Morgunblaðið - 17.07.1985, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1985
47
Höröur Jóhannesson skorar hér eitt af þremur mörkum sínum í bikar-
leiknum gegn KR í síöustu umferö. Hann veröur í eldlínunni í kvöld.
Góður liðsstyrkur FH fyrir bikarslaginn:
Janus leikur með
gegn Þór í kvöld
í GCR barst Knattspyrnusam-
bandi íslands skeytl frá þýska
knattspyrnusambandinu þar
sem sagöi að Janus Guölaugs-
son væri laus allra mála hjá For-
tuna Köln og getur Janus því
leikið meö FH í kvöld gegn Þór
á Akureyri.
Þetta er fyrsti leikur Janusar
meö FH á þessu keppnistímabili
og er ekki aö efa aö hann mun
styrkja liöiö mikiö. Janus hefur
undanfarin ár leikiö meö Fortuna
Köln en hefur nú snúiö heim aftur
og leikur sinn fyrsta leik meö FH
í kvöld.
Janus varð löglegur meö FH
hér heima þann 14. júlí en skeyt-
iö frá Þýskalandi barst ekki fyrr
en í gær og því er ekkert sem
stendur í veginum fyrir aö hann
geti leikiö með FH-ingum. Hann
lék hér á árum áöur meö FH og
þjálfaöi þá um tima þannig aö
hann þekkir flesta leikmenn liös-
ins og ætti því ekki aö vera lengi
aö komast inn í hlutina hjá þeim.
• Janus Guölaugsson
Átta liða úrslit bikarsins halda áfram í kvöld:
Stefnir í spennandi leiki
í KVÖLO fara fram þrír leikir í átta
liöa úrslitum Bikarkeppni KSf,
Skagamenn taka á móti Fram,
Keftvíkingar fá Valsmenn í heim-
sókn og á Akureyri leika Þór og
FH. Allir þessir leikir ættu aö geta
oröiö spennandi og skemmtilegir
en þó veröur leikur ÍA og Fram aó
teljast stórleikur dagsins, sér-
staklega þegar höfö eru í huga
úrslit úr leik liöanna í 9. umferð
íslandsmótsins, en þar sigruöu
Skagamenn 6:2.
Leikur Skagamanna og Fram
hefst kl. 18.30, en hinir tveir leik-
irnir hefjast kl. 20.00. Leikmenn ÍA
sögöu eftir leikinn viö Fram í is-
landsmótinu aö bikarleikurinn yröi
örugglega mjög erfiöur, sérstak-
lega vegna þess aö ÍA vann svo
stórt í síöasta leik liöanna. Ekki er
ólíklegt aö þetta sé rétt ályktaö hjá
Skagamönnum, þeir veröa líklega
aö leika jafnvel og gegn Fram á
dögunum ef ekki betur ef þeir ætla
aö sigra og eiga möguleika á aö
halda í bikarinn góöa.
Fram lók ekki vel í leiknum á
Skaga og ef þeir ætla sér aö sigra
í dag veröa þeir aö leika betur en
þá. Leikurinn um daginn var slak-
Halldór Áskelsson
asti leikur Fram í sumar og ólíklegt
aö liöiö detti niöur á slíkan leik
tvisvar í röö. Vörn liösins var
hræðilega slök í leiknum á dögun-
um, miöjan var þokkaleg en lítiö
reyndiö á sóknarmennina. Friörik í
markinu var ekki heldur upp á sitt
besta.
í Keflavik veröur liklega einnig
hörkuleikur. Liöin mættust í 8. um-
feröinni og var leikiö aö Hlíöar-
enda. Valsmenn sigruöu 1:0 í
ágætis leik og er ekki aö efa aö
þeir hafa fullan hug á aö endurtaka
sigurinn í Keflavik í kvöld. Sigurjón
Kristjánsson hefur nú bæst viö í
liöi Keflvíkinga og mun þaö styrkja
liöiö mikiö. Fróölegt veröur aö sjá
hvernig honum tekst upp viö aö
„mata" framlínuna meö sínum
frábæru sendingum.
Á Akureyri leika Þór og FH en
þau iéku saman i Hafnarfiröi i 9.
umferðinni og sigraöi Þór þar 2:0
og veröur þvi aö teljast sigur-
stranglegra í leiknum í kvöld.
FH-ingum hefur þó bæst mikill
liösstyrkur frá þeim leik þar sem er
Janus Guðlaugsson, sem leikur
sinn fyrsta leik meö FH á þessu
keppnistímabili, en hann hefur nú
snúiö heim frá atvinnumennskunni
í Þýskalandi.
Þórsarar hafa ekki tapaö leik á
heimavelli i sumar og eru ákveðnir
í aö tryggja sér sæti i fjögurra liöa
úrslitum. FH-ingar eru þaö einnig
enda hefur gengi liösins ekki veriö
sem best í sumar og þeir því
ákveönir i aö komast eins langt og
þeir framast geta í Bikarkeppninni.
TERŒL«
Hannekur
hvem veg
áenda...
.ogáfram
f þörf
krefur
Nybýlavegi8 200Kópavogi S 91-44144
essemm