Morgunblaðið - 17.07.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLl 1985
7
Grtmdarfjörður:
Tíðar rafmagnstrufl-
anir í kuldakastinu
„f Kl'LDAKASTINU að undanförnu hefur verið óvenjulega mikið álag i
raflínunni til Grundarfjarðar og mikið um rafmagnstruflanir af þeim sök
um,“ sagði Þórarinn Jónsson rafveitustjóri í Stykkishólmi, þegar hann vai
spurður um ástæðuna fyrir tíðum rafmagnstruflunum í Grundarflrði.
„Álagið er fyrst og fremst vegna
aukinnar rafnotkunar til húsa-
hitunar á síðustu árum. Að vetr-
arlagi stendur tæpt að orkan nægi
og því verða tíðar rafmagns-
truflanir á sumrin þegar allar
fiskvinnslur eru í gangi.“
Ástandið í orkumálum Grund-
firðinga hefur ekki verið uppá það
besta á undanförnum árum að
sögn Þórarins. Nú er verið að
byggja nýja 60 þús. kw línu og
verður unnið við að reisa línuna
langleiðina að Eyði, skammt frá
Grundarfirði, í ár og lokið vi(
hana á næsta ári ef allar tíma
áætlanir standast.
Áður en hægt verður að nýta
nýju línuna að fullu verður ai
byggja nýja 60 þús. kw rafveitu-
stöð í Grundarfirði í stað 19 þús.
kw rafveitustöðvar, sem þar er nú
Stefnt er að því að nýja stöðir
verði tilbúin árið 1987. Fram aí
þeim tíma verður nýja línan rekin
með 19 þús. kw og mun ástandií
þá strax batna því nýja línan er
mun sterkbyggðari en sú sem fyrii
er.
„Löggulíf"
í blíðunni
Félagarnir Þór og Danni sem lands-
menn þekkja svo vel úr kvik-
myndunum „Nýju lífl“ og „Dalalífl"
höföu í nógu að snúast í blíðunni í
g»r. Að þessu sinni í gervi lögreglu-
manna og verða þeir á hvíta tjaldinu
landsmönnum til skemmtunar,
væntanlega um jólin.
Þráinn Bertelson leikstýrir
„Löggulífi", en með hlutverk
þeirra félaga fara Eggert Þor-
leifsson (Danni) og Karl Ágúst
Úlfsson (Þór). Þráinn Bertelson
mundaði kvikmyndalinsuna þegar
Júlíus, ljósmyndara Morgunblaðs-
ins, bar að garði við Tjarnargöt-
una en eitthvað virðast hlutirnar
öfugsnúnir hjá Danna ef marka
má svip hans og kaskeitið öfugt.
Skyldi það vera samlokan, sem
hann heldur á, sem bragðast
svona illa?
Ekkert eitr-
að vín á
markaði
hérlendis
EITIIREFNI fundust nýlega í
fáeinum austurrískum vínteg-
undum og urðu nokkrum að
fjörtjóni. Efnið sem hér um
ræðir er „di-ethylene glycol“
og hefur það aðallega fundist í
austurrískum vínum sem hafa
verið flutt út þaðan til Vestur-
Þýskalands.
Ein austurrísk víntegund,
„Edelfráulein", er flutt inn til
íslands. Eitrið hefur ekki
fundist í þeirri tegund. í
skeyti sem umboðsmanni
„Edelfráulein" á íslandi
barst frá framleiðendum
vínsins segir að stjórnvöld t
Austurríki hafi náð tökum á
þessu vandamáli og búið sé
að koma í veg fyrir frekari
dreifingu á eitruðum vínum.
Að sögn Ragnars Jónsson-
ar mun ÁTVR samt sem áður
gera ráðstafanir til þess að
tryKKÍa að engin slys verði af
þessum völdum hérlendis.
Vínið verður efnagreint, en
efni af þessu tagi koma fram
við einfaldar greiningar svo
hættan á að það færi fram
hjá rannsóknarmönnunum er
nánast engin.
NORDMENDE
UPPTOKUVELIN
í SUMARFRÍIÐ
Utborgun 15.000
Eftirstöðvar á 8 mán.
í stuttu máli er vídeó-movie myndatökuvélin frá Nordmende
vídeómyndavél, upptöku- og afspilunartæki sem gengur fyrir
hleðslurafhlöðu. Þú getur tekiö kvikmyndir hvar sem er milli
fjalls og fjöru.
Auk þess er upplagt að taka feröamyndir, myndir af afmælum,
giftingum og öörum stórviðburðum. Myndavélinni fylgir hand-
hæg taska og fl. Þetta er tækið sem allir hafa beöiö eftir.
JNNLEN-T
Við tökum vel á móti þér