Morgunblaðið - 17.07.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLl 1985
21
Sovézk herbifreið
ók á bandaríska
Washington, 16. júlí. AP.
BANDARÍKJAMENN mótmæltu í dag ákeyrslu sovézkrar herbifreiðar á
bandaríska bifreiö á hraðbraut ?ið Satzkorn í Austur-Þýzkalandi um helgina.
Einn Bandaríkjamaður slasaðist
Bandaríkjamenn segja atvikið
hafi átt sér stað fjarri sovézkum
bannsvæðum í Austur-Þýzka-
landi. Sovézk vörubifreið veitti
bandarískum jeppa lengi eftirför
og 6k loks á hana. Jeppinn tilheyr-
ir bandaríska hermálafulltrúan-
um í Potsdam og skrifstofu hans.
Roland Lajoie ofursti, yfirmaður
skrifstofunnar, kjálkabeinsbrotn-
aði í ákeyrslu sovézku herbifreið-
arinnar.
Atvikið um helgina er þriðja at-
vik sinnar tegundar í Austur-
Þýzkalandi á tæpum fjórum mán-
uðum. Sovézk herbifreið 6k á eina
brezka 4. júni sl., en engan sakaði.
Hinn 24. marz sl. myrti sovézkur
hermaður bandaríska majórinn
Arthur D. Nicholson. Bandaríkja-
menn mótmæltu því kröftuglega
en Rússar hafa enn ekki beðist af-
sökunar. Ökumaður bifreiðar
Nicholson, Jessie Schatz, ók einnig
jeppanum, sem ekið var á um
helgina.
Hlé gert á Genf-
arviðræðunum
(íenf, 16. júli. AP.
HLÉ var gert í dag á Genfarviðræð-
unum milli Bandaríkjanna og Sov-
étríkjanna um takmarkanir á víg-
búnaði, sem staðið hafa undanfarna
tvo mánuði. Viktor P. Karpov, for-
maður sovézku sendinefndarinnar,
sagði, að enginn árangur hefði náðst
og kenndi Bandaríkjamönnum um.
Max M. Kampelman, formaður
bandarísku sendinefndarinnar,
var varkárari í orðum og kvaðst
hafa orðið þess var, að Sovétmenn
legðu nú meiri áherzlu á málefna-
legri viðræður en áður en minna á
orðaskak. „Bandaríska sendi-
nefndin hefur gert sér grein fyrir
því frá upphafi, að í jafn flóknum
samningaviðræðum og þessum er
þess ekki að vænta, að samkomu-
íag náist fljótt og auðveldlega,"
sagði Kampelman.
Gert er ráð fyrir því, að nú verði
um tveggja mánaða hlé á þessum
viðræðum. Ekki hefur þó verið til-
kynnt opinberlega hvenær þær
hefjist á ný, en talið að það verði í
september.
i.KM'A (iJALDMIDLA
Dollari
London, 16. júlí. AP.
Bandaríkjadollari féll i verði
gagnvart öllum helztu gjaldmiðlum
heims í dag nema brezka pundinu.
Verð á gulli hækkaði.
Skýringin á lækkun dollara er
vangaveltur um að vextir í
Bandaríkjunum eigi eftir að
lækka, minnkandi hagvöxtur og
áhyggjur af heilsufari Ronalds
Reagan Bandaríkjaforseta.
Dollarinn féll í Tókýó áttunda
daginn í röð. Fengust 238,10 jen
fyrir dollara í kvöld miðað við
lækkar
238,60 í gær. í London var gengi
dollarans skráð á 237,45 jen í
kvöld.
Við lok viðskipta kostaði
pundið 1,3860 dollara miðað við
1,3887 í gær. Gagnvart öðrum
gjaldmiðlum var gengi dollara á
þá leið að hann kostaði 2,8780
vestur-þýzk mörk (2,8825), 2,
3905 svissneska franka (2,4050),
8,7355 franska franka (8,7825),
3,2375 hollenzk gyllini (3,2550),
1.871,50 ítalskar lírur (1.873,00)
og 1,3500 kanadíska dollara
(1,3510).
AP/Símamynd
Nýkrýnd Ungfrú alheimur, Deborah Cathy-Deu, brostir hér sínu blíð-
asta brosi. Við hlið hennar eru Teresa Sanches frá Spáni (til hægri á
myndinni), sem varð í öðru sæti, og Benita Mureka frá Zaire, sem varð
í þriðja sæti.
Boðskapur Ungfrú alheims:
„Vinnið af trúmennsku“
19 ára stúlka frá Puerto Rico hlutskörpust
Maíami 16. júlí. AP.
„MIG LANGAR til að segja öllum að þeir ættu að vinna af kappi
til að koma sér áfram og fylgja eftir því sem hver og einn hefur
áhuga á og sýna trúmennsku í hvívetna," sagði ungfrú Puerto
Rico, Deborah Cathy-Deu, nýkrýnd Ungfrú alheimur. Hún sagð-
ist vera ákaflega glöð yfir sigrinum: „Eg er eiginlega einhvers
staðar uppi í skýjunum," bætti hún við.
Ungfrúin er háskólastúdent á
fyrsta ári en hefur áhuga á að
verða leikkona. Hún er nítján
ára gömul frá San Juan. Yvonne
Ryding frá Svíþjóð, sem vann
titilinn í fyrra, krýndi Deborah
við mikinn fögnuð.
í öðru sæti varð Teresa Sanch-
es frá Spáni, Benita Mureka frá
Zaire varð þriðja, Silvia Martin-
ez frá Venezuela fjórða og And-
rea Lopez frá Uruguy fimmta.
Nokkru áður hafði verið tilkynnt
hvaða tíu stúlkur af keppendun-
um 79 hefðu komist í undanúr-
slit. Auk þeirra fimm sem hér
hafa verið nefndar voru það
Ungfrú Brasilía, Ungfrú Kana-
da, Ungfrú Chile, Ungfrú frland
og Ungfrú Bandaríkin.
Ungfrú alheimur fékk í sigur-
laun um 120 þús. dollara (jafn-
virði um 5 millj. ísl. kr.), minka-
kápu, Mazda-bifreið, íbúð í New
York í ár, reynslumyndatöku í
Hollywood og snyrtivörur fær
hún ókeypis næstu fimm árin.
Sérfræðingar um fegurðar-
samkeppni vekja athygli á
hversu langt stúlkur frá róm-
önsku Ameríku komust í keppn-
inni nú.
íslenski þátttakandinn í
keppninni, Halla Bryndís Jóns-
dóttir, komst ekki í undanúrslit.
Pólitísk deilumál skyggi
ekki á aðalefni fundarins
— sagði Maureen Reagan, formaður bandarísku sendinefndarinnar
Kvennaráðstefna SÞ f Kenýa:
KVENNARÁÐSTEFNU Sameinuðu þjóðanna var haldið áfram í
Nairobi, höfuðborg Kenýa, I gær og meðal þeirra sem fluttu erindi
var Sigríður Snævarr, sendiráðunautur, formaður íslensku sendi-
nefndarinnar. Erindi hennar hlaut mjög góðar undirtektir og var
m.a. viðtal við hana í sjónvarpinu í Kenýa.
Sigríður Snævarr rakti þróun
jafnréttismála á íslandi á kvenna-
áratugnum. Hún gat þess að kon-
ur eru nú 46% þeirra sem útskrif-
ast frá Háskóla íslands, en voru
20% í upphafi áratugarins. Þá
benti hún á, að hlutfallsleg at-
vinnuþátttaka íslenskra kvenna
væri ein hin hæsta í heiminum, en
á þessu ári hafa um 80% giftra og
ógiftra kvenna launatekjur. Hún
sagði, að stjórnmálaþátttaka ís-
lenskra kvenna hefði aukist og
konum meðal alþingismanna
fjölgað, en á hinn bóginn væru ís-
lenskar konur í áhrifastöðum mun
færri en konur í þeim löndum, sem
yfirleitt eru notuð til samanburð-
ar.
Guðríður Þorsteinsdóttir, for-
maður Jafnréttisráðs, sem situr
ráðstefnuna, sagði að ræða Maur-
een Reagan, dóttur Bandaríkja-
forseta og formanns bandarísku
sendinefndarinnar, hefði vakið
mesta athygli af þeim erindum,
sem flutt voru í dag. „Hún lagði
mesta áherslu á vandamál flótta-
kvenna, konur i þróunarlöndum,
baráttu gegn ólæsi og gegn ofbeldi
í fjölskyldunni," sagði Guðríður.
„Maureen Reagan tók fram að hún
hefði ekki á móti umræðu um póli-
tísk efni eins og kynþáttaaðskiln-
að og stöðu kvenna í Palestínu, en
taldi að þau mál væru ekki aðal-
efni ráðstefnunnar og kvaðst
óttast að þau mundu skyggja á
önnur mikilvægari. Hún lagði síð-
an áherslu á að hún vonaði að ráð-
stefnan mundi einkennast af
málamiðlunum og samstöðu."
önnur ræða, sem einnig vakti
mikla athygli, var ræða eiginkonu
Papandreou, forsætisráðherra
Grikklands, en hún er formaður
grísku sendinefndarinnar.„Hún
lagði áherslu á, að kvennabarátta
væri í eðli sínu pólitísk og það
þyrfti að taka öll pólitísk mál til
umræðu og umfjöllunar," sagði
Guðríður.
Samhliða Kvennaráðstefnu SÞ
er haldin ráðstefnan Forum ’85.
Að sögn Guðríðar voru friðarmál-
efni einkum til umræðu þar í dag,
en einnig var rætt um aðskilnað-
arstefnu stjórnvalda í Suður-
Afríku og efnið „konur og heil-
brjgði".
I frétt frá AP segir, að nokkur
hópur kvenna á ráðstefnu SÞ hafi
mótmælt því, að stjórnvöld i
Kenýa hafi látið fjarlægja margs
konar utangarðsfólk af strætum
Nairobi áður en kvennaráðstefn-
urnar þar hófust. Þar á meðal eru
vændiskonur og betlarar. Segir
fréttastofan, að fyrir mistök hafi
lögreglan í borginni einnig hand-
tekið og flutt á brott nokkrar
unglingsstúlkur á leið heim frá
skóla, sem hún hafi álitið að væru
vændiskonur. Hafi foreldrar
stúlknanna mótmælt þessu harð-
lega. Eftir Selmu James, sem situr
Kvennaráðstefnu SÞ, er haft að
henni þyki það hryggilegt ef ráð-
stefnan hafi leitt til þess, að fólk
hafi verið svipt lifibrauði og orðið
tilefni ofsókna. Guðríður Þor-
steinsdóttir sagðist hafa heyrt
orðróm um þessar hreinsanir er
hún kom til Nariobi, en kvaðst
ekki vita hvað hæft væri í þessu.
I stuttu máli
Kosiö í íran 16. ágúst
Nikósiu, 16. júlf. AP.
ÍRANIR ganga að kjörborðinu 16. ág-
úst næstkomandi og kjósa þá forseta,
að sögn Irna, hinnar opinbeni frétta-
stofu íran. Framboðsfrestur er til
næsta þriðjudags, en þá verða 35 dagar
til kosninga.
Forsetakosningar eru í íran fjórða
hvert ár. Með öllu er óvitað hvort Ali
Khamenei hyggst reyna að ná endur-
kjöri. Systir hans flýði til Irak í maí sl.
og gaf þá skýringu að hún flýði land
vegna gerræðislegrar aftöku á þúsund-
um manna í heimalandinu í nafni Is-
lams.
Verkfalli afstýrt í ísrael
Tvl Aviv, 16. júlí. AP.
ísraelska stjórnin, samtök vinnuveit-
enda og launþegasamtökin náðu sam-
komulagi árla í morgun og var allsherj-
arverkfalli því afstýrt á síðustu stundu.
Að sögn Haim Haberfeld, leiðtoga
launþega, féllst ríkisstjórnin á að falla
frá neyðarlögum sínum og hætta við
launalækkun og uppsögn 10.000 rfkis-
starfsmanna. Samkomulag varð um að
að ráða fram úr örðugleikum með sam-
ráði allra hagsmunaaðila.
Meira finnst af eitruöu víni
Bern, 16. júlí. AP.
EITRAÐ austurrískt vín hefur fundist í
áfengisverzlunum víða í Sviss og er
frekari athugun haldið áfram. Á aðra
milljón lítra af austurrískum vínum
hefur verið fjarlægt úr vínbúðum í
Vestur-Þýzkalandi frá því út spurðist
að eitrað vín hefði fundizt þar í landi.
Efnið sem fundizt hefur í austurrísku
vínunum er notað í frostlög fyrir mót-
orhjól. Austurrískir vínbændur viður-
kenna notkun efnisins til að bragð-
bæta ódýr vín.
Geimflug reynt 29. júlí
Kanavrralhörða, 16. júlf. AP.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að geimferjunni
('hallenger verði skotið á loft 29. júlí
næstkomandi, en hætta varð við geim-
skot sl. fostudag á síðustu stundu
vegna bilunar. Hinn 23. júlí verður
metið hvort geimskoti verði hugsan-
lega flýtt til 27. júlí eða frestað enn um
tvo daga, til 31. júlí.
Veður
víða um heim
LflBgst Havst
Afcureyri 10 altkýjaó
Amaterdam 12 19 skýjaó
Apena 22 31 haiðakirt
Berlin 13 22 skýjaé
BrUssel 13 21 skýjaó
Chicago 20 27 skýjaó
Dublin 7 16 tkýjað
Feneyjar þokumóóa
Frankturt 12 27 skýjaó
Faereyjar 12 léttskýjaó
Genl 20 28 akýjað
Helsinki 17 21 akýjaó
Hong Kong 28 31 heióskírt
Jerúsalem 16 27 hsióskirt
Jóhannesarb. 4 17 heióskírt
Kaupmannah. 17 18 heiðskírt
Lissabon 18 25 heióskirt
London 13 21 heióskirt
Los Angeles 21 31 skýjaó
Madríd 20 34 heióskírt
Malaga 27 hóiðskfrt
Mallorca 34 heióskírt
Miami 26 30 skýjaó
Moskva 12 24 heiðskirt
Nesr York 24 29 heióskirt
Nýja Dethi 24 32 heiðskirt
OsM 11 19 skýjaó
Paris 14 25 •kýjaó
Peking 22 31 hsióskirt
Perth 9 16 skýjsó
Reykjavik 12 skýjaó
Rómaborg 18 34 heiðakfrt
San Francisco 12 22 akýjaó
Stokkhólmur 18 24 •kýjaó
Sydney 12 15 heióakírt
Tókýó 22 30 akýjað
Vancouver 13 22 ekýjað
Varsjá 15 30 haióakírt
Vinarborg 18 30 haiöskirt