt fari því fram sem horfir
um frekari gjafir til safnsins skv.
næstu fimmáraáætlun.
F.h. Héraðsskjaiasafns Skag-
firðinga Kristmundur Bjarnason.
Hafnarfjörður
Tannlæknastofa
Er aö opna nýja tannlæknastofu aö Reykjavíkurvegi 62,
efri hæö (fyrir ofan Bimm Bamm). Viðtalstímar eftir sam-
komulagi. Viötalsbeiönum veitt móttaka í síma 651411,
kl. 8.15—17.00.
Guöm. Rúnar Ólafsson, tannlæknir,
Reykjavíkurvegi 62, sími 651411
Flug og skip. Flug út, skip heim, skip útog flug heim,
eða eins og þú vilt.
Ferðaskrifstofa ríkisins og Flugleiðir bjóða nú enn
einn ferðamöguleikann, - flug og skip.
Við bjóðum þér að fljúga með Flugleiðum og sigla
með Norrænu, hvort heldur þú vilt heiman eða heim.
Þú gætir t.d. flogið innanlands, siglt út og flogið heim,
eða flogið út og siglt heim.
Möguleikarnir eru margir. Flafðu alla þína hentisemi.
Flugið er fljótlegra, en skemmtisigling með Norrænu
er óneitanlega freistandi.
Dæmi um verð: Flogið frá Reykjavík til Osló
Siglt frá Bergen til Seyðisfjarðar
Flogið frá Egilsstöðum til Reykjavíkur kr. 13.316.-
Flug og skip,
ánægjuleg tilbreyting á ferðamáta landsmanna.
beitið upplýsinga hjá Ferðaskrifstofu Ríkisins, Flugleiðum og ferðaskrifstofum.
FfiT Ferðaskrifstofa Ríkisins FLUGLEIDIR