Morgunblaðið - 23.06.1985, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 23.06.1985, Qupperneq 28
28 B MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNl 1985 — /----------------- „Er þfrb Hróa.-Hattccr Pízra ást er ... ... aö hjálpa henni við helgarinnkaupin TM Rea. U.S. Pat. Off.—all rights reserved ® 1985 Los Angeles Times Syndicate Spurð’ ’ann pabba þinn ráða, því val hans á maka var miklu betra en mitt! HÖGNI HREKKVÍSI „ KyMNTU ýéd EFNl pESSAgfig 0ÓKAZ, HÖ6NI." Fegurðin skaðar ekki Hólmfríður Maríusdóttir, Tómas- arhaga 9, skrifar: Ég þarf endilega að tjá mig um fegurð, vegna umræðunnar sem orðin hefur í þjóðfélaginu um feg- urðarsamkeppnir og þá gagnrýni sem upp gýs alltaf eftir hverja keppni. Það kemur ekki til mála að feg- urð geti haft vond áhrif á mann- eskjur, hvorki unglinga né full- orðna. Sérstaklega vil ég taka upp það sem María Jóhanna Lárus- dóttir sagði í umræðuþætti í sjón- varpi 11. júní sl., en hún lét í það skína að fegurð hefði vond áhrif á unglinga. Hún talar einnig um vanmáttarkend hjá unglingum í sambandi við fegurð, og minntist á að stúlkur sem drægu sig út úr skólahóp væru kallaðar kvenrétt- indabrussur og þannig hundsaðar af félögum sínum. Mér finnst ekk- ert athugavert við það þó einhver dragi sig út úr hóp. En, ef það getur gert unglingum vont að vera bent á fegurð, þá veit ég alls ekki hvað getur gert þeim gott. María vildi koma því á borgar- stjórann okkar að hann sé frekar minniháttar maður vegna þess að hann hafi verið þarna á fegurðar- samkeppninni sjálfur, en hún gleymir að koma þvi fram að á sama tíma er þessi sami borgar- stjóri út um víðan völl að tína rusl og ég veit að hann hefur ekki átt neitt af því rusli sem hann var að hreinsa. (Ég er ekki sjálfstæðis- kona.) Þessar fáu konur, sem þarna fjölmenntu á borgarstjórnarfund- inn, draga einungis konur frekar en hitt en ég vil benda þeim á að konur þurfa engan málsvara. Þær hafa hingað til staðið upp úr. All- ar alvörukonur hafa staðið upp úr og ljótleiki er ekki til i fólki, hvorki konum né körlum, nema þeirra innri hugsun. Ef ekki er vakin athygli á fegurð hjá fólki, þá hlýtur það að verða ljótt, hvernig sem það er úr garði gert. í flestöllum tilfellum hafa ís- lenskar stúlkur sómað sér vel í hlutverki fegurðardrottninga. Þær hafa alls ekki orðið einhverjir rón- ar í Ameríku eða þess háttar. Ég er ekki að segja að ég sé meðmælt fegurðarsamkeppnum sem slíkum, en ef við eigum að keppa í ein- hverju, þá finnst mér það eiga að vera i fegurð. Það hlýtur að vera til margt sem skaðar fólk en ekki fegurðin. Grósku- leikur Gunnar Sverrisson, Þórsgötu 27, Revkjavík skrifar: Eg samdi eftirfarandi ljóð i til- efni af sumrinu og blíðunni og vil ég kalla það Gróskuleikur. Um bláa þöll, í þallamergð, i grænum skóg, um morgunstund, er lífið svalt, og leikur sér, i sumartið, • i helgri ró, um bláa þöll, í þallamergð, sér leikur líf, um græna tó, hún vex og grær, i dular beð, svo stefja klið, i laut og mó, sér haslar völl, um landið allt, svo rauða vor, í bláum beð, sín opnar sumars Ijúfa sal, og gæti skeð, öll drótt með. Hættið Simon og John, Árbæ, skrifa: Athyglisverði Velvakandi. Við erum með sniðugar tillögur til þeirra sem kvarta og kveina út af öllu í sambandi við Duran Dur- an. Hættið að kvarta og verið ánægð með það sem þið fáið. Það er t.d. margbúið að láta ykkur vita að Duran Duran kemur ekki hingað á Listahátíð þó að við vild- um að svo væri. Og ekki vera svona hissa þó að „Save a Prayer" lækki á listanum. Það er búið að gera það gott og svo i lokin smá orðsending til þungarokksaðdá- enda: Kaupið ykkur bara þunga- rokksplötur ef þið þurfið að hlusta á þetta. að kvarta og kveina é

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.