Morgunblaðið - 06.10.1985, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER1985
62
Iþróttahátíö Grunnskóla Reykjavíkur í Laugardal
IÞROTTIR UNGLINGA
„Skemmtl-
legra en í
skólanum“
TALSVERÐ umferð var við
limbóiö þegar við litum þar viö
á föstudaginn fyrir rúmri viku.
Hann Elías Samúelsson úr Hóla-
brekkuskóla var að smeygja sér
undir ránna þegar okkur bar að
og gekk það bara vel hjá honum.
„Ég er bara að leika mér hérna,
ég keppi ekki í íþróttum en held
með Liverpool og Fram í fótbolt-
anum. Það er ágætt aö vera
hérna, að minnsta kosti mun
skemmtilegra en aö vera í skólan-
um. Ég er búinn aö fara í þrjá leiki
hérna og mér finnst þetta bara
ágætt, en mér er svo illt í bakinu
að ég reikna ekki meö aö mér
gangi vel í limbóinu," sagöi Elías
sem er 12 ára og alveg aö veröa
13.
— segir Hlynur Bjarnason úr Breiðageröisskóla
UM síöustu helgi var haldin
íþróttahátíð grunnskólanna í
Reykjavík eins og viö skýrðum frá
hér á síöunni síðasta sunnudag.
Blaðamaður ásamt Ijósmyndara,
brá sér seinni hluta föstudags inn
í Laugardal og ræddi þar viö
nokkra grunnskólanemendur,
þar sem þeir voru að leika sér í
þeim fjölmörgu tækjum sem til
staðar voru fyrir þau. Fyrstur á
vegi okkar var Hlynur Bjarnason,
11 ára nemandi í Breiöagerðis-
skóla en hann var aö leika sér í
minigolfi þegar við ræddum viö
hann.
„Þaö er búiö aö vera ofsalega
gaman hérna. Ég er búinn aö vera
hérna í allan dag og reikna frekar
meö aö koma hingaö aftur á morg-
un. Ég er bara búinn aö komast í
þrjú tæki þaö er svo mikiö af
krökkum hérna og langar biöraöir
til aö komast í tækin, en ég var líka
aö keppa í boöhlaupi fyrr í dag.
Þaö gekk ekki nógu vel hjá okkur,
viö urðum í næst síöasta sæti",
sagöi Hlynur.
—Er skemmtilegra hér en í skól-
anum?
„Já, þaö er mun skemmtilegra
hér en aö sitja inni í skólastofu",
var svariö stutt og laggott.
—Ætir þú íþróttir?
„Ég æfi handbotta hjá Víkingum
í Réttarholtsskóla og held meö
þeim í handboltanum en ég held
meö Breiöabliki í fótboltanum, ég
á nefnilega heima í Kópavogi.
Nei, ég hef aldrei komiö i mini-
golf áöur. Mér finnst þetta ansi erf-
itt, ég er svo óhittinn og kem kúl-
• Hlynur Bjarnason
unni sjaldan niöur í holurnar",
sagöi Hlynur er viö spuröum hann
hvort hann væri alvanur kylfingur.
„Mér hefur
gengiö vel“
„JÚ, JO, þetta er búið að vera alveg ágætt. Ég
er búinn að fara i dálítið mörg tæki og mér
hefur bara gengið vei. Þetta er mun skemmti-
legra en að vera í skólanum, mér finnst stundum
leiðinlegt þar. Ég æfi ekki neinar íþróttir en
Fram er uppáhaldsliöið mitt,“ sagöi Daníel Vil-
hjálmsson, 11 ára úr Austurbæjarskóla, þegar
viö hittum hann þar sem hann var aö taka þátt
í hjólböruakstri.
Daníel tókst aö komast alla brautina án þess aö
doilan dytti af hjólbörunum hjá honum og eins og
sjá má á myndinni hér til vinstri, þá þarf talsverða
einbeitingu til aö dollan detti ekki. En þaö tókst
hjáhonum.
ÍÞRÓTTAHÁTÍÐ Grunnskóla Reykja-
víkur var haldin í Laugardal 27. og 28.
september. Þar var mikið líf og fjör
er blaðamaður og Ijósmyndari Morg-
unblaösins komu vió. Unglingasíðan í
dag — þiö takið eftir aö nafni síóunnar
hefur nú veriö breytt úr „Unglinga-
knattspyrnan“ í „íþróttir unglinga" því
í vetur munum vió auðvitað fjalla um
fleiri íþróttir en knattspyrnuna — er
aö mestu lögó undir íþróttahátíð þessa
í Laugardalnum.
„Held með Vík-
ingum í hand-
bolta en UBK
í fótbolta“
„Ágætt í skólanum“
ÞAÐ var mikiö um að vera þegar
við litum viö á kassabílakapp-
akstursbrautínni sem komið
haföi verið ffyrir á bílastæðunum
vestan við gervígrasvöllinn. Mikil
biðröð var eftir því að komast í
bílana og mikill handagangur í
öskjunni.
Þeir sem viö ræddum viö voru á
sama máli um aö þaö væri „æðis-
lega rosalega" gaman í kassabíl-
unum. Sérstaklega fannst krökk-
unum gaman ef þau náöu mikilli
ferö og þá einkum í beygju einni
mikilli þar sem auöveldlega var
hægt aö velta bílnum ef ekki var
ekið varlega.
Viö hittum aö máli tvær stúlkur
sem nýkomnar voru úr ökuferö þar
sem lá viö aö þær meiddu sig því á
leiðinni veltu þær bílnum. Þær
sluppu þó meö skrekkinn aö þessu
sinni. Þessar stúlkur heita Guörún
Elísabet Stefánsdóttir og Svanfríð-
ur Dóra Karlsdóttir. Þær eru báöar
10 ára gamlar og eru i 4 bekk
Fossvogsskóla.
„Það er nú talsvert skemmti-
legra hér en í skólanum þó svo það
sé ágætt þar. Viö erum aö byrja að
fara í tækin en þaö eru svo langar
biöraðir að viö verðum að koma
aftur á morgun ef við ætlum aö
fara í þau öll. Viö erum ekkert í
íþróttum en fylgjumst svona dáldiö
meö þeim samt," sögðu þær stöll-
ur og voru roknar til aö komast í
biörööina í næsta tæki.
Tvær úr Fossvogsskóla
efstar í víöavangs-
hlaupi annars bekks
EKKI ER ólíklegt að þessar tvær ungu íþróttakonur hafi fengiö
fyrstu verölaunapeningana um hálsinn í Laugardalnum um síðustu
helgi. Þær eru báðar úr Fossvogsskóla, Ragnheiöur Gunnarsdóttir,
til vinstri, sigraöi í víöavangshlaupi 2. bekks og Kristín Inga Árna-
dóttir varð í öðru sæti.