Morgunblaðið - 30.07.1985, Síða 42
42
MORGUNBLADID, ÞRIÐJUDÁGUR 30. JÚLf 1985
3.
ffclk í
fréttum
Yul Brynner á dóttur, Vikctoríu, sem er orðin þekkt fyrirsæta.
Abby Dalton er stolt af dóttur sinni, Kathleen Kinnmont Smith, sem er þegar
oröið nokkuð þekkt þar vestra.
Sachito Parker vill ekki notfæra sér
ættarnafn sitt, MacLaine eftir móð-
urinni Shirley, því hún vill komast
áfram af eigin rammleik og er þegar
farin að fá hlutverk.
Shari Belafonte syngur eins og pabb-
inn, Harry, en kýs þó frekar að vera
í kvikmyndunum.
Klúbbur hinna teþyrstu dreka
ó íbúar Stöðvarfjaröar séu ekki ýkja fjöl-
mennir er ýmislegt þar um aö vera. Ung-
mennafélagiö Súlan er taliö meö þvi öflugra á
Austurlandi og listalíf er meö blóma.
Einn klúbbur þeirra á Stöövarfiröi kallar sig
Klúbb hinna teþyrstu dreka. í honum eru sjö ungir
herramenn sem fannst samkvæmislífi þeirra
Stöðvarfiröinga ábótavant og ákváðu aö breyta
um betur.
Piltarnir hittast einu sinni í viku og sötra te í
makindum úr sérstökum bollum sem skreyttir eru
með dreka. Þaöan er heiti félagsins komiö. „Við
ræöum þjóöþrifamál og hlustum á tónlist striösár-
anna, aöallega Glen Miller,“ sagöi Páll Stein-
grímsson, einn af félögunum.
Félaqarnir eru vandlátir á gesti fundanna og
enginn fær tesopa nema hann sé meö hálsbindi,
helst sem breiöast og skræpóttast. „Þegar vió
fréttum aö Vigdís Finnbogadóttir forseti kæmi til
Stöðvarfjaröar í heimsókn sinni um Austurland
skrifuðum viö henni bréf og buöum henni aö fá
sér tebolla okkur til samlætis. Hún heföi orðið
fyrsta konan sem nyti þess heiöurs, en í svarbréfi
sem hún sendi okkur þótti henni leitt aö þurfa aö
afþakka boöiö vegna þröngrar tímasetningar á
dagskránni."
Klúbbur hinna teþyrstu dreka hefur veriö viö
lýöi frá því snemma í vor og sögöu félagarnir aö
líklega yröi hlé á fundahöldum næsta vetur þar
sem hver færi í sina átt. Tveir þeirra eru náms-
menn í Reykjavík, sumir stunda sjómennsku og
aörir eru í skólum um landiö.
Ljésmynd/Þorkell
Fjórir af sjö félögum kfúbbs hinna teþyrstu dreka. Talið frá vinstri: Albert Jensson, Páll Steingrímsson, Emii
Skúlason og Sólmundur Friðriksson. A myndina vantar Björgúlf og Svavar Hávarðssyni og Jón Sólmundsson.
Þeir voru úti á sjó í þessu samsæti.
PABBI OG/EÐA MAMMA
Nú megið þið fara
að passa ykkur!
Hvort það er staöreyndin að fegurð og hæfíleikar gangi í erfðir
vitum við ekki, en hitt er víst að foreldrar þessara ungu
„stjarna" mega fara að gæta sín. Börn ýmissa Hollywood stórstirna
eru farin að feta í fótspor foreldranna og þessi kynslóð virðist vera
alveg eins framagjörn og hafa sama dug og þor og uppalendurnir
hafa haft til að bera.
Jamie Lee Curtis er á leiðinni upp á toppinn og komin langt f það að vera
stærra nafn en móðir hennar, Janet Leith, hefur nokkru sinni verið.
Tahnee Welch er komin í kvikmyndaiðnaðinn.
COSPER
COSfER