Morgunblaðið - 30.07.1985, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLl 1985
Unglingar vinna að hreinsun og snyrtingu.
Dalvlk:
Vaxandi áhugi á garðrækt
Dalvfk, 24. júlí.
MIKILL áhugi er á Dalvík fyrir
hvers konar garðrækt og hefur það
vakið athygli ferðamanna hversu
víða eru fallegir og vel hirtir garð-
ar við íbúðarhús í bænum. Þrátt
fyrir þráláta kuldatíð í sumar er
gróður gróskumikill og býr að
góðu sumri ’84 og hagstæðum
vetri.
Bæjaryfirvöld hafa reynt að
fylgja eftir þessum áhuga íbúa á
umhverfismálum með því að
laga til og snyrta opin svæði í
eigu bæjarins. Hafa unglingar á
Dalvík unnið mikið starf í sumar
við að fegra og snyrta. Hafa þau
tekið að sér að slá og klippa lóðir
þeirra sem þess óska og hafa
einkum rosknir ibúar notfært
sér þá þjónustu. Auk þessa hafa
þau unnið að merkingum og
hreinsun gatna o.m.fl.
Miklar framkvæmdir hafa
verið hjá hita- og vatnsveitu í
sumar við lagfæringu og endur-
nýjun lagna. Vegna þessara
framkvæmda hafa komið sár í
malbik og gangstéttir en fram-
kvæmdatími til þessara hluta er
oft stuttur hér Norðanlands og
verður því að nýta sumarið til
þess.
Konur úr deild Garðyrkjufé-
lags fslands á Dalvík lögðu hönd
á plóginn til snyrtingar á bæj-
arlandinu kvöld eitt í síðustu
viku. Tóku þær sig til og skáru
upp njólastöngla sem gert höfðu
sig heimakomna á ýmsum
opnum svæðum í bæjarlandinu
og komu konurnar þannig í veg
fyrir að njólinn sáði fræjum sín-
um víðar.
Nokkuð hefur borið á lúsafar-
aldri í trjám og hefur verið beðið
eftir manni til að úða tré með
skordýraeitri, en Garðyrkjufé-
lagsdeildin á tæki til þeirra
hluta. Á Dalvík er enginn sem
má fara með þessi tæki og hefur
þurft að fá garðyrkjumann frá
Akureyri en sérstakt leyfi þarf
til að mega fara með eiturefnin.
Fréttaritarar
Konur úr Garðyrkjufélagsdeildinni á Dalvfk hreinsa njóla úr bæjarlandinu.
Það fá
Selfossi, 24. júlí.
ÞEGAR allt er á fullu við af-
greiðslu á mat í Aratungu starfa
þar 12 konur við matseld og bera
fram matinn til gestanna.
„Við erum allar hér úr sveit-
inni og það fá færri konur vinnu
en vilja, þó það sé nú ekki vegna
þess að við hérna í sveitinni höf-
um ekki nóg við að vera heima,"
sögðu þær Auður Kristjánsdótt-
ir frá Felli og Kristín Sigurðar-
dóttir frá Haukadal sem starfa
við matseldina og að bera fram
til gestanna. „Við erum ánægðar
með vinnuna og gerum þetta
mikið vegna tilbreytingarinnar."
— Soðin lúða á
matseðlinum í
Aratungu
Á matseðlinum var soðin lúða
með súpu á undan og kaffi og
íslensku konfekti á eftir.
„Fólkinu líkar maturinn af-
skaplega vel og það er mjög
gaman að þjóna því,“ sögðu þær
Auður og Kristín, „en auðvitað
vildum við nú kannski koma út
lambakjötinu okkar en þetta
fólk fær víst nóg af góðu kjöti í
sínu heimalandi en síður góðan
fisk.“
Dagurinn í dag var ósköp
rólegur að sögn þeirra Auðar og
Kristínar enda einsetið, en sal-
urinn í Aratungu tekur 280
manns í sæti. Helmingur át-
anna, en svo kalla þær matar-
pantanir á einum degi, er tvö-
faldur, þ.e. fullur saíur með
klukkutíma millibili og þá er
eins og gefur að skilja líf í tusk-
unum við að vaska upp og leggja
aftur á borðin.
Sig. Jóns.
færri konur vinnu en vilja
Starfsstúlkurnar í Aratungu sem ekki láU sig muna um að afgreiða 500 manns í hádegismat á einum degi.
Kristín Sigurðardóttir og Auður Kristjánsdóttir fyrir uUn Aratungu þess
albúnar að Uka á móti 280 manns í mat.