Morgunblaðið - 06.10.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER1985
T*
Gjöf frá
íslensk-
um konum
afhentí
Nairobi
HINN 19. júlf sl. afhenti María Pét-
ursdóttir í Nairobi í Kenýa fjárupp-
hæð sem íslenskar konur höfðu
safnað í tilefni kvennaáratugar SÞ
til styrktar kynsystrum sínum í
þróunarlöndum. Auk Maríu voru við
þessa athöfn Esther Guðmundsdótt-
ir og Þuríður Þorsteinsdóttir, en all-
ar voru þær fulltrúar í íslensku
sendinefndinni á Kvennaráðstefnu
SÞ Avanthi Sahabandu frá Sri
Lanka veitti framlaginu móttöku að
viðstöddum fleiri frammákonum frá
ýmsum löndum og sagði María að
það hefði vakið athygli og verið vel
metið að konur svo langt í burtu sem
á íslandi tóku svo vel undir að veita
aðstoð. Sjálf kvaðst hún sannfærð
um mikilvægi verkefnisins, ekki síst
eftir að hafa sjálf séð þær fræðslu-
myndir sem konur í Kenýa eru að
vinna.
„Myndband sem samskiptaleið í
dreifbýli" er kjörorð þessa átaks
sem samtökin WFI hafa tekið upp
í samvinnu við Samtök fjölmiðla-
kvenna í Afríku og miðar það að
því að koma á nýrri og brúklegri
samskiptaleið við ólæsar konur í
þorpum þróunarlandanna í þeim
tilgangi að dreifa til þeirra
fræðslumyndum um hollustu-
hætti, varnir gegn sjúkdómum,
hreinlæti, gott vatn, meðferð
ungbarna o.fl. Gengur söfnunar-
féð til þess að þjálfa konur í lönd-
unum sjálfum í að gera og sýna
slíka fræðslumyndir og til að
kaupa myndbandstæki, sem ganga
fyrir sólarrafhlöðum og auðvelt er
að nota á þorpstorginu. Fjallaði
sérstakur umræðuhópur á
kvennaráðstefnunni Forum í
Nairobi um þessa nýju tækni og
notkun hennar í þessu skyni.
Meira fé
í alþjóðahópi íslensku fram-
kvæmdanefndarinnar vegna
kvennaáratugs Sameinuðu þjóð-
anna var ákveðið að leggja þessu
máli lið, er þróunarhjálpin ís-
lenska gat ekki sinnt því og safna
til þess minnst 5000 dollurum eins
og beðið var um sem lágmark.
Þessu fé söfnuðu konur á lslandi
fyrri hluta árs á samkomum sín-
um m.a. á vel heppnuðum fundi 19.
júní á Þingvöllum og í félögunum
en kvenfélögin um allt land voru
þar drýgst. Afhenti María Pét-
ursdóttir, formaður Kvenfélaga-
sambandsins gjafabréf fyrir 5000
dollurum í Kenýa í aðalstöðvum
umræðuhópsins eða svokölluðum
„Tækni og tóla skála". Enn er eftir
fé á söfnunarreikningum og verð-
ur það og þaö sem kann að bætast
við sent áfram síðar.
f tækniskálanum á Kvenna-
ráðstefnunni fór allan tímann
fram kynning á því hvernig
myndband er notað í fræðsluskyni
fyrir konurnar í þorpunum. Ekki
er miðað við staði með rafmagni
en þarna voru sýndir sólskermar
sem hlaða sig til fimm tíma notk-
unar á sex tímum og eru þegar
notaðir til þessara þarfa í Bangla-
desh og í Sri Lanka. Voru sýndar
myndir gerðar af Kenýakonum
sem þjálfaðar hafa verið af sam-
tökunum sem að standa. Var
„samskiptatjaldið" á Forum 85 í
Nairobi ávallt fullt af konum, sem
voru ákafar í að læra þessa
nútímatækni og notkun hennar i
þriðja heiminum, þar sem ekki
hefur tekist með öðrum aðferðum
að ná til fólksins og þá einkum
kvennanna.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á sKfum Moggans!____________x
María Pétursdóttir og Esther Guðmundsdóttir, ásamt konum frá þróunar-
löndunum þegar gjafafé frá íslenskum konum var aflient þeim við athöfn í
tækniskálanum á kvennaráðstefnunni í Nairobi.
Hjálparstofnunin WIF og samtök fjölmiðlakvenna í Afríku stóðu fyrir kynn-
ingu og umræðuhópi um notkun nýrrar tækni til fræðslu í þróunarlöndum á
kvennaráðstefnunni í Nairobi. Hér eru í tækniskálanum frá vinstri: Roberta
Borg frá Kanada, Avanthi Sahabandu frá Sri Lanka, sem veitti móttöku
íslenska framlaginu, ónafngreind kona, Subhadra Bel Base frá Nepal, Elín
Bruusgaard frá Noregi og Elisabeth Kirkby frá Ástralíu.
Hópferð á Smithfield landbúnaðarsýninguna
í London 1.-8. desember
Við fullyrðum að vísu ekki að á sýningunni
verði kýr sem skila af sér kældri mjólk í
fernum! En við, eins og þeir fjölmörgu
sem farið hafa með okkur á Smithfield á
undanförnum árum, vitum að sýningin er
hafsjór af fróðleik fyrir alla þá sem fylgjast
með því nýjasta og besta í landbúnaði -
full af nýjungum tengdum skepnuhaldi,
ræktun, vélum og tækjum.
í ferðinni verður einnig boðið uppá
skemmti- og skoðunarferð tengda land-
búnaði undir stjórn fararstjórans, Guð-
mundar Stefánssonar, sem verður með
hópnum alla dagana til ráðlegginga og
leiðbeininga.
Og auðvitað skartar London sínu fegursta
fyrir jólin, með alla sína skemmtistaði,
veitingahús, listasöfn, leikhús og verslan-
ir. (Við útvegum miðana!)
Verð kr. 21.800
( Miðað við 2 manna herbergi)
Innifalið: Flug, akstur til og frá flugvelli erlendis,
gisting með morgunverði á Hotel Metropol, akstur
á sýninguna, skoðunarferð, íslensk fararstjórn.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727