Morgunblaðið - 30.07.1985, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 30. JÚLÍ 1985
31
Margir voru svangir og nóg var til af pylsunum.
Verkamannasambandið skorar á VSÍ og SÍS
að semja um bætt kjör fiskvinnslufólks:
Óskiljanleg hagfræði
í fiskvinnslunni hér
1>AÐ ER óskiljanleg hagfræði, að fiskur skuli unninn í ódýrar
umbúðir vegna manneklu þegar Ijóst má vera, að hægt er að fá
fjölda af þjálfuöu fiskverkunarfólki til starfa ef launakjör væru
bætt. Hagnaður fiskvinnslunnar yrði mikill, því verðmismunur á
erlendum mörkuðum milli dýrra og ódýrra pakkninga er oft á tíöum
meiri en allt kaup verkafólks, segir m.a. í áskorun frá framkvæmda-
stjorn Verkamannasambands
ins og sjávarafurðadeildar SÍS.
Framkvæmdastjórn VMSÍ segir
að í ár hafi jafnt og þétt hætt
störfum í fiskvinnslu þrautþjálfað
fólk vegna lélegra launakjara og
réttindaleysis. Fjölmörg frystihús
starfi ekki nema með hálfum af-
köstum og afleiðingar þessa séu
geigvænlegar fyrir þjóðarbúið í
heild — hundruð milljóna í er-
lendum gjaldeyri hafi tapast því
ekki sé hægt að vinna fisk í dýrari
pakkningar vegna manneklu.
ids til Vinnuveitendasambands-
I áskorun framkvæmdastjórnar
VMSÍ segir: „Þrátt fyrir þetta
neyðarástand neita VSÍ og sjávar-
afurðadeild SÍS að semja um bætt
kjör fiskvinnslufólks, þó það væri
beinn hagur frystihúsanna og
þjóðarinnar í heild. Þess í stað er
haldið áfram að setja úrvals fisk í
ódýrar pakkningar er gefa aðeins
hluta af þeim gjaldeyri sem ann-
ars væri hægt að fá, því markaðir
eru nægir. Einu viðbrögð þessara
aðila eru að fá erlent vinnuafl,
sem er mun dýrara. Þetta erlenda
fólk fær fríar ferðir til landsins og
frá og frítt fæði og húsnæði en
hefur yfirleitt enga starfsþjálfun í „
fiskvinnslu. Til eru dæmi um
byggðarlög, þar sem starfar fólk
við fiskvinnslu frá 10—15 þjóð-
löndum."
VMSÍ skorar á Vinnuveitenda-
sambandið og SÍS að ganga nú
þegar til samninga við Verka-
mannasambandið um bætt kjör
fiskvinnslufólks „til að firra þjóð-
félagið því milljónatjóni, sem
hlýst daglega af núverandi
ástandi," eins og segir í áskorun
framkvæmdastjórnar Verka-
mannasambands íslands.
Margir vildu spreyta sig á þrautabrautinni.
Upprennandi listamenn og nútímaverk þeirra.
Jafnvægið hjá þessura unga manni
var í fínu lagi.
3. Kristín Þórarinsdóttir og
Sigrún Logadóttir
Skalla bolta á milli, yngri:
1. Eggert Gíslason og
Olafur T. Brynjólfsson
2. ólafur Helgi Ingason og
Guðlaugur Guðlaugsson
3. Daníel Scheving og
Reynir Scheving
Skalla bolta á milli, eldri:
1. óskar Þorvaldsson og
Gústaf Teitsson
2. Rúnar Gíslason og
Hallmundur Albertsson
2. Þorsteinn Gíslason og
Geir S. Jónsson
3. Óskar M. Alfreðsson og
Gill Gómez
Halda bolta á lofti, yngri:
1. Ólafur Helgi Ingason
2. Ólafur Tryggvi Brynjólfsson
2. Guðmundur Garðar
2. Guðlaugur Guðlaugsson
3. Hjalti Þór
Halda bolta á lofti, eldri:
1. Sigurður Valgeir Guðjónsson
2. Kristinn Hafliðason
3. Ásbjörn Jónsson
Sippa, yngri:
1. Sara Guðmundsdóttir
2. Sigríður Ólafsdóttir
3. Gyða Hrund Jóhannesdóttir
Sippa, eldri:
1. Hildur Lúthersdóttir
2. Díana Júlíusdóttir
3. Elín Gunnarsdóttir
Hitta bolta í mark, yngri
1. Ólafur Brynjólfsson
2. Grímur Axelsson
3. Þór Arnarsson
Hitta bolta í mark, eldri:
1. Einar Birgisson
2. Davíð Stefánsson
3. Halldór Jónsson
100 metra hlaup, yngri:
1. Arnar Le Macks
2. Kristinn Eysteinsson
3. Höskuldur Hreinsson
100 metra hlaup, eldri:
1. Daði Sigmarsson
2. Ingibjörg Sigfúsdóttir
3. Kjartan Gísli Björnsson
Skagafjörður:
Heyskaparhorfur glæðast
Bæ, Höróaströnd, 29. júlí.
GLÆÐSTT hafa vonir Skagfirðinga
um heyskap þar sem raikið náðist
inn síðustu tvo daga. Skúrir komu
þó sums staðar sem töfðu fyrir, en
mjög er þetta misjafnt. í Fljótum,
þar sem kal í túnum er allverulegt
hefur heyskapur sums staðar gengið
erfiðlega og jafnvel á sumum bæjum
rétt byrjaður heyskapur.
Það eru ekki veruleg hlýindi
ennþá þótt ekki sé eins mikil
nepja og um langan tíma var áður.
Kartöfluspretta mun líta sæmi-
lega út og veit ég til að nýjar séu
borðaðar. Silungsveiði í sjó og
vötnum hefur yfirleitt verið lítil,
en áta í sjó á Skagafirði er sýni-
lega mikil. Togarar afla vel, þó
ekki sé gert eins mikið úr því og í
eyfirskri útgerð. Hjá smábátum er
frekar tregt fiskirí. Mikil umferð
er á vegum enda eru skagfirskir
vegir taldir góðir og vel við haldið.
Erum við Austur-Skagfirðingar
þó farnir að líta vonaraugum til
malbiks.
Björn í Bæ
Metsölublað á hverjum degi!
CITROÉN^
Notadur Citroen
næst besti kosturinn
Höffum til sölu nokkra notaöa bíla
Citroén BX 19 TRD (diesel) 1984, verd 550 þús.
Citroen BX 16 TRS 1984, verö 520 þús.
Citroen BX 16 TRS 1983, verö 450 þús.
Citroen GSAP Pallas 1982, verö 280 þús.
Af öörum tegundum
Volvo 245 GL sjálfsk. Vökvastýri.
Subaru 1600 1979, 4ra dyra.
Samkomulag meö greiöslur.
Höfum alltaf til sýnis í Lágmúlanum nýja bíla.
Citroén Axel og Citroén BX.
Komiö, skoöiö og reynsluakiö.
t
Opið á laugardögum kl. 14.00—17.00.
Síminn er 82739 og 81555.
Globus,"
lAl.Mlltl i SIMlllfi'j'j
/