Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLl 1985 Saudi-Arabar gera íranska píla- grfma afturreka Nikosía, Kýpur, 29. júli. AP. SAMBÚÐ Saudi-Araba og írana versnaði mjög í dag, eftir að stjórn Saudi- Arabíu fyrirskipaði að tveimur farþegavélum með íranska pflagríma til Mekka innanborðs skyldi snúið frá og ekki leyft að fara á leiðarenda. Mohammed Khatami, sem fer með málefni islam í írönsku ríkis- stjórninni, sagði þetta fyrirlitlega atlögu gegn islam. íranir til- kynntu einnig að vegna þessara aðgerða Sauda myndi hætt við all- ar ferðir íranskra pílagríma til Mekka á þessu ári. Tilkynningin um málið kom flatt upp á menn, því að í gær, sunnudag, hafði íransstjórn kunngert að Saudar hefðu ákveðið að leyfa 150 þúsund írönskum pílagrímum að koma til Mekka i ár. Ekki er vitað hvað varð til að breyta þessari ákvörðun, en sam- búð ríkjanna hefur verið mjög stirð síðustu ár og meðal annars hefur það vakið reiði Sauda að ír- anskir pílagrímar hafa oft og ein- att efnt til sérstakra pólitískra fundahalda í Mekka. Færeyingar hand- taka þrjá Breta Þórahöfn, Færeyjum, 29. júlí. Frá frétUritara MorgunblaAHÍnH, Jogvan Arge. STJÓRNANDI grindhvalaveiða í Vestmanna í Færeyjum, lét um helgina handtaka þrjá Breta sem voru að reyna að koma í veg fyrir að grindhvala- vaða kæmist inn í höfnina í Vestmanna. Mennirnir þrír voru á hraðbáti, en grindahvalaformaðurinn fór um borð i hann og stöðvaði til- raunir Bretanna. Lögreglan var síðan kölluð á staðinn og síðan komu fleiri lögreglumenn frá Þórshöfn. Um grindhvalaveiðar í Færeyj- um gilda sérstakar reglur og formaðurinn hefur heimild sam- kvæmt færeyskum lögum til að handtaka fólk sem truflar veið- arnar. Lögreglan segir að mennirnir þrír hafi verið leiddir í allan sannleika um að reyni þeir að endurtaka leikinn, muni þeim taf- arlaust verða vísað úr landi. Fimm daga hálendisferð Brottför alla miðvikudaga í sumar frá og með 10. júli J. DAGUR: Ekið Sprengisand og gist í Nýjadal. 2. DAGUR: Ekið áfram norður, Bárðardal, Goðafoss til Mývatns og gist þar. 3. DAGUR: Mývatns- og Kröflusvæði skoðuð, ekið síðdegis til Ak- ureyrar og gist þar. 4. DAGUR: Ekið til Hveravalla og gist þar. 5. DAGUR: Frá Hveravöllum til Kerlingarfjalla, Gullfoss, Geysis, Laugavatns, Þingvalla og til Reykjavíkur. INNIFALIÐ: Fullt fæði, leiðsögn og gisting í tjaldi. Einnig er hægt að gista í skálum og á hótelum. VERÐ AÐEINS 6.900.- Allar nánari upplýsingar í síma 687912 og hjá ferðaskrifstofu \ BSÍ, Umferðarmiðstöðinni, sími 22300. 1 Snæland Grímsson hf. Feröaskrifstofa. Sími 687912. Kvöld- og helgarsími: 75300 og 83351 Metsölubku) á hverjum degi! Prinsessur ræöast við Prin.se.ssan af Wales ræðir við aðra prinsessu, „ísprinsessuna", eins og segir í útlendum myndatexta með þessari mynd. Díana prinsessa fylgdist með sýningu skautadansaranna Jayne Torvill og Christopher Dean í Wembley-höllinni í lok síðustu viku. Hitti Díana skautaparið að máli að tjaldabaki fyrir upphaf sýningarinnar. f fylgd Díönu var hertogaynjan af Norfolk, en hún er lengst til hægri á myndinni. ÓT-sjúklingur frá Argentínu lést í Kína Pekine, 29. jálí. AP. KÍNVERSK heilbrigðisyflrvöld skýrðu frá því í dag að feróamaður frá Argentínu hefði látist í Kína úr ónæmistæringu (AIDS) og ákveðið hefði verið að gera víðtækar varúð- arráðstafanir til að koma í veg fyrir smitun sjúkdómsins. í skýrslu heilbrigðisráðuneytis- ins sagði að fjölskylda mannsins hefði vitað að hann var með sjúk- dóminn og hefði hann verið greindur í honum í Bandaríkjun- um. Maðurinn hefði og verið sam- kynhneigður og ýmislegt hefði bent til að hann hefði vitað að hann ætti skammt eftir ólifað. Hann var 34 ára og veiktist fyrir sex vikum og var þá settur á sjúkrahús í Peking með háan hita, svitakóf og andþrengsli. Lyf léttu ekki líðan hans. „Sjúklingurinn hafði á þeim tíu dögum sem hann dvaldi hér sam- band við ýmsa og fór víða. Hann kann að hafa stofnað heilsu margra hér í hættu," sagði tals- maður heilbrigðisyfirvalda. Ekki er skýrt frá því hvenær maðurinn lézt, en sagt að kona hans hafi komið til Kína og flutt heim jarðneskar leifar hans. Sihanouk hótar Rauðu khmerunum Pekinx, 29. júlí. AP. NORODOM Sihanouk, prins og fyrrverandi þjóðhöfðingi í Kamb- odíu, hefur hótað því að hætt verði samstarfi þriggja skæruliðasam- taka sem berast gegn víetnamska hernum í Kambódíu, eftir að her- menn Rauðu khemeranna felldu 38 hermenn Sihanouks. Sihanouk hefur sent skeyti um málið til Asean-samtaka sex Suðaustur- Asíuríkja, en samtökin hafa barizt fyrir því að fundin yrði pólitísk lausn á stöðugum bardögum í Kambódíu. Kihanouk I STUTTU MALI Thailenzkur ráðherra framdi sjálfsmorö Baagkok, 29. júlí. AP. DAMRONG Lathapipat, vísinda- og orkumálaráðherra Thailands, skaut sig árla mánudags, örfáum mínútum áður en ríkisstjórnar- fundur samsteypuflokkanna fjögurra sem fara með völd í Thailandi, átti að hefjast. Samkvæmt fréttum sat ráð- herrann í bifreið sinni úti fyrir stjórnarráðshúsinu og var að lesa dagskrá ríkisstjórnarfundarins. Skyndilega dró hann upp byssu beindi henni að höfði sér og hleypti af. Hann var snarlega fluttur í sjúkrahús en var þá lát- inn. Ekki er vitað um ástæðu fyrir sjálfsmorðinu, að sögn samráðherra Damrong, en haft eftir óstaðfestum heimildum að hann hafl undanfarið verið áhyggjufullur og kvíðinn vegna ótilgreindra verkefna í ráðuneyti sínu. Fjölgar í Lýöræöis- flokkasambandinu Wasfaington, 29. júlf. AP. FLOKKAR frá Tyrklandi og Lúx- emborg fengu aðild að Evrópu- sambandi lýðræðisflokka, á alþjóðaráðstefnu þessara flokka sem stendur yflr í Washington. Það voru tyrkneski Föðurlands- flokkurinn sem Turgut Ozal, for- sætisráðherra stýrir og Kristilega lýðræðissambandið í Lúxemborg. ísraelar gera árás á búöir skæruliöa í Líbanon Beirút, 29. júli. AP. ÍSRAELSKAR herþotur gerðu í dag árásir á bækistöðvar Palest- ínuskæruliða í Bcka-dal, sem er í Austur-Líbanon og á yflrráða- svæði Sýrlendinga. Er talið að árásirnar hafl verið gerðar í hefndarskyni við árásir shíta um helgina. Ekki var vitað hve marg- ir létu líflð í loftárás ísraela, en Sýrlendingar sögðu að börn og konur hefðu verið á meðal þeirra sem létust. Átök blossuðu upp í Trípólí um helgina, en þar hafði allt verið með kyrrum kjörum fjóra daga. Tvær sprengjur sprungu og leyn- iskyttur gerðu árásir á borgara í borginni með þeim afleiðingum að einn maður lét líflð. Bardagar brutust einnig út milli tveggja öfga fylkinga mú- hameðstrúarmanna og kristinna manna. Sigldu átökin i kjölfar frétta þess efnis að tveir helstu leiðtogar múhameðstrúarmanna og kristinna hefðu komist að samkomulagi um að taka saman höndum til að reyna að koma á friði í landinu. Óeirðir tvær nætur í Kalundborg Kaupmannahöfn, 29. júlí. AP. TIL ÓLÁTA Itom á ný í Kalund- borg í Danmörku við hótel íranskra flóttamanna aðfaranótt sunnudags. Lögreglan barðist þá í nokkra klukkutíma við tvö hundruð manna hóp ungmenna sem létu óspart í Ijósi andúð sína á að írönsku flóttamennirnir væru á svæðinu og væri réttast að reka þá úr landi. Stjórnmálamenn hafa lýst áhyggjum sínum vegna þcssara atvika sem urðu tvær nætur í röð við hótelið og sagt að kynþátta- hatur sé augljóslega að magnast í landinu. Talsmenn lögreglu gera minna úr málinu og segja að þarna hafl einkum verið að verki bjórdrukkin ungmenni. Bent er þó á að flest séu ungmennin at- vinnulaus og hafl látið í Ijós gremju yflr því að erlendir flótta- menn taki atvinnu frá dönskum. Allmargir voru handteknir bæði kvöldin og nokkrir urðu fyrir minniháttar meiðslum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.