Morgunblaðið - 06.10.1985, Blaðsíða 36
.36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER1986
er enn á ferðinni. Svo eru margir
útlendingar, bæði fyrr og síðar,
sem hafa haft áhuga á íslandi,
blámamim og öllu þar undir. Þórð-
ur Björnsson á geysilega gott safn
af erlendum prentunum íslensks
efnis, þúsundir eintaka. Mikið af
því er hvergi nokkurs staðar til á
íslandi. Heiðursmaðurinn Mark
Watson gaf sitt safn til Lands-
bókasafnsins, geysilega mikið að
vöxtum og margt sem þeir áttu
ekki til. En það er mikil eljuvinna
að ná slíkum söfnum saman, tekur
mikinn tíma. Svo eru til menn sem
safna í fjárfestingarskyni og það
er hægt en það er vandasamt.
Ég gef út lista sem ég dreifi í
900 eintökum og af þeim eru
300—500 sem kaupa reglulega.
Flestallir á einhverju lengra tíma-
bili. Talsvert sel ég út á land, en
það er áberandi hvað konur kaupa
mikið, konur sem búa einar. Einu
sinni seldi ég öllum prestum á
landinu, um 100 prestum, bóka-
lista og um 50 konum sem hafa
búið einar í búskap. Frá prestun-
um komu 4 pantanir en frá konun-
um komu 20 pantanir.
Bókin heldur
velli í mynd-
bandabylgjunni
Það er augljós verulegur áhugi á
bókinni á Islandi. Það er alltaf
hæg aukning í fornbókasölunni.
Þetta datt svolítið niður fyrst eftir
að myndbandabylgjan skall yfir,
en það hefur jafnað sig. Þó er
greinilegt að það er mun meira
lesið í skammdeginu en á sumrin.
Bæði söfn erlendis og einstakl-
ingar hafa mikinn áhuga á ís-
lensku efni og það er t.d. furðu-
legt, hve margir ástralskir ein-
staklingar kaupa íslenskar bækur,
bæði á erlendum málum og ís-
lensku. Það eru einir 8 Ástralir
sem kaupa reglulega af okkur. Það
er einnig víða í erlendum háskól-
um, sem einhver kann fornís-
lensku og það er alltaf einhver
hreyfing þess vegna á bókum til
útlanda. Það er enginn vafi á því
að stofnun eins og Árnastofnun
gæti selt meira en þeir gera, en
þeir hugsa meira um að framleiða
og gefa út. Það er þó að mínu mati
ekki nóg að gefa þetta út til
geymslu í kjallara, þótt það sé
spor áleiðis.
Heilu bókasöfnun-
um hent á haugana
Jú, oft koma menn með fágætar
bækur sem þeir vita ekki hvers
virði eru. Það er alltaf verið að
henda bókum. Oft sést eitthvað
verulega merkilegt og dýrmætt í
fórum fólks, án þess að það hafi
hugmynd um verðmætið. Hér
kemur t.d. reglulega maður, sem
vinnur á öskuhaugunum og oft
kemur hann með fágætar bækur
innan um ruslið, ef svo má segja,
en heilu bókasöfnunum er oft hent
á öskuhaugana með heilu inn-
búunum. Hitt er svo að því fer
fjarri að allar bækur séu dýrar og
verðmætar og það gengur mikið
úr, en hver einasta bók er einhvers
virði. Ég hef aldrei rekist á bók
sem hægt er að meta algerlega
verðlausa. — á.i.
Áttræður
á morgun
BJÖRN G. Björnsson, fyrrverandi
forstjóri Sænska frystihússins og
Hilti hf, verður áttræður á morg-
un, mánudaginn 7. október. Hann
' tekur á móti gestum á afmælis-
í daginn milli klukkan 16 og 19 í
f 'Oddfellowhúsinu.
Björn G. Björnsson
Ragnar Sigbjörnsson,
en ekki Sigurjónsson
f FRÉTT í Morgunblaðinu í gær,
laugardag, um ferð fjögurra ís-
lenskra vísindamanna til Mexíkó,
misritaðist föðurnafn eins manns-
ins. Ragnar Sigbjörnsson, fram-
kvæmdastjori Verkfræðistofnunn-
ar Háskólans, var sagður Sigur-
jónsson. Morgunblaðið biðst afsök-
unar á þessum mistökum.
Nafn féll niður
Þau mistök áttu sér stað við
birtingu minningargreinar um
Árna 0. Daníelsson á Akranesi
hér í blaðinu, að niður féll nafn
greinarhöfundar, Herdísar
Olafsdóttur. Morgunblaðið biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
H. ..
•i
\W »; ■ • f :
> |k , gjjmr > ;• • ■
fj
Heffur þú
bragðað
m&m jökul
ffró Duiry Queen?
(Ef ekki, þá áttu mikið eftir.)