Morgunblaðið - 17.07.1985, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
157. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sýrlendingar á
verði í Líbanon
Beirút, 16. júlí. AP.
HERSVEITIR Sýrlendinga hófu
öryggisvörslu í Beirút snerama í
raorgun og hermdu fréttir síðdegis
að ekki hefði sést til vopnaðra
múhameðstrúarmanna á götum úti
eftir að sveitirnar tóku til starfa.
AP/Símamynd
Wilfried Martens, forsætisráðherra,
á fundi með fréttamönnum eftir að
tilkynnt var að Belgíukonungur
hefði hafnað lausnarbeiðni Martens
og ríkisstjórnar hans.
Belgíustjórn
situr áfram
Bruæel, 16. júlí. AP.
Tæplega 30 fimm manna sveitir,
búnar M-16 vélbyssum og hand-
sprengjum, komu sér upp litlum
bækistöðvum víðs vegar um borg-
ina og hófu vopna- og sprengjuleit
í bílum.
Her múhameðstrúarmanna var
í viðbragðsstöðu í dag ef til óeirða
skyldi koma milli löggæslumanna
og uppreisnarherja. Fánar upp-
reisnarherjanna, gaddavírsgirð-
ingar, vegartálmar og annað sem
minnti á fyrri óeirðir í höfuðborg-
inni, var fjarlægt í samræmi við
friðaráætlun Sýrlendinga.
Sjö manna nefnd, skipuð full-
trúum múhameðstrúarmanna og
stjórnarhersins, höfðu umsjón
með gæslustörfunum í samráði við
sex hernaðarráðgjafa sem sendir
voru frá Sýrlandi til Líbanons
fyrir tveimur dögum. Von er á 29
sýrlenskum ráðgjöfum í viðbót í
vikunni.
Skærur kristinna manna og mú-
hameðstrúarmanna héldu áfram
við svokallaða „græna línu“ í gær
og dag og biðu tveir borgarar bana
í átökunum og 11 særðust.
Fundist hafa 13 lík eftir
sjálfsmorðsárás ungs Líbana
skammt frá öryggissvæði ísraela í
gær og óttast lögreglan að fleiri
hafi beðið bana í árásinni. Leit var
haldið áfram í rústum bygginga á
svæðinu í dag.
AP/Símamynd
Heimsmet í 1500 m hlaupi
Ileimsmet í 1500 metra hlaupi innan seilingar. Bretinn Steve Cram setti
nýtt heimsmet í 1500 metra hlaupi á frjálsíþróttamóti í borginni Nizza í
Frakklandi í gærkvöldi, hljóp á 3:29,67 mínútum eftir mikla keppni viö
Marokkómanninn Said Aouita, sem hlaut tímann 3:29,71 mín. Er Cram
fyrstur til að hlaupa 1500 metra á innan við 3:30 mínútum. Á myndinni
eiga Cram (til hægri) og Aouita eftir einn metra í mark í methlaupinu og
reynir Aouita til hins ítrasta að teygja sig fram úr Cram.
Sjá „Steve Cram fyrstur undir 3:30 í 1500 metrum.“ á bls. 44.
Sovésk
herskip á
æfingum
Kaupmannahorn, 16. júlí. AP.
ÓVENJU stór hluti sovéska
sjóhersins hefur siglt um
Eystrasalti sl. viku, á leiö til
flotaæfinga á austurhluta
Atlantshafs, að sögn danska
varnarmálaráöuneytisins.
Flotinn, sem fór út úr Eystra-
salti, telur 21 herskip og þ.á.m.
eru sex kafbátar og herskipið
„Grozny", sem búið er kjarnorku-
flaugum.
R.K. Jacobsen sjóliðsforingi,
talsmaður leyniþjónustu danska
varnarmálaráðuneytisins, sagð-
ist ekki hafa séð eins stóran flota
sovéskra kafbáta á Eystrasalti
áður, en taldi að um venjulegar
flotaæfingar væri að ræða.
Samkvæmt alþjóðareglum,
mega aðeins þrjú herskip fara í
einu um dönsku sundin frá
Eystrasalti og tók því sigling so-
vésku herskipanna heila viku.
Jackobsen sjóliðsforingi sagði
að sést hefði til ferða fleiri so-
véskra skipa á leið til Atlants-
hafs og hann taldi því að hér
• væri um óvenjuumfangsmiklar
flotaæfingar að ræða að þessu
sinni.
BALDVIN Belgíukonungur hafnaði í
dag lausnarbeiðni stjórnar Wilfrieds
Martens forsætisráðherra.
Martens baðst lausnar fyrir sig
og stjórn sína í morgun eftir mikl-
ar deilur vegna uppþotanna sem
urðu á knattspyrnuleikvangi í
Brussel í maí þegar 38 létust.
Konungurinn hefur beðið Mart-
ens og stjórn hans að sitja við völd
fram að þingkosningum í haust.
Stjórnarkreppan í Belgíu hófst á
mánudag þegar Jean Gol aðstoð-
arforsætisráðherra sagði af sér,
þar sem Charles-Ferdinand Noth-
omb, annar aðstoðarforsætisráð-
herra og fulltrúi arms frönskumæl-
andi manna í Kristilega demó-
krataflokknum, neitaði að taka á
sig nokkra ábyrgð á slakri öryggis-
gæslu á leikvanginum.
Fimm samráðherrar Gols úr
Frjálslynda flokknum sögðu þá
einnig af sér. Forsætisráðherramr
studdi aftur á móti Nothomb.
Rússar undirbúa nvia
stórsókn í Afghanistan
Islamabad, PakisLan, 16. júlí.
Islamabad, I'akisLan, 16. júll
FRÉTTIR herma að Sovétmenn undirbúi nú mikla gagnsókn gegn
frelsissveitum Afghana í Pansjer-dalnum í norðurhluta Afghanistan.
Með sókninni á að stemma stigu við árásum frelsissveitanna á
bækistöðvar stjórnarhersins í dalnum undanfarið.
ónefndir vestrænir heimilda-
menn sögðu að árásir frelsissveit-
anna á bækistöðvar og bílalestir
stjórnarhersins undanfarið svip-
aði mikið til fyrri árása sem Sov-
étmenn hefðu hefnt með gagn-
sóknum. Heimildamennirnir vildu
þó ekki fullyrða að til stórsóknar
kæmi nú, þótt þær teldu allar lík-
ur bendu til þess.
Frelsissveitirnar sem halda til í
dalnum undir stjórn Ahmadsham
Masoud, eru sagðar vera í góðri
þjálfun og hafa fyrir skömmu
fengið mikla sendingu af vopnum,
þ.á m. loftvarnarbyssur og vopn
gegn skriðdrekunr.
Her Masouds hefur herjað á
bækistöðvar stjómarhersins af
miklum krafti síðan í mars og orð-
ið vel ágengt Stjórnarhermenn
sem verja eiga Pansjer-dalinn
hafa margir hverjir gengið í lið
með frelsissveitunum eða aflað
vopna fyrir sveitirnar.
Her Masouds hefur einnig herj-
að á birgðalestir stjórnarhersins á
Salang-leiðinni milli landamæra
Sovétrikjanna og Kabúl, höfuð-
borgar Afghanistan. Gætu árásir
þeirra leitt til matvælaskorts í
höfuðborginni ef þeim verður
haldið áfram.
Reagan að hressast
New York, 16. júlí. AP.
RONALD Reagan, Bandaríkjaforseti, var sagður hiiur hressasti í kvöld
eftir að illkynjað æxli var fjarlægt úr ristli hans sl. laugardag.
Ronald Reagan forseti kyssir eiginkonu sína, Nancy, áður en hann
gekkst undir skurðaðgerð þar sem illkynjað æxli var fjarlægt úr ristli
Reagans.
Læknar forsetans sögðust
bjartsýnir á að þeim hefði tekist
að komast fyrir krabbameinið,
en munu þó fylgjast grannt með
heilsufari hans. Þeir sögðu að
hann yrði ekki talinn úr allri
hættu nema engin ný æxli
myndist á næstu fimm árum.
Forsetinn fær að fara heim
um helgina eða snemma í næstu
viku, en mun ekki vera vinnufær
að fullu fyrr en eftir u.þ.b. tvær
vikur.
Viðbrögð í Bandaríkjunum við
fréttum af heilsufari forstans
voru með ýmsu móti. í forystu-
greinum helstu dagblaðanna
voru vangaveltur um afleiðingar
heilsubrests Reagans, en flest
blöðin sögðust fullviss um að
hinum 74 ára gamla leiðtoga
tækist að komast yfir sjúkdóm-
inn.
Vonir standa til að forsetinn
verði búinn að ná sér að fullu
þegar leiðtogafundur hans og
Mikhails Gorbachev fer fram í
nóvember nk.
Donald Regan, starfsmanna-
stjóri Hvíta hússins, mun taka
við hluta af stjórnsýslustörfum
forsetans á meðan forsetinn er
að ná sér.
BBC með
nýjar myndir
af Sakharov
. 16. júlí. AP.
BRESKA sjónvarpið (BBC)
sýndi í kvöld nokkra filmu-
búta, þar sem soveski andófs-
maðurinn Andrei Sakharov,
sást snæða, raka sig og í lækn-
isrannsókn.
Bethell lávarður, sem á sæti á
Evrópuþinginu og hefur'barist
fyrir mannréttindum, sagðist
telja að myndirnar hefðu verið
teknar af Sakharov fyrir um
mánuði.
Hann sagðist hins vegar ekki
viss um hvort Sakharov væri í
haldi í sjúkrahúsinu, eða hvernig
heilsufari hans væri háttað.
Talsmenn BBC sögðu að þeir
hefðu fengið filmubútana frá
Moskvu, en gáfu ekki upp frá
hverjum þeir kæmu.