Morgunblaðið - 17.07.1985, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLl 1985
Minning:
Hörður Felixson
loftskeytamaður
Fæddur 17. nóvember 1933
Dáinn 10. júlí 1985
Um daginn sá ég Hörð í síðasta
sinn. Ég var á leið í dagsins önn og
mætti honum og konu hans á förn-
um vegi. Við vorum akandi, ég rétt
nam augnatillit þeirra, svo sem í
sekúndubrot. Og nú er hann dáinn,
eins og hendi væri veifað, langt
um aldur fram.
Þannig gengur lífið, áður en lit-
ið er við er sviðið breytt. Við í
fjölskyldu hans erum fátækari,
horfinn er góður drengur. Hann
átti barnaláni að fagna, eignaðist
fimm mannvænleg börn, sem nú
eru uppkomin. Sjaldan hef ég
kynnst eins barngóðum manni og
Herði.
Af listgreinum höfðaði tónlistin
til hans, hann var góður söngmað-
ur og hafði yndi af angurværri
tónlist. Ef einhver, sem ég hef
fyrir hitt, var rómantískur maður
þá var Hörður Felixson það. Guð
blessi minningu hans.
Einar Hákonarson
Örfá kveðjuorð.
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast,
það er lífsins saga.
(P.Árdal).
Látinn er langt um aldur fram
og öllum harmdauði er þekktu
Hörður Felixson, góður drengur
og samstarfsmaður minn gegnum
tíðina. Síst grunaði mig fyrir
nokkrum dögum rétt fyrir sumar-
leyfi mitt að sá fundur yrði okkar
síðasti um bil.
Hörður var einn jákvæðasti og
besti drengur sem hugsast gat, vel
á sig kominn og naut sín í starfi og
leik. Hann var á yngri árum leik-
inn í íþróttum og alla tíð dæma-
iaus þrekmaður til líkama og sál-
ar. Ég votta fjölskyldu hans sam-
úð mína og bið almættið að styðja.
Helgi Jensson
Genginn er góður drengur, vin-
ur og vinnufélagi. Glaðsinna,
málhagur, skapfastur en ljúfur.
í dagsins önn lagði hann ávallt
gott til mála. Harðar Felixsonar
er sárt saknað og þökkuð sam-
fylgdin.
Guð blessi hann og þá sem hann
trega.
JP
Hörður Felixson fæddist í
Reykjavík 17. nóvember 1933 og
lést úr hjartaslagi á heimili sínu
að morgni 10. júlí sl. Foreldrar
hans voru hjónin Felix 0. Sigur-
bjarnarson, sem lengi var verk-
stjóri hjá Reykjavíkurborg, og
Sigríður Jónsdóttir frá Kalastaða-
koti í Borgarfirði.
Hörður ólst upp við Laugaveg-
inn og gekk ungur í Val og lék
knattspyrnu með þeim í mörg ár
og lengi í meistaraflokki.
Hann lauk prófi frá Loftskeyta-
skólanum árið 1954 og hóf
skömmu síðar störf hjá Landsíma
fslands og vann þar til dauðadags
eða í rúm 30 ár, lengst af við fjar-
skiptastöðina í Gufunesi.
Hörður kvæntist 7. ágúst 1954
Ragnheiði Hjálmarsdóttur sím-
stöðvarstjóra á Hólmavík Hall-
dórssonar og konu hans Sólveigar
Magnúsdóttur. Ragnheiður er
sjúkraliði á Borgarspítalanum.
Börn þeirra eru: Drífa, sálfræð-
ingur, f. 16. des. 1954 gift Jack E.
James, búsett í Ástralíu. Daði,
tölvufræðingur, f. 4. apríl 1956,
sambýliskona Pat A. Dixon. Sonur
þeirra er Daníel Andri. Leifur,
íþróttakennari, f. 25. mars 1957.
Rafn, starfsmaður hjá Sements-
verksmiðju ríkisins, f. 14. okt.
1958. Ragnheiður, sjúkraliði, f. 25.
apríl 1961, sambýlismaður Jóhann
Melsteð. Sonur hennar er Hörður
Jónsson.
Hörður mágur minn er mér
minnisstæðastur fyrir hvað hann
var elskulegur, kátur og þægilegur
í öllu viðmóti og alltaf boðinn og
búinn að leysa hvers manns
vanda. Hið sviplega lát Harðar
var fjölskyldunni mikið áfall og
óvænt þar sem hann hafði ekki
kennt sér meins og voru þau hjón-
in nýkomin úr velheppnaðri ferð
til dóttur sinnar í Ástralíu.
Ég votta systur minni, börnum,
tengdabörnum og barnabörnum
innilegustu samúð.
Magnús Hjálmarsson
í dag er kvaddur vinur og
starfsfélagi um árabil, Hörður M.
Felixson, loftskeytamaður. Dauða
hans bar að óvænt og skyndilega,
er hann veiktist á heimili sínu 10.
þ.m. og var látinn innan fárra
stunda. Maður á bezta aldri, ávallt
heilsuhraustur og fullur af lífs-
þrótti og gáska, skyndilega liðið
lík. Já, það er skammt milli lífs og
dauða. En eitt sinn skal hver
deyja, og sagt er að þeir deyi ung-
ir, sem guðirnir elska.
Það er óhagganleg staðreynd, að
Hörður er dáinn, svo sárt sem það
annars er fyrir fjölskyldu hans,
vini og starfsfélaga.
Hörður Matthías Felixson
fæddist í Reykjavík 17. nóvember
1933. Ólst hann þar upp í foreldra-
húsum, en foreldra/ hans voru
sæmdarhjónin Felix Sigurbjarn-
arson og Sigríður Jónsdóttir, sem í
áratugi bjuggu á Laugavegi 132.
Að loknu gagnfræðaprófi hóf
Hörður nám við Loftskeytaskól-
ann og lauk þaðan loftskeytaprófi
vorið 1954. Hann gerðist starfs-
maður Pósts og síma árið 1955.
Starfaði hann sem loftskeytamað-
ur og símritari við fjarskiptastöð-
ina í Gufunesi til 1963 er hann fór
til Bandaríkjanna til náms í lór-
antækni. Að loknu n ámi hóf hann
störf við lóranstöðina að Gufu-
skálum á Snæfellsnesi og starfaði
þar til ársins 1970 er hann flutti
aftur til Reykjavíkur og hóf störf
að nýju við fjarskiptastöðina í
Gufunesi, þar sem hann svo starf-
aði til dauðadags.
Herði var flest vel gefið. Hann
var fríður maður og myndarlegur
á velli, vel greindur, hreinskiptinn
og glaðvær og átti sérlega gott
með að umgangast fólk. Hann var
einn þeirra, sem ávallt eru já-
kvæðir gagnvart lífinu og tilver-
unni, náunganum og umhverfinu,
jafnt í mótbyr sem meðbyr. Hann
ljómaði af lífsþrótti og starfsork-
an virtist óþrjótandi, því í mörg ár
stundaði hann tvöfalda vinnu, auk
þess sem mikill tími fór í íþróttir.
Hörður æfði og lék knattspyrnu
um árabil með Knattspyrnufélag-
inu Val, og minntist hann þess
tíma ávallt með mikilli ánægju,
enda eignaðist hann þar marga
góða félaga. Einum þeirra fylgdi
Hörður til grafar fyrir fáum dög-
um og mun hann þá vart hafa
grunað að svo skjótt yrði hann
sjálfur brott kvaddur.
Starf Harðar í Gufunesi, radíó-
fjarskipti við flugvélar, er oft
mjög krefjandi, því vinnuhraði og
nákvæmniskröfur eru miklar, en
þarna lék allt í höndum hans og er
ekki ofsagt að hann hafi verið einn
færasti afgreiðslumaður stöðvar-
innar.
Starfsemi stöðvarinnar og
starfsfélagar Harðar nutu í ríkum
mæli góðs af ósérhlífni hans,
dugnaði og greiðvikni. Fyrir það
eru færðar þakkir. Er vissulega
skarð fyrir skildi og vandfylt. Mun
hans sárt saknað á vinnustað.
Hörður tók símritapróf árið
1960 og yfirsímritapróf 1970.
Hann varð eftirlitsmaður með
símritun árið 1974 og nokkur und-
anfarin ár annaðist hann kennslu
á símritaranámskeiðum og upp-
rifjunarnámskeiðum í flugfjar-
skiptum.
Hörður kvæntist árið 1954 eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Ragnheiði
Hjálmarsdóttur, frá Hólmavík.
Reyndist hún honum hinn ágæt-
asti förunautur. Þau eignuðust
fimm börn, sem öll eru uppkomin.
Söknuður þeirra er sár, en minn-
ingar um góðan dreng verða ekki
frá þeim teknar. Ég votta þeim
öllum dýpstu samúð.
Stefán Arndal
t
Móöir okkar, tengdamóöir og ar-ima,
ARNLÍN ÁRNADÓTTIR,
Laugaróavegi 24,
Raykjavík,
andaöist 15. júlí í Hafnarbúöum.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Móöir okkar,
JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Aóalstræti 39,
Patraksfiröi,
andaöist á heimili sínu 14. júlí. Fyrir hönd vandamanna,
Magnús Friörikaaon,
Sigríöur Friöriksdóttir,
Gunnar Friöriksaon.
t
Eiginmaöur minn,
BJARNI JÓNSSON,
Drópuhlíö 30,
andaöist i Landspítalanum aö morgni 16. júlí.
Jensína Guólaugsdóttir.
t
Maöurinn minn, faöir og tengdafaöir,
JASON SIGURDSSON,
lést á Hrafnistu aöfaranótt mánudagsins 15. júlí.
Ingibjörg Banjamínsdóttir,
Banedikt Jaaonaraon,
Margrét Hróbjartsdóttir.
t
Bróðir minn,
RÚTURHANSSON
fró Hóli íKöldukinn,
andaöist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 14. júli.
Þórlaug Hansdóttir.
t
Eiginmaður minn,
JÓN SIGURDSSON,
Stóra Lambhaga,
andaöist aöfaranótt 15. júlí.
Fyrir hönd vandamanna,
Svandís Haraldsdóttir.
t
Útför móður okkar og tengdamóður,
JÓNÍNU JÓNSDÓTTUR
Álfheimum 16,
veröur gerö frá Langholtskirkju fimmtudaginn 18. júli kl. 13.30.
Sigríöur Guömundsdóttir,
Jóna Guðmundadóttír,
Þóröur Halldórsson,
Ragnar Júlíusson.
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
SIGURBJÖRG BJARNADÓTTIR.
Álftagróf,
veröur jarösungin frá Skeiöflatarkirkju föstudaginn 19. júlí kl. 14.00.
Elín Tómasdóttir,
Erna Léra Tómasdóttir,
Helga Tómasdóttir,
Sigríóur Tómasdóttir,
Ólafur Björnsson,
Kristinn Þ. Jóhannsson,
Gunnar Auöunn Oddsson,
Valdimar Gíslason.
t
Systir okkar,
ELÍNBORG MAGNÚSDÓTTIR,
Rauóarérstíg 42,
veröur jarösungin frá Fossvogsklrkju fimmtudaginn 18. júlí kl.
10.30.
Guóbjörg Magnúsdóttir,
Jón Magnússon,
Eymundur Magnússon.
t
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
EINARBJÖRG BÖDVARSDÓTTIR,
Marklandi 10,
sem andaöist í Borgarspítalanum þann 12. júlí veröur jarösungin
frá Fossvogskapellu föstudaginn 19. júlí kl. 13.30.
Freysteinn Gíslason,
Aðalsteinn Gíslason,
Haraldur Glslason,
Auóur Ingrún Gísladóttir,
Skúli Gíslason,
Hrafnhildur Gísladóttir,
tengdabörn, barnabörn og barna-
barnabörn.
t
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
KRISTJÁN EINARSSON,
rafvirkjameistari,
Grettisgötu 48,
sem andaöist miövikudaginn 10. júlí veröur jarösunginn frá Hall-
grímskirkju, fimmtudaginn 18. Júlí kl. 15.00.
Eyrún Kristjénsdóttir,
Anna Kristjánsdóttir, Tor Orstadius,
Einar Kristjénsson, Guörún Guömundsdóttir,
Edda Kristjánsdóttir, Hrafn Gunnlaugsson
og barnabörn.