Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLl 1985 51 Ofneysla áfengis getur valdið brott- vísun úr Þórsmörk — Nýjar umgengnisreglur og aukin löggæsla til þess að stemma stigu við ölvun í Þórsmörk „Ástæda þess að við setjum þessar reglur er sú að það hefur borið um of á ölvun í Þórsmörk, enda hefðu þær ekki verið settar ef vandamál tengd meðferð áfengis hefðu ekki komið þarna upp,“ sagði Höskuldur Jónsson, forseti Ferða- félags Islands, í samtali við Morgunblaðið í tilefni nýútgef- inna reglna, sem kveða á um að ofneysla áfengis geti valdið brottvísun úr Þórsmörk eða synjun um dvalarleyfi þar. Spjaldið með umgengnisregl- unum í þórsmörk hefur verið prentað í fjögur þúsund eintök- um og verður því m.a. dreift í langferðabílum á leið til Þórs- merkur. Þeir aðilar sem standa að reglunum eru Skógrækt ríkis- ins, sýslumaðurinn í Rangár- vallasýslu, Ferðafélag Islands, Farfuglar, Útivist, Austurleið hf. og hreppsnefndir Fljótshlíðar- hrepps og Vestur-Eyjafjalla- hrepps. Munu þessir aðilar hafa samstarf um að framfylgja regl- unum, en í þeim segir einnig að hópar sem koma til dvalar í Þórsmörk þurfi að hafa sérstak- an fararstjóra er sé talsmaður hópsins. „Vandamálin er tengjast of- neyslu áfengis á þessum stað eru margs konar," sagði Höskuldur Jónsson. „það er ekki aðeins að mönnum sé ekki hættulaust að vera ósjálfbjarga þarna, því að þótt staðurinn sé fagur þá eru margar hætturnar, heldur er samferðafólki ami að slíku, og í þriðja lagi vill fylgja mikilli óreglu umgengni sem er lítt við- unandi á jafnfögrum stað og Þórsmörk er. Aðspurður hvernig reglunum yrði fylgt eftir sagðist Höskuldur búast við að það tæki einhvern tíma að festa þær í sessi en hins vegar hefðu bæði dómsmálaráðu- neytið og Ferðafélag íslands lagt fram fé til sérstakrar löggæslu í Þórsmörk. Þannig hefur lögregla verið í Þórsmörk um helgar að undanförnu og verður svo áfram. „Það er ásetningur allra, sem að þessu standa, að Þórsmörk verði fyrst og fremst staður þar sem fólk getur notið hvíldar í ró og næði og þeirrar fegurðar og útivistar sem þar gefst tilefni til við venjulegar aðstæður. það er tilgangur langflestra sem í Þórsmörk koma og óreglu, sem VELKOMIN í ÞÓRSMÖRK Hjálpið okkur vernda Þórsmörk meft þvi aft hat.i eítiríarandi í huga. 1. Skiljift ekki eitir rusl né urftift þaft á víftavangi. 2. Kveikift ekki elda. 3. Ríiift ekki upp grjót. Hlaftift ekki vörftur. 4. Graíift ekki upp jurtir. 5. Haiift næturró á tjaldsvæftinu írá kl. 00:30- 07:00 Ofneysla áfengis getur valdift brottvísun úr Þórsmörk efta synjun um dvalarleyfi. LEYFI þarf til aft tjalda á eftirtöldum svæftum: Leyfift veitir: Langjddl Ferftafélag íslands Básum Útivist og Skógrækt ríkisins F.ndum Skógrækt ríkisins Slyppufiili Farfuglar og Skógræt ríkisins Húsadal Austurleift hí. og Skógrækt ríkisins Hópar sem koma til dvalar í Þórsmörk þurfa aft hafa sérstakan fararstjóra er sé talsmaftur hópsins. Hvolsvelli, 5. júlí 198S. Skogra-kl ríkisins Sýslumafturinn í Rangár\'allasvslu Fcrft.itV*lag íslamls F.trtuglar Útivisl Auslurlcift lii. Ftr«*|>|)MK*ÍiHl Fl|öt*.|ilift.irhicpps HnigiMiciiHl Vcslui-I v jaijallalifc|>(>s Spjaldið með umgengnisreglum I Þórsmörk. kemur í veg fyrir þann tilgang og bitnar á saklausu fólki, er ekki hægt að una,“ sagði Höskuldur Jónsson. / " Frúin hlær MIKLATORG ATH. Tökum alla bíla á skrá og einnig vörubifreiöir. Komið og skoðið tilboðspallinn BiLflsoui GCJÐFINNS Við Miklatorg — Sími 621055 Fcest nú í bókaverslunum um land allt Arleg handbók húsbyggjenda er komin út í fjórða sinn stœrri og efnismeiri en nokkru sinni MEÐAL EFNIS:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.