Morgunblaðið - 06.10.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.10.1985, Blaðsíða 3
Frumvarp sjávar- útvegsrádherra: MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER1985 3 Smábáta- eigendur mótmæla Morgunblaðinu befur borist álykt- un frá fundi smábátaeigenda á Hell- issandi og í Ólafsvík: „Fundur haldinn á Hellissandi 3.10. ’85 mótmælir hér með frum- varpi sjávarútvegsráðherra um stjórn veiða á bátum undir 10 tonnum þar sem við teljum veður- far takmarka sókn okkar nægilega mikið. Einnig teljum við þetta frumvarp alvarlega aðför að til- verurétt okkar, sem hluta að fisk- veiðiflota landsins og óskum eftir svari frá ráðherra um það hvort hann telji þessa útgerð eiga rétt á sér eða ekki. Einnig lýsir fundur- inn sig andvígan fyrirhuguðum stoppum á þessu ári. Hinsvegar erum við tilbúnir til að taka á okkur skerðingu eins og allir aðrir og gætum hugsað okkur 113 daga stopp á næsta ári með eftirtöldum skilyrðum: 1. Smábátafélög á Breiðafirði ráði hvenær stoppin verða, en þó þannig að þau verði ákveðin fyrir- fram. 2. Miðað sé við að engin afla- mörk séu. 3. Netaveiðar séu leyfðar frá 6. mars til 1. júní þannig að hver bátur megi veiða 100 tonn í net og stundað svo línu og skak frjálst. Tillögur þessar eru miðaðar við landshlutaskiptingu." Haustmót Taflfélags Seltjarnarness: Jón A. Hall- dórsson meist- ari í 2. sinn HAUSTMÓT Taflfélags SeJtjarn- arness var haldið í Valhúsaskóla fyrir skömmu og urðu úrslit þau að Jón A. Halldórsson varð sigurvegari á mótinu og varði hann því titil sinn frá því í fyrra. Hann hlaut nú sex vinninga af sjö mögulegum. í öðru sæti varð Gunnar Gunn- arsson með fimm vinninga. í þriðja sæti urðu Ögmundur Krist- insson, einnig með fimm vinninga, en lægri að stigum. í fjórða sæti varð Gylfi Magnússon með fjóra vinninga og í fimmta sæti Baldvin Viggósson, sem einnig hlaut fjóra vinninga, en lægri að stigum. Hraðskákmeistari taflfélagsins varð Hilmar Karlsson, sem hlaut 14 1/2 vinning af 18 mögulegum. í öðru til þriðja sæti urðu þeir Þorsteinn Þorsteinsson og ög- mundur Kristinsson, hlutu báðir 14 vinninga. Gaukur á Stöng: Spaugsögukeppni Spaugsögukeppni verður haldin dagana 8. 15. og 22. október á veit- ingahúsinu Gaukur á Stöng. Keppnin hefst kl. 22.30 og stendur til 23.00. Sex manns taka þátt í keppninni hvert kvöld og er hún opin öllu gamansömu fólki. Kjörnir verða tveir sigurvegarar í hvert skipti, sem taka þátt í úrslitakeppni um titilinn „Grínari Gauksins" og verður hún sunnudaginn 27. októb- er á sama tíma. Hver keppandi hefur 5 mínútur til umráða. Dómnefnd skipa: Sig- urður Sigurjónsson og Örn Árna- son. Skráning keppenda er á mánudögum frá kl. 18.00 á staðn- um. Utsýn leggur heiminn að fótum þér Þrautþjálfað starfsfólk Útsýnar hefur áratuga reynslu og þekkingu á ferðamál- um, utanlands sem innan. Ferðaskrifstofan Útsýn er aðili að IATA og selur farseðla með öllum flugfélög- um heims til allra heimsálfa á lægsta fáanlegu fargjaldi hverju sinni. Þú sparar þér þúsundir í viðskiptaferðum þínum með því að láta þjálfað starfs- fólk okkar finna hagstæðustu fargjöldin. Öm Steinsen Gyða Sveinsdóttir Rögnvaldur Ólafsson Haukur Hannesson, Steina Einarsdóttir Pétur Bjömsson, Dísa Dóra HaBgrimsd. Hrefna Hannesdóttir Kristín Aðalsteinsdóttir, sölustj. fulltr. Móra deildarsti aðalgjaldkeri aðalbókari gjaldkeri sölufuBtr. aðalfararstj. innheimtustj. American Express deMarsh - sóiardeild - farseðladeild - eriendir skóiar Valdís Jónsdóttir Kristín Karlsdóttir Þóra H. Ólafsdóttir Frifta Garftarsdóttir Eriingur Karisson Hclga Lára Guft- Andri Már Ingólfsson Guðbjörg Haraldsd. Kristín M Westlund símavarsla - afgreiðsia sölum. - farseðlar aðst. gjaldkeri — ráftstcfnur starfsm Fríklúbbsins mundsdóttir söhim. sólardeild sölum. - sólardeild söium. - farseðlar Lundúnaferðir “ vörusýningar - farscftlar % Eyjólfur Sigurðsson Ása Baidvinsd. sölum. - farseðlar sölum. farseðlad Marta Helgadóttir alm. farseðlasala Sigriður Pórarinsd sölum farseðlad Asa Asgrimsdóttir sölum. - sólardeild Unnur M. Briem telex Ingótfur Guðbrandsson forstjóri Guðbjörg Saridholt sölum. sólardeiid Lisbeth Thompson sölum. sólardeild Ferðaskrifstofan Útsýn hefur söluumboð fyrir ferðaskrifstofur í nágrannalönd- unum sem bjóða fjölbreyttar ferðir í sól, snjó, stórborgir og fjarlægar heimsálfur. Útsýn er eina ferðaskrifstofa landsins sem hefur tekið nútímatækni að fullu í þjónustu sína = = = = A veita viðskiptavinum okkar ferðaupplýsingar um allan heim hratt og örugglega. Feröaskrífstofan UTSÝN AUSTURSTRÆTI 17, SIMI 26611.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.