Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLl 1985
5
Morgunbladid/Ingvar Guðmundsson
Eldur í steikarpotti
ELDUR kom upp í raóhúsi f Jöklaseli í Breiðholti upp úr kvöldmat á
sunnudaginn. Virðist bálið hafa kviknað út frá steikarpotti á eldavél-
inni og var talsverður eldur í eldhúsinnréttingu þegar slökkviliðið kom
á staðinn. íbúðin var full af reyk og hlutust af nokkrar skemmdir, auk
þess sem eldhúsið skemmdist af eldi.
Tveir voru fluttir í slysadeild vegna gruns um reykeitrun en alvarleg
slys urðu ekki á fólki. Greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Hofsós:
Unnið að endurbótum
á elsta húsi landsins
Bjp, Höfdaströnd, 29. júli.
í NÆSTA mánuði er ákveðið
að elsta hús landsins, að því er
talið er, sem stendur á Hofs-
ósi, verði tekið til gagngerðra
endurbóta. Stefán Gunnars-
son, smiður á Hofsósi, er ráð-
inn af þjóðminjaverði til þessa
verks enda er þar brýn þörf á.
Nú munu aðeins vera tvö hús
uppistandandi, eitt á Grænlandi
og annað á Hofsósi, sem eru
nákvæmlega eins. Er talið að tólf
hús hafi verið sett niður á Græn-
landi og íslandi af sömu gerð,
líklegast um 1777. Þó hafði ég
heyrt, að efni í Hofsóshúsið hafi
verið flutt frá Noregi og sett upp
1735. Öll eru þessi tólf hús horfin
nema þessi tvö. Um 1955 hrundi
smávegis úr grunni Hofsóshúss-
ins og komu þá fram mjög gamlir
hollenskir peningar. Því miður er
ekki miklu fé veitt til viðgerðar á
Hofsóshúsi, en nauðsynlegt er að
varðveita þennan stórmerka
forngrip.
— Björn í Bæ
Áburðarfluginu lokið í sumar:
1.700 tonnum dreift
af áburði og fræi
LANDGRÆÐSLA ríkisins hef-
ur lokið áburðardreifíngu
sumarsins. Áburðarflugvélarn-
ar, Páll Sveinsson og TF-TÚN,
luku við dreifínguna sl. föstu-
dag. í sumar var dreift rúm-
lega 1.700 tonnum af áburði og
fræi, sem er svipað magn og í
fyrra.
Stefán H. Sigfússon sagði að
1.378 tonnum hefði verið dreift
með Páli Sveinssyni og 350 tonn-
um með TF-TÚN. Af þessu eru
460 tonn á Eyvindar- og Auð
kúluheiðar fyrir Landsvirkjun
vegna Blönduvirkjunar, rúm 600
tonn í friðaðar landgræðslugirð-
ingar, aðallega í Árnes-, Rang-
árvalla- og Þingeyjarsýslum, og
600 tonn á önnur svæði víðs veg-
ar um landið í samvinnu við
bændur og sveitarfélög. Atvinnu-
flugmenn flugu Páli Sveinssyni í
sjálfboðavinnu eins og áður, á
móti flugmönnum Landgræðslu-
nnar.
Sala f Grimsby:
Meðalverðið 50 krónur
í GÆR seldi Gideon 97,6 tonn
af þorski og ýsu í Grimsby
fyrir samtals 4,8 milljónir
króna. Það jafngildir að með-
alverð fyrir kflóið var krónur
49,63.
Þá voru seld 169 tonn af gáma-
fiski fyrir 5,8 milljónir. Meðal-
verðið er 36,26 krónur, sem kem-
ur til af að mikið var af fremur
lélegum kola í aflanum sem seld-
ur var.
í dag selur Þorri SU í Grims-
by, auk þess gámafisks sem verð-
ur seldur.
_______Nú qefst tækifæri til að fá____
toppvörur um hásumar og fyrir aöalhelgi
sumarsins á mjög góöu veröi
stendur sem hæst
verslunum
samtímis
I
í Garbó er mikið
úrval af skóm á út-
sölunni. Þær vörur
sem eru ekki á út-
sölunni eru með
10% afslætti.
22 Wsm