Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JtJLÍ 1985 49 Eyvindarstaðaheiði: 140 hross rekin án mikilla árekstra Hestar ferðamanna setja strik í reikninginn varðandi beitarálagið SKAGFIRÐINGAR hófu að reka hross sín á Eyvindarstaðaheiði um helgina, og fór uppreksturinn fram með friði og spekt að því er best er vitað, þó formlegt samkomulag hafi enn ekki verið gert um það mál. Um 140 hross verða rekin á heiðina í sumar, sem er mikið færra en farið hefur á heiðina undanfarin ár. Morgunblaðift/Olfar Forráðamenn Flugleiða og fulltrúar de Havilland-verksmiðjanna við Dash 8-vélina á ísafjarðarflugvelli. Dash 8- flugvél í heimsókn á ísafirði Íaafirði, 29. júlí. ÞAÐ birti yfir ísfirðingum um há- degisbilið í dag þegar skínandi hvít flugvél, með hvítum og rauðum röndum, sveif inn fjörðinn undir hækkandi þokubökkum. Þarna var á ferðinni Dash 8-flugvél frá kanad- ísku de Havilland-flugvélaver- ksmiðjunum. í vélinni voru forráða- menn Flugleiða í boði flugvélaverk- smiðjunnar, en fsland er síðasta landið sem vélin heimsækir í heims- reisu sinni. í örstuttu spjalli sagði Sigfús Erlingsson hjá Flugleiðum að vél- in væri ekki á vegum Flugleiða enda engar ákvarðanir enn verið teknar um endurnýjun á innan- landsflugflota félagsins. Flugvélin er of dýr fyrir núverandi fargjöld á innanlandsleiðum en eldsneytis- verð hefur þar mikið að segja og það gæti breyst mikið á skömmum tíma. Hann sagði að vélin væri innréttuð fyrir 38 farþega en fjölga mætti sætum í 42. Eftir örstutta dvöl á ísafjarðar- flugvelli lagði vélin upp aftur til Reykjavíkur. Farþegar sem áttu pantað far með morgunflugi Flug- leiða til Reykjavíkur horfðu á eftir flugvélinni í sólskini og logni, en máttu bíða þar til síðdegis vegna skorts á flugvélum, en álagið á Föðurnafn misritaðist f VIÐTALI sem nýlega birtist í Morgunblaðinu við Jón í Skálanesi misritaðist nafn prestsins á Stað sr. Jóns Þorvaldssonar (ekki Þórðar- sonar). Þegar Jón í Skálanesi hringdi til að vekja athygli á þessu gat hann þess til gamans að bamið, sem svo erfiðlega gekk að koma i heiminn að þurfti að sækja lækni í tvísýnu, var strákur og hann er nú ráðu- nautur Strandamanna, Brynjólfur Sæmundsson. Hann áréttaði líka til skýringar að á meðan bílvegur- inn var ekki kominn fram hjá Skálanesi og farið um Gufudals- háls, eins og getið var um í grein- inni, þá var þar ekki farið á bílum heldur eins og menn ferðuðust fyrir bílaöld. flugflota Flugleiða er svo mikið, hér fyrst í morgun, getur orðið að ef einhver seinkun verður á margra tíma bið eftir flugvél. flugi vegna veðurs, en þoka var Úlfar ftala var gerð fyrir heiðina í vet- ur að kröfu Bólstaðarhlíðarhrepps í Austur-Húnavatnssýslu, sem á heiðina á móti Seylu- og Lýtings- staðahreppum í Skagafjarðarsýslu. Hrepparnir, Landgræðslan og Bún- aðarfélag íslands áttu í vor viðræð- ur um framkvæmd ítölunnar. Landgræðslan og Skagfirðingarnir gerðu samkomulag um takmarkað- an upprekstur hrossa á heiðina, en Bólhlíðingar hafa ekki getað fallist á samkomulag með slíkum ákvæð- um. Þrátt fyrir að formlegur samn- ingur hafi ekki verið gerður er bú- ist við að upprekstur hrossanna fari fram með friði og spekt í sumar. Hafsteinn Lúðvíksson fjallskila- stjóri Seyluhrepps sagði að Skag- firðingar hefðu ekki notað sinn kvóta á heiðinni að fullu fyrir sauðfé og rekið hross upp í það sem upp á vantaði. Hann sagði að þeir hefðu tekið á leigu jörð í Svartár-. dal og rækju 150—180 hross þang- að, og leystu sín mál þannig. Hafsteinn sagði að óvenju mikið væri um ferðamenn á hestum á Ey- vindarstaðaheiði í sumar, ekki síst í hópum á vegum fyrirtækja sem skipuleggja slíkar ferðir yfir Kjöl. Hann sagði að í þessum ferðum væru margir hestar, sem einhvers staðar þyrfti að beita, og væru það einkum hólf við gangnamannaskál- ana og uppgræðslusvæði sem fyrir valinu yrðu. Hann sagði að ekki væri hægt að amast við þessum ferðalögum, en þetta væri orðinn snar þáttur í beitarálaginu á heið- inni, sem þyrfti að koma skipan á. Sagði hann að fullur skilningur virtist á þessu máli hjá þeim sem skipulegðu þessar ferðir, og hefðu forráðamenn eins fyrirtækisins haft samband og óskað eftir sam- komulagi við eigendur heiðarinnar. ___ hagkvæmur auglýsingamiðill! úrvalsm A meðan hin ráðsetta Sally Stanford blður eftir úrslitun- um I bæjarstjórakosningum I Sausollto I Kalifornlu, leitar hugur hennar aftur til bannáranna. Þá var hún ung kona nýsloppin út af betrunarhæli eftir tveggja ára vist. Þá hét hún Marcie Bowman og var ákveöin I aö hagnast á ástandinu. Hófst hún þvl handa við aö brugga og selja ólöglegt áfengi. Marcie kynnist hinum upprennandi lög- fræðingi Ernest De Paulo og tekur bónorði hans. Juliu systir Ernestos, llkar ekki við Marcie og gerir allt til að losa fjölskylduna við hana. Að lokum kemst Julia yfir lögregluskýrslur sem gefa óyggjandi vlsbendingu um for- tlð Marcie. Ernest keppir að þvl að verða fylkisstjóri og neyðist þvl til aö fórna Marcie og syni þeirra John David á stalli framans. Marcie kaupir Iftiö hótel. Lögreglan sér nú kærkomið tækifæri til að knésetja Marcle og Ernesto, sem er oröinn frægasti verjandi glæpamanna I San Fransisco. Marcie er ákærö fyrir að reka vændishús, en dómurinn fellur henni I vil. Engu að slður eru kjaftasögurnar komnar .á kreik og mannorð hennar aö engu oröið. Nú þegar fyrra llferni Marcie er hvort sem er orðiö opinbert, heldur hún ótrauö á vit nýrra ævintýra. Hún tekur sér nafnið Sally Stanford og opnar stórglæsilegt veitinga- og þjónustuhús, þar sem menn fá slna villtustu drauma uppfyllta. Aðalhlutverk: Dyan Cannon (Master ol the Game) Armand Assante (Unfaithfully Yours, Evergreen) Zohra Lampert Susan Tyrell Magnþrungin mynd sem fjallar á opinskáan hátt um angistina sem fylgir f kjölfar þess að ung stúlka veröur fórnarlamb drukkins ökumanns. Hvernig bregðast ættingjarnir við hinum misk- unnarlausu og óréttlátu örlögum ungrar frísklegr- ar stúlku sem framtlðin virtist brosa við? Hvað gerist i hugskoti ökumannsins sem valdur er að dauða stúlkunnar? Getur hann nokkru sinni réttlætt gerðir slnar fyrir sjálfum sér eða öðrum? Knýr réttlát reiði föður stúlkunnar til að leita sökudólqinn uppi oq_hefna sin á honum? Aðalhlutverk: James Farentino (Dynasty) Don Murray Penny Fuller Millie Perkins Einkaréttur á íslandi Dreifing tUÍAorhf Daniel Corban sem er nýkvæntur Elizabeth, kemur til lögreglunnar I smábænum Skuykill og tilkynnir aö eiginkonan sé horfin. Elizabeth Corban er vellauðug og á engan annan ætt- ingja að en eiginmanninn. Nokkru eftir hvarf- ið birtist kona nokkur I fylgd prestsins á staðnum og heldur þvl fram að hún sé hin týnda eiginkona. Daniel Corban kannast ekki við konuna og vlsar staðhæfingu hennar algerlega á bug. Levine rannsóknarlögreglumaður tekur að sér að komast að sannleikanum. Ef Daniel Corban er að segja satt, hljóta presturinn og konan að hafa komið hinni réttu Elizabeth Corban fyrir kattarnef. Tilgangur þeirra virð- ist þvl vera sá að komast yfir eignir Corban- hjónanna. Daniel Corban heldur fast viö framburö sinn, en konan heldur þvl fram að Daniel sé óreglusamur I meira lagi og stórgleyminn að auki. Getur hún fært óyggjandi rök fyrir full- yrðingum slnum sem styrkja stöðu hennar. Aður en Daniel Corban áttar sig er hann á góöri leiö með að verða sturlaöur og á yfir höfði sér að vera sakaður um morð. Aöalhlutverk: Jack Klugman Elizabeth Ashley James Franciscus Joe Fabiani r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.