Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 30. JÚLÍ 1985 27 ívar Guðmundsson Það er talið til kosta íslenska kjötsins, að það hefir góðan lit, er ekki of feitt, eins og t.d. nýsjál- enskt lambakjöt. Lærin eru sér- staklega talin heppileg vegna mátulegrar stærðar, 3—5 pund eða svo. Stærð og þungi skrokk- anna er talið til ágætis, þar sem það fellur undir heitið „unglamb", sem talið er mikilsvert með tilliti til markaðs. Fryst eða ófrosið Þeir Sigurgeir og Gunnar Páll sögðu að mikið hefði verið rætt um kosti og galla frysts kjöts og ófrysts. Það er ekki nokkur vafi á að bandarískar húsmæöur kjósa ófrosið þegar þess er kostur, en sætta sig við frosið, ef annað er ekki fáanlegt. Það eru nú mögu- leikar á að flytja kjöt langar leiðir ófrosið, en kælt. Jafnvel frosið kjöt væri talið heppilegra að hafa í svokölluðum „crayovac“-umbúð- um, en það eru loftþéttar umbúðir, sem geyma matvæli óskemmd miklu lengur en áður þekktist. Hvað úr þessu verður hjá okkur íslendingum er ekki gott að segja, en það yrði til batnaðar og örygg- is, hvort sem um er að ræða frosið eða kælt. Dregur úr framleiðslu bandarísks lambakjöts Fullyrt er að draga muni til muna úr lambakjötsframleiðslu Bandaríkjamanna á næstu árum. Hinsvegar hefir orðið meiri ásókn á bandaríska markaðinn frá Ný- sjálendingum og Ástralíu- mönnum. Jafnvel Svíþjóð og Danmörk eru nú farin að flytja inn lambakjöt til Bandaríkjanna (sjá meðfylgjandi rammagrein.) Ástralía er nýfarin að flytja inn ófrosið lambakjöt til Bandaríkj- anna. Telja sumir, að það verði til þess að gera öðrum innflytjendum lífið leitt, en það þarf ekki að vera til baga, ef rétt er að staðið. Ástralíukjötið þykir ekki gott. Nýsjálendingar eru farnir að selja sitt kjöt i smáskömmtum, t.d. kót- elettur og aðra bita í neytenda- pökkum. Það hefir gefist mátulega vel. Islenska lambakjötið á sér framtíð, ef menn vilja það. Kunn- ugum er ljóst, að það verður erfitt að vinna markað fyrir íslenska dilkakjötið, en það er hægt, ef réttum aðferðum er beitt við þá markaðsöflun. Svo er að sjá, sem við höfum gert flest þau mistök, sem hægt er að gera í þessu efni. Þau mistök verða ekki til einskis, ef við lærum af reynslunni og bætum okkar ráð. Verðlagið Þegar spurt var um verðlag, litu þeir Sigurgeir og Gunnar Páll hvor á annan og brá fyrir brosi út í annað munnvikið. „Eins og er,“ var svarið, „er verðlagið ekki að okkar skapi“. í fyrra fengu Nýsjálendingar og aðrir innflytjendur lambakjöts að jafnaði sem svarar 80 krónum fyrir kílóið. Innlenda lambakjötið er talsvert dýrara. íslendingar eiga von á betra verði ef þeim tekst að sannfæra neytendur um að islenska kjötið sé betra en annaö aðflutt, eða jafnvel eins gott ef ekki betra en það inn- lenda. En þá verður einungis að velja úrvalskjöt til útflutnings og mistök mega ekki eiga sér stað. En þótt þetta sé allt fyrir hendi er björninn ekki unninn fyrr en við höfum leiðrétt þá galla, sem eru á framleiðslu, meðferð og geymslu lambakjöts á íslandi. Síðan þarf að sannfæra bandaríska neytend- ur um gæði kjötsins. — Það er umfangsmikið verkefni á upplýs- inga- og auglýsingasviðinu. „Við höfum satt að segja farið með löndum,“ segja þeii- félagarn- ir að lokum „þegar spurt hefur verið um framleiðslukerfi okkar. Það væri niðrandi fyrir okkur að það kæmist í hámæli á erlendum vettvangi.“ Við, sem höfum fylgst með þeim tilraunum, sem gerðar hafa verið til þess að koma íslensku dilka- kjöti á markað hér vestra, þykj- umst finna að nú verði þáttaskil í þeim málum, ef teknar verða upp þær framleiðslu- og söluaðferðir, sem þeir félagar virðast ætla að leggja til. Höfundur er fyrrverandi adalræðia- maður íslands í New York. Helga Kress Grænlendingur, (einnig karlmað- ur), einn Sami (kona), og að end- ingu sex íslendingar, sem allir eru karlmenn. Af þessu 21 skáldi eru því aöeins tvær konur. Og engin íslensk kona hlýtur þá náð fyrir augum framkvæmdastjórnar að vera talin í röð fremstu ljóðskálda hér á landi. Þetta er þeim mun hlálegra þar sem vaxtarbroddinn í íslenskri ljóðlist er einmitt að finna í ljóða- gerð kvenna. Má þar t.a.m. nefna skáld eins og Vilborgu Dagbjarts- dóttur, Nínu Björk Árnadóttur, Þuríði Guðmundsdóttur, Þóru Jónsdóttur, Ingibjörgu Haralds- dóttur og Steinunni Sigurðardótt- ur. Sú íslenska ljóðlist sem ætlun- in er að kynna umheiminum er því ekki einkynja, heldur sýnir hún engan veginn rétta mynd af þvi besta í íslenskri ljóðagerð í dag. Það er-leitt til þess að vita, að menntamenn og skáld, að öðru jöfnu málsvarar mannréttinda og jafnréttis, skuli gera sig bera að öðrum eins fordómum í garð kvenna og hér kemur fram. Það er því full ástæða til að hvetja konur til þess að koma hvergi nærri þessari hátíð þeirra. Að fylla þar hvorki áheyrendabekki, né vera meðal þeirra „fjölmörgu íslensku skálda“ sem eiga að rölta á milli vinnustaðanna og sjúkrahúsanna með ljóð sín, meðan skáldbræð- urnir spóka sig á Parnassi og kynna ljóð sín umheiminum. Helga Kress er dósent í almennri bókmenntafræði við Hiskóla ís- lands. Uganda: AF ERLENDUM VETTVANGI eftir GUÐMUND MAGNÚSSON Ættbálkarígur í hernum leiddi til valdaráns ÞAÐ VORU að öllum líkindum ættbálkadeilur innan stjórnarhersins í Uganda, sem leiddu til þess að Milton Obote forseta var steypt af stóli á laugardag. Þeir menn sem tóku völdin tilheyra Acholi-ættbálknum í norðurhluta landsins, en forsetinn fyrrverandi er af ættbálki Langi- Hermenn af Acholi-ætt- bálknum telja, að þeim hafi verið mismunað. Langi-menn hafi hlotið bestu embættin í hernum og ekki þurft að beita sér eins í bar- áttu við skæruliða, sem berjast gegn stjórnvöldum, og Acholi- menn. Álitið er að flestir þeirra sem fallið hafa í viðureigninni við skæruliðana hafi verið af Acholi- ættbálknum. Óánægjan innan hersins hafði verið að grafa um sig um nokkurt skeið og fyrr í þessum mánuði sauð upp úr. Þá gripu Acholi- hermenn í norðurhluta Uganda til vopna gegn Langi-hermönnum og stefndu suður til höfuðborgarinn- ar Kampala. Mótspyrna reyndist ekki mikil og árla á laugardag var lesin yfirlýsing í ríkisútvarpið þar sem tilkynnt var að stjórnarbylt- ing hefði verið gerð í landinu. Á mánudag var svo frá því greint, að Tito Okello, hershöfð- ingi, yfirmaður hers Uganda, hefði formlega verið settur í emb- ætti sem æðsti valdamaður lands- ins. Okello, sem er 71 árs að aldri, er af ættbálk Acholi-manna. Orð- rómur hafði verið á kreiki um nokkurt skeið að hann væri farinn norður í land og ætlaði að liðsinna hersveitum, sem gert höfðu upp- reisn gegn stjórn Obotes. Tvívegis steypt af stóli Milton Obote hefur nú tvívegis verið steypt af stóli, en ólíklegt þykir að hann eigi afturkvæmt að þessu sinni. Hann var forsæt- isráðherra er Uganda hlaut sjálfstæði frá Bretum árið 1962 og tók við sjálfstæðisviðurkenn- ingu bresku stjórnarinnar úr höndum hertogans af Kent við hátíðlega athöfn f höfuðborginni 9. október það ár. Liðsforingi af Kakwa-ættbálknum, Idi Amin að nafni, dró breska fánann niður og hinn nýja fána Uganda að húni. Fjórum árum síðar veitti Amin Obote aðstoð er hann steypti Frederick Mutesa, þáverandi forseta, af stóli. Obote varð forseti og nam úr gildi stjórnarskrá þá, sem Bretar höfðu fært hinu unga ríki. Valdaferill hans að þessu sinni stóð aðeins í fjögur ár. Hinn 25. janúar 1971 rændi Idi Amin, sem þá var orðinn hershöfðingi, völd- um og naut til þess stuðnings hersins. Á meðan sat Obote þing leiðtoga ríkja innan breska sam- veldisins í Singapore. t fyrstu var valdatöku Amins fagnað, enda Obote óvinsæll fyrir ofsóknir sem hann hafði staðið fyrir á hendur Baganda- ættbálknum, stærsta ættbálk Uganda. Afstaða manna til hans breyttist fljótlega, enda átti hann eftir að verða einhver grimmasti harðstjóri sem saga Afríku á þessari öld kann frá að greina. Ógnarstjórn hans leiddi til dauða um 300 þúsund Ugandamanna og var stór hluti þessa fólks veginn af hermönn- um Amins á þeim átta árum, sem hann sat við stjórnvölinn. Kosningasvik? Hinn 11. apríl 1979 var endi bundinn á harðstjórn Amins. Það voru ugandiskir uppreisn- armenn og útlagar, sem steyptu stjórninni, og nutu til þess at- beina hermanna frá Tanzaníu. Amin flúði land og fékk hæli í Saudi-Arabíu sem pólitískur flóttamaður. Þar dvelst hann enn, en kveðst tilbúinn að snúa heim aftur og gefa nýjum vald- höfum ráð. Vilji þeir á hinn bóg- inn ekki þiggja þau segist hann geta hugsað sér að berjast gegn þeim. í kosningunum í Uganda í des- ember 1980, hinum fyrstu frá þvi Iandið hlaut sjálfstæði, vann t i 1 * ■’7T^ h Sögufræg mynd: Milton Obote, þé'?randi forsætisráðherra Uganda, tek- ur við sjálfstæðisviðurkenningu Breta úr höndum hertogans af Kent 9. október 1962. Milton Obote svonefnt „Alþýðuráð Uganda" yfirburðasigur og Milton Obote sneri heim úr útlegð í Tanzaníu og tók á ný við forsetaembætti, sem hann gegndi fram á laug- ardag. Fljótlega eftir að Obote komst til valda kom hann á bandalagi milli Langi-ættbálksins og Acholi-ættbálkins, sem ekki reyndist traust, og hóf baráttu gegn Baganda-ættbálknum. Ymsir héldu því fram, að svik héfðu verið i tafli í kosningunum og helstu andstæðingar Obote hófu skæruhernað gegn honum. í þeim hópi eru Bagandi-menn og menn af Banyankole-ætt- bálknum fjölmennastir, en leið- togar skæruliða segjast hins vegar andvígir ættbálkaríg og stefna að þjóðarsáttum. Þeir hafa líklega 9 þúsund manns undir vopnum, en til samanburð- ar má geta þess að í stjórnar- hernum eru um 40 þúsund manns. Helsti leiðtogi skæruliða er Yoweri Museveni, fyrrum varnarmálaráðherra, en hann hefur dvalið í Svíþjóð sl. þrjá mánuði. Museveni segist ekki hafa átt beina aðild að valdarán- inu, en vera reiðubúinn til sam- starfs við hina nýju leiðtoga, eins og þeir hafa raunar opinb- erlega óskað eftir. Hann kveðst hafa gefið hermönnum sínum fyrirmæli um að hætta bardög- um þar til í ljós kemur hver framvinda mála í landinu verð- ur. „Þetta eru menn sem ég þekki vel,“ sagði hann í viðtali við AP-fréttastofuna á mánu- dag. „Við börðumst saman gegn Amin. Ég veit hverjar skoðanir þeirra eru.“ Maður, sem þekkir vel til í Ug- anda, sagði í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins á mánu dag, að hann ætti ekki von á þvi að miklar breytingar yrðu í landinu fyrst í stað. Hann taldi hins vegar líklegt, að til upp gjörs kæmi milli hinna nýju valdhafa innan nokkurra mán- aða og benti m.a. á að Tito Okello væri maður aldurhniginn og ólíklegt að hann gæti setið lengi á valdastóli. í yfirlýsingu, sem stjórn Okello sendi frá sér í byrjun vik unnar, sagði, að hún stefndi að þvi að sameina ættbáika lands ins og hygðist efna til frjálsra kosninga. Slíkar yfirlýsingar valdaránsmanna láta kunnug- lega í eyrum, en reynslan ein sker úr um hvort þetta eru orðin tóm eða fyrirheit sem staðið verður við. I því efni virðist hins vegar engin ástæða til bjartsýni Heimildir: The Times, AP o.fl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.