Morgunblaðið - 30.07.1985, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLl 1986
25
Ronald Reagan:
„Læt ekki krabbameins-
hræðslu eitra líf mittu
Washington, 28. jnlí. AP.
RONALD Rcagan sagði í viðtali,
sem birt var á sunnudag, að hann
myndi ekki láta hræðslu við krabba-
mein hafa áhrif á líf sitt, þrátt fyrir
að aexlið, sem fjarlægt var úr ristli
forsetans, reyndist illkynjað.
Viðtalið, sem birtist í tímaritinu
Time, var það fyrsta sem forsetinn
hefur gefið síðan hann gekkst
undir uppskurð 13. júlí sl. Reagan
Garcia tekinn
við völdum í Perú
Lima, Perú, 29. júlí.AP.
MIKLAR öryggisráðstafanir voru gerðar í Lima í Perú í dag, þegar Alan
Garcia sór embættiseið sem nýr forseti landsins. Við vígsluathöfnina hét
Garcia að reyna viðræður við öfgafulla vinstrisinnaða skæruliða til að binda
enda á margra ára ófrið í landinu.
Hundruð hermanna, vopnaðir vélbyssum, stóðu vörð í miðborg Lima og
búið var að reka fólk af götunum þegar hinn 36 ára gamli forseti fór þar um
á leið til vígsluathafnarinnar. Garcia er yngsti maðurinn sem gegnir embætti
forseta í sögu Perú.
Á þökum húsa allt í kringum
Armas-torgið, þar sem stjórnar-
ráð Perú er til húsa, mátti sjá
skyttur úr hernum og einnig á göt-
um niðri. Bílasprengja sprakk
fyrir utan höfuðstöðvar herfor-
ingjaráðsins á laugadag og önnur
slík sprakk fyrir utan innanríkis-
ráðuneytið á fimmtudag. Skæru-
liðar vinstrimanna höfðu hótað að
myrða bæði Garcia og erlendar
sendinefndir, sem voru viðstaddar
athöfnina, þ.á m. forseta sex rikja
í Suður-Ameríku og fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, James Bak-
Garcia sagði í ræðu sinni að
hann hefði í hyggju að setja á fót
friðarviðræðunefnd sem myndi
leitast við að ná samningum við
skæruliðana og einnig ætti nefnd-
in að hraða réttarhöldum yfir
þeim sem grunaðir eru um hryðju-
verk, svo þeir sem saklausir væru,
yrðu leystir úr haldi sem fyrst.
Ijondon, 211. júlí. AP.
var spurður hvort hann myndi
láta völdin í hendur George Bush,
varaforseta, ef hann þyrfti að
gangast undir aðra aðgerð, en
Reagan sagði að samkvæmt upp-
lýsingum frá læknum sínum, væri
önnur slík aðgerð ekki í sjónmáli.
Hann sagði einnig að kæmi sú
tíð, að hann teldi sig ekki lengur
líkamlega hæfan til að gegna emb-
ætti forseta, þá yrði hann fyrstur
til að segja frá því og víkja frá
völdum.
Reagan sagði að læknar hans
hefðu sagt sér að krabbamein
hefði ekki verið greint annars
staðar í líkamanum og teldist
hann því ekki lengur með krabba-
mein eftir að æxlið var fjarlægt.
„En,“ sagði forsetinn, „ég er jafn
berskjaldaður fyrir því eins og
hver annar.“
Forsetinn sagði að lokum að
uppskurðurinn hefði breytt for-
gangsröð hluta í lífi sínu og m.a.
hlakkaði hann mikið til viðræðn-
anna við Mikhail Gorbachev, leið-
toga Sovétríkjanna í Genf í nóv-
ember nk.
AP/Símamynd
Tilkynnt um veikindi Hudsons
Vinkona og talsmaður bandaríska leikarans Rock Hudson, Yanou Coll-
art, sést hér tilkynna fréttamönnum að leikarinn hafi fengið ónæmistær-
ingu og hafi veriö kunnugt um sjúkleika sinn í rúmt ár. Leikarinn dvelst
sem stendur á ameríska sjúkrahúsinu í París, en I athugun er að fiytja
hann í hersjúkrahús í eigu Frakka í París. Læknar hans hafa ekkert látið
hafa eftir sér um veikindi Hudsons, annað en að starfsemi lifrarinnar er
með óeðlilegum hætti.
Forsetinn sagði að hann væri
tilbúinn til að íhuga sakaruppgjöf
fyrir vinstrisinnaða skæruliða, en
sagði einnig að hann myndi beita
þyngstu refsingum við þá sem sek-
ir gerast um hryðjuverk. Rúmlega
5.000 manns hafa látið lífið í
óeirðum í Perú undanfarin ár og
einnig hafa 2.000 manns horfið
sporlaust, en samkvæmt skýrslum
alþjóðlegra mannréttindahreyf-
inga, eiga öryggissveitir hersins
sök á hvarfi þeirra.
Aprista, flokkur Garcia, hefur
átt í útistöðum við herinn siðan
flokkurinn var stofnaður árið
1924, og sagði Garcia að hann
myndi ekki líða öryggissveitunum
að beita pyntingum og ólögmæt-
um aftökum í viðureign sinni við
skæruliða.
Fyrirrennari Garcia, Fernando
Belaunde Terry, hefur staðhæft að
ekki hafi nein brot á mannréttind-
um verið framin þau fimm ár sem
hann gegndi embætti forseta.
Boy George og hljóm-
sveit grýttir á sviði
BOY GEORGE, breski söngvarinn, sem þekktur er fyrir áberandi klæða-
burð, farða og framkomu, fékk óvenjulegar viðtökur á hljómleikum, sem
hann og hljómsveit hans héldu í Aþenu í síðustu viku. Hópur manna gerði
aðsúg að hljómsveitinni og grýtti hana
„Þeir hafa enga kímnigáfu,"
sagði Boy George við komuna frá
Grikklandi, en hann sagðist ekki
mundu láta atburðinn hindra sig f
að leika aftur i Grikklandi.
„Þetta voru bara stjórnleysingj-
ar og kynþáttahatarar. Þeir höt-
uðu alla; blökkumenn, gyðinga og
hverja sem er,“ sagði hann. Rúm-
lega 35.000 manns voru saman
komin til að hlýða á tónlist Cult-
ure Club, hljómsveitar Boy
George, í Aþenu, þegar 500 manns
tóku sig saman og grýttu hljóm-
sveitarmeðlimina með flöskum,
grjóti og múrsteinum. Tólf manns
særðust í átökum við lögreglu.
„Það þarf meira en flöskur og
múrsteina til að stoppa mig,“
sagði Boy George. „Ég hefði farið
aftur á sviðið hefði ég fundið
hlífðarhjálm."
Hópurinn hrópaði ókvæðisorð
að bassaleikaranum Mickey Craig
þegar hann kom á sviðið, en hann
er svartur. „Það voru ekki Grikk-
irnir sem þoldu mig ekki, heldur
bara þessi hópur vandræðageml-
sviðinu.
Boy George
inga. Ég er ákveðinn í að fara
þangað aftur,“ sagði söngvarinn
að lokum.
MAZDA T 3500 er ný gerð af sterkbyggðum
vörubíl, sem ber 3.6 tonn á grind. Vélin er 3500
cc, 86 DIN hö og gírar eru 5 ásamt niðurfærslu-
gír. Húsið er stórt og bjart (veltihús), bægHeg
sæti eru fyrir 2 farþega auk ökumanns og fjöðr-
unin er mýkri og þýðari en gerist í bílum af þess-
ari gerð.
Ríkulegur búnaður fylgir MAZDA T 3500, svo
sem:
Vökvastýri • Veltistýri • Mótorbremsa • Aflúr-
tak frá vél (PTO) • Vfirstærð af dekkjum (700 x
16) • Yfirstærð af rafgeymi • Bakkflauta • Úti-
speglar beggja vegna • Luxusinnrétting •Tau-
áklæði á sætum • Þaklúgur • Hnakkapúðar • -
Litað gler í rúðum • Halogen aðalljós • Aflmikil
miðstöð • Viðvörunartölva og margt fleira.
Við framleiðum sérlega vandaða vörukassa úr áli
á þessa bíla. Kassarnir eru með stórum hleðslu-
dyrum á hlið og gafli og eru þeir fáanlegir á ýms-
um byggingarstigum.
Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita
fúslega allar nánari upplýsingar.
Opið laugardag frá kl.10-4
Sýningarbíll á staðnum
STERKARI EN
GERIST OG GENGUR
BÍLABORG HF
Smiðshöföa 23 sími 812 99