Morgunblaðið - 17.07.1985, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1985 45
N]áll skoraði úr
víti á lokasekúndunni
og KA-menn fóru í 8-liöa úrslit bikarsins
KA varö fyrsta liðiö til aö
tryggja sér sæti í undanúrslitum
Bikarkeppni KSÍ þegar liðið sigr-
aði Víði úr Garöi á Akureyrarvelli
í gærkvöldi. Úrslit leiksins urðu
2:1 og skoraði Njáll Eíösson sig-
urmarkiö úr vítaspyrnu á síðustu
sekúndu leiksins. í leikhlái var
staöan 0:1 fyrir Víöi, en KA tókst
að jafna og sigurmarkiö kom síö-
an á síöustu sekúndunni.
Litiö gerðist fyrstu mínútur
leiksins en fyrsta færiö kom þó á
10. mínútu þegar Tryggvi Gunn-
arsson komst einn inn fyrir vörn
Víös en Gísli Hreiöarsson, mark-
vöröur Víöis, náöi aö verja. Boltinn
hrökk til Steingríms sem skaut
framhjá.
KA — Víðir
2:1
Skömmu síöar átti Njáll gott
skot aö Víðismarkinu en rétt fram-
hjá. Lítiö annað markvert geröist í
fyrri hálfleik annaö en Víöismenn
skoruöu eina mark sitt á 35. mín-
útu.
Grétar Einarsson tók horn-
spyrnu, renndi knettinum út á
Guöjón Guömundsson sem gaf
hann inn í vítateig þar sem Gísli
Eyjólfsson tók hann viöstöðulaust
og skoraöi af stuttu færi.
KA var meira meö knöttinn í
fyrri hálfleik en fleiri uröu færin
ekki. Tíöindalítill fyrri hálfeikur.
KA-menn hófu síöari hálfleikinn
af miklum krafti og strax á fyrstu
mínútum átti Þorvaldur Þorvalds-
son gott skot af um 25 metra færi
en rétt framhjá. Á 57. mínútu jöfn-
uöu norðanmenn síöan. Rúnar
Georgsson hugöist senda knöttinn
á Gísla markvörö en Tryggvi komst
inn í sendinguna, gaf fyrir markiö
og þar myndaöist þvaga og endaöi
þaö meö því aö knötturinn berst
aftur til Tryggva þar sem hann var
á markteigshorninu. Hann skaut
föstu skoti sem lenti í varnarmanni
á marklínunni og þaöan í netið.
Heimamenn héldu uppteknum
hætti og voru heldur meira meö
boltann en hvorugu liöinu tókst þó
aö skapa sér umtalsverð mark-
tækifæri fyrr en undir lok leiksins.
Daníel Einarsson átti góöa fyrir-
gjöf sem hrökk af varnarmanni og
rétt yfir mark KA. Njáll átti þrumu-
skot rétt framhjá markinu og síöan
á síöustu sekúndu leiksins og er
menn voru farnir aö huga aö fram-
lengingu var dæmd vitastpyrna.
Vítaspyrna þessi var umdeild.
Guöjón Guöjónsson gaf knöttinn
til baka á Gísla markvörö sem tók
knöttinn upp. Tryggvi fylgdi vel á
eftir og kom alveg í bakiö á Guö-
jóni sem var rétt um metra frá
markveröinum. Guöjón snýr sér
viö og rekur olbogann í magann á
Tryggva sem féll í völlinn og Friö-
geir Hallgrímsson dómari dæmdi
umsvifalaust vítaspyrnu. „Ég gaf á
Gisla, Tryggvi kom í bakið á mér
og ég sneri mér snöggt viö og
Tryggvi, sem lék þetta mjög vel, lét
sig detta í völlinn. Þaö var ekki til í
dæminu aö þetta væri vítaspyrna,"
sagöi Guöjón Guómundsson, fyrir-
liði Víöis, eftir leikinn. Njáll Eiösson
skoraöi af öryggi úr vítaspyrnunni.
Ekki vannst tími til aö byrja á miöju
þvi leiktíminn var liöinn.
Víöismenn mótmæltu þessum
dómi kröftuglega og endaöi þaö
meö því aö Rúnar Georgsson var
rekinn af leikvelli en hann haföi
skömmu áöur fengiö aö sjá gula
spjaldiö hjá dómaranum.
Besti maöur KA í þessum leik
var Erlingur Kristjánsson en hjá
Víöi var Einar Ásbjörn Ólafsson
bestur.
Viðar leikur ekki
með ÍBK í vetur
— móðgun víö mig hvernig staðið var að ráðningu Hreins Þorkelssonar sem þjálfara, segir hann
VIDAR Vignisson, landsliös-
maður í körfuknattleik úr Kefla-
vík, hefur ákveöiö aö leika ekki
meö ÍBK í úrvalsdeildinni í vetur
eins og til stóð.
Viöar, sem er 22 ára, stundaöi
nám í Bandaríkjunum síöastliöin
fjögur ár og lék meö liöi Luther
College í lowa. Áöur en hann hélt
utan lék hann meö ÍBK.
Um ástæöu þess aö hann leik-
ur ekki með sínu gamla félagi í
vetur eins og til stóö, sagöi Viöar
í gær í samtali viö Morgunblaöiö:
„I sumar spuröi Sigurður Val-
geirsson, stjórnarmaöur í körfu-
knattleiksdeild ÍBK, hvort ég
heföi áhuga á aö þjálfa meistara-
flokk félagsins með Hreini Þor-
kelssyni — sem þá stóö til aö
kæmi til Keflavíkur. Ég svaraði
neitandi — sagöist hins vegar
vera tilbúinn aö þjálfa liðiö meö
Hrannari Hólm, sem leikur með
liöinu og þjálfaði þaö um tíma
síöastliöinn vetur eftir aö Björn
Víkingur Skúlasoon hætti. Ég gaf
mínar ástæöur fyrir þessu svari
— m.a. þá aö Hrannar er bak-
vöröur en ég framherji, þannig
aö á æfingum gæti hann þjálfaö
bakveröina á öörum vallarhelm-
ingnum og ég aöra leikmenn á
hinum.
Viö Hrannar höfum síöan þjálf-
aö liöiö síöastliönar þrjár vikur.
Ákveöiö var aö Hreinn myndi
leika meö liöinu en síöan var þaö
um helgina aö okkur barst til
eyrna aö hann ætti einnig aö
þjálfa liöiö. Eftir æfingu í gær-
kvöldi (fyrrakvöld) undir stjórn
okkar Hrannar var síöan haldinn
fundur meö leikmönnum og Sig-
uröi Valgeirssyni — og þar til-
kynnti Siguröur aö Hreinn heföi
undirritaö saming um aö hann
þjálfaöi liöiö. Ég tók þessa
ákvöröun sem móögun viö mig
og tilkynnti því á fundinum aö ég
myndi ekki leika meö liðinu í vet-
ur.“
Hreinn á aó taka viö þjálfun
liðsins 1. september — og aö öll-
um líkindum mun Hrannar Hólm
vera með liöið á meðan. Hann
•Viöar Vignisson
mun leika áfram meö liöinu.
Viöar er mjög sterkur leikmað-
ur. Hann veröur hér á landi
næsta vetur en sagöist ekki
ákveðinn hvort eða hvar hann
léki. Missir Keflvíkinga er vissu-
lega mikill og fengur þess félags
sem Viöar gengi til liðs viö mikill
aö sama skapi — ef af því veröur
aö hann leiki.
fíffn
KRABBASÚPA
Sérstaklega vandað hráefni
og meistaraleg meðferð,
gerir súpurnarað þeirri
bragðljúfu gæðafæðu
sem er svo eftirsóknarverð
á borðum sælkera.
Súpurnar njóta sín einnig vel
í sjávarréttagratíni og sósum.
Þú opnar
ora
dósoggæóin
komaíijós!