Morgunblaðið - 30.07.1985, Síða 22

Morgunblaðið - 30.07.1985, Síða 22
22 MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1985 Sovésk skip sigldu inn f lögsögu Noregs: Norömenn mótmæla Ösló, 29. jálf. Frá Ju Erik Usre, fréiuriur* MorpinblaAsins. NORSKA utanríkisráðuneytid íhugar nú að aenda sovéskum stjórnvöldum formlega mótmsla- Danir selja rafmagn til Noregs DANIR hafa í vor «g sumar selt Norðmönnum rafmagn. Er rafmagn- ið flutt um neðansjávarstreng í Skagerak, frá Tjele á Jótlandi til Kristiansand í Noregi. Það eru jósk og fjónsk orkuver, sem leggja Norð- mönnunum til rafmagn. Ástæðan fyrir þessari orkusölu Dana til Noregs er vorkuldar í Noregi og lítil úrkoma í vetur. Snjóþekja á fjöllum var lítil og mikill munur á daghita og næt- urhita varð til þess að snjórinn þjappaðist á fjöllum og lítið rann úr honum með þeim afleiðingum að lítið safnaðist í uppistöðulón orkuvera. Jafnan fyllast lónin í leysingum á vorin, en í maílok voru þau ekki nema hálffull. Dan- ir seldu Norðmönnum milli 15 og 20.000 megavött á viku um neð- ansjávarkapalinn. Veður víða um heim Lmg»t Hj»st Akurayri 11 •(•kýjaö Amstcrdwn 13 20 rtgning Aþena 23 38 h«tö«kírt BarcaJona 32 léttskýaö Bartín 16 25 akýfaó BrOsaM 7 11 heiöskýrt Chícago 16 32 •kýj^ Dublin 11 17 rigning Fonoyiar 30 þokumóöa Frankturt 16 30 rígning Ganf 16 29 akýjaó Holamki 13 17 akýjaó Hong Kong 26 32 haióakýrt Jorúsalem 17 32 haróakirt Kaupmannah. 15 21 akýiað La« Palmaa 25 léttskýjaó Liaaabon 16 23 hoióakirt London 15 19 rigning Loa Angoloa 19 29 akýjað Lúxomborg 17 skúrir Malaga 32 akýiað Maliorca 34 Mttakýiaó Mrami 25 30 akýjoó Montreal 16 26 akýjoð Moakva 13 23 hoióokýrt New Vorfc 19 28 hoióokýrt Oaló 14 22 akýjaó Paría 15 22 akýjaó Peking 23 30 akýjaó Raykiavik 11 •úld Ríó da Janorro 12 28 hoióakýrt Rómaborg 20 34 heióakýrt Stokkhótmur 13 20 hoióakýrt Sydnoy 14 23 hoióakýrt Tókýó 25 34 haióakýrt Vínarborg 18 30 skýjað hórahðtn 10 skýiaó orðsendingu vegna þess að sex herskip Sovétmanna sigldu í leyf- isleysi inni í Tanafjörð í Finnmörk síðdegis á fostudag. Herskipin höfðu tekið þátt í flotaæfingum Sovétmanna á Atl- antshafi, og færðu sig sennilega nær landi vegna mikils sjógangs. Voru þau sex tíma innan norskr- ar lögsögu, en sigldu síðan á haf út. Sovésk skip hafa áður framið samskonar lögbrot, og hafa Norðmenn venjulega átalið sov- ésk stjórnvöld fyrir þau. í alvar- legri tilvikum hefur sovéska sendiherranum í Noregi þó verið afhentar harðorðar mótmæla- orðsendingar. V »■ AP/Símamynd Um 300 útlagar frá Eystrasaltsrfkjum fóru I mótmælagöngu gegn Sovétríkjunum í Helsinki á sunnudag. Hér sjást lögreglumenn fjarlægja mótmælendur fyrir framan sovéska sendiráðið. Meðal þeirra sem tóku þátt í mótmælaað- gerðunum var sovéski andófsmaðurinn Vladimir Bukovsky. RáÓherrafundurinn hefst f Helsinki í dag: Óvenjuleg mótmæli gegn Sovétríkjunum Hetekiaki, 29. júlí. Frá Birni Bjarnasyni. ÓVENJULEGA sjón gat að líta á götum Helsinki í gær, sunnudag, þegar landflótta fólk frá Eystrasaltsríkjunum fór þar í mótmælagöngu gegn Sovét- ríkjunum. Slíkt hefur ekki gerst í höfuðborg Finnlands síðan innrásin var gerð í Tékkóslóvakíu 1968. Tilefnið nú var að tíu ár eru liðin frá undirritun Helsinki-samþykktarinnar, en um helgina og í dag komu hingað utanríkis- ráðherrar hinna 33 Evrópuríkja, Bandaríkjanna og Kanada, sem undirrituðu samþykktina. Gífurlegar öryggisráðstafanir eru vegna fundarins og er allri umferð lokað á leiðinni milli flugvallarins og innborgar Hels- inki þegar ráðherrarnir fara þar um. Aðeins tveir utanríkisráð- herranna sem eru hér nú voru í hópi þeirra, sem undirrituðu sam- þykktina á sínum tíma, þeir Geir Hallgrímsson og Leo Tindemans frá Belgíu. í tilefni þess var óskað eftir því Geir Hallgrimsson efndi til fundar með blaðamönnum við komuna til Helsinki-flugvallar. Utanríkisráðherra sagði að menn hefðu vissulega vænst þess að Helskinki-samþykktin bæri meiri árangur en raun hefði orðið í tiu ár. Á hitt bæri að líta að samþykktin væri enn í gildi og ríkin ættu að virða þau markmið sem þar eru sett svo sem að því er varðar mannréttindi. Geir Hall- grímsson lét í ljós þá skoðun að aðild íslands að Atlantshafs- bandalaginu væri ekki aðeins nauðsynleg fyrir varnir og sjálf- stæði íslands heldur stuðlaði einn- ig að öryggi allra Norðurland- anna. Meðal ræðumanna á mótmæla- fundinum hér í gær voru tveir sem eru íslendingum kunnir, þeir Vla- dimir Bukovsky, sovéski útlaginn, Soyétmönnum boðið að vera viðstaddir kjarnorkutilraun Wukin^lon/Moflkvt, 29. júlí. AP. Bandaríkjastjórn hafnaði í dag til- lögum Sovétstjórnar um bann við kjarnorkuvopnatilraunum, en bauð Sovétmönnum að vera viðstaddir eina tilraun á kjarnorkuvopnum í Nevada. Larry Speakes, blaðafulltrúi Hvíta hússins, sagði að boðið væri engum skilyrðum háð og væri til þess ætlað að sýna í verki vilja Bandarikjamanna til að leggja sitt af mörkum til þess að ná fram árangri í afvopnunarviðræðunum í Genf, en þær liggja niðri um þessar mundir. Gorbachev, aðalleiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, lýsti því yf- ir í dag að Sovétríkin muni láta af kjarnorkuvopnatilraunum frá og með 6. ágúst, 40 árum eftir að kjarnorkusprengjunni var varpað á Hiroshima, til 1. janúar og leng- ur ef Bandaríkjamenn sýndu sam- starfsvilja. Yfirlýsing Gorbachevs var gefin út skömmu eftir að Bandaríkja- stjórn bauð stjórn Sovétríkjanna að senda nefnd til þess að fylgjast með kjarnorkutilraun í Nevada- eyðimörkinni. Haft er eftir háttsettum emb- ættismanni Reagan-stjórnarinnar að kjamorkutilraunastarfsemi Sovétmanna hafi færst í aukana síðasta mánuð og sagði hann greinilegt að þeir hafi verið að undirbúa sig undir tilraunahléð. Líbýa: Viðurkennir Ugandastjórn Tripólí, 28. jálí. AP. RÍKISÍ?rjÖRN Líbýu viðurkenndi hina nýju stjórn Uganda á sunnudag, að sögn opinberu fréttastofunnar í Líbýu. Stjórn Miltons Obote var steypt af stóli á laugardag eftir valdarán nokkurra yfirmanna hersins undir stjórn Brasilios Olaras Okello, liðs- foringja. og Andres Kung, en bók um ætt- land hans, Eistland, hefur komið út á íslensku i þýðingu Davíðs Oddssonar. Lögreglan tók þrjá mótmælend- ur fasta. Engir kunnir finnskir stjórnmálamenn lögðu mótmæl- unum stuðning, en í Helskinki- blaðinu Hufvudstatsbladet segir í dag að Pinnar hafi greinilega vax- ið í áliti hjá mörgum á Vestur- löndum með því að leyfa mótmæl- in gegn Sovétríkjunum í Helsinki. Á það er bent í blaðinu að hefðu finnsk stjórnvöld lagt bann við því að stuðningsmenn frjálsra Eystrasaltslanda fengju að láta til sín heyra á götum Helsinki hefði verið litið á það af ýmsum sem skýrt dæmi um „Finnlandíser- íngu“. Sovésk stjórnvöld hafa harðlega ráðist á ríkisstjórnir Danmerkur og Svíþjóðar fyrir að leyfa þessum mótmælendum að fá aðstöðu í löndum sínum, meðal annars fyrir skipið sem þeir hafa ferðast á um Eystrasaltið. Á hinn bóginn vekur það athygli að Sov- étmenn hafa ekki gagnrýnt finnsku ríkisstjórnina í þessu samhengi. Skip mótmælendanna, Eystrasaltsstjarnan, hélt frá Helsinki í gærkvöldi. Fundur utanrikisráðherranna hefst í fyrramálið, þriðjudag, en Mauno Koivisto forseti Finnlands setur hann. Síðan flytja ráðherrar einstakra landa 35 ræður þangað til á fimmtudag. Sá tími verður einnig notaður til þess að ráðherr- arnir geti átt einkaviðræður. Með- al annars munu þeir George Shultz, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, og Eduard Shevardna- dze, utanríkisráðherra Sovétríkj- anna, hittast í fyrsta sinn á mið- vikudaginn. Vestur-Þýskaland: Fjórir Líbýumenn reknir úr landi HamborK, 29. júlí. AP. VESTUR-ÞÝSK stjórnvöld hafa rekið fjóra líbýska stjórnarerindreka úr landi að sögn vestur-þýsks vikurits. Eru þeir sakaðir um að hafa haft í undirbúningi glæpaverk gegn líbýsk- um útlögum, sem berjast gegn stjórn Mohammers Khadafy. Kemur þetta fram í nýjasta tölu- blaði tímaritsins Der Spiegel. Þar segir ennfremur að starfsmenn vestur-þýska utanríkisráðuneytis- ins hafi farið leynt með málið af ótta við að Líbýustjórn mundi grípa til hefndaraðgerða gegn vestur- þýskum sendiráðsmönnum í Trip- ólí. Talsmaður vestur-þýska utanrík- isráðuneytisins neitaði að segja hvort frétt Der Spiegel væri á rök- um reist, þar sem það bryti f bága við starfsreglur að tjá sig um mál af þessu tagi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.