Morgunblaðið - 06.10.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER1985
21
1
Einbýlishús — Stekkjarflöt
260 fm glæsilegt einbýlishús á eftirsóttum staö. 70 fm
bílskúr. 1200 fm falleg lóö m. btómum og trjám. Teikn.
og uppl. á skrifstofunni.
Símatími kl.1-3
mzd
EKnAmfÐLumn
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SÍMI 27711
I Sölustjóri: Sverrir Kristintson
Þorloifur Guömundtton, sölum.
Unnstoinn Bock hrl., tími 12320
Þórólfur Halldórtton, lögfr.
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASEfí
LYKILLINN AD VANDADRI LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF.
VSÍ um horfur í atvinnumálum:
Næstu samningar
óvenju erfiðir
— m.a. vegna lækkunar dollarans
GENGISÞRÓUN undanfarinna vikna hefur reynst báðum aðilum vinnumark-
aðarins óhagstæð og það mun gera næstu samningagerð erfíðari en ella,
að mati Vinnuveitendasambands Islands. Telur sambandið að næstu kjara-
samningar verði óvenju erfíðir því semja verði við þær aðstæður, að sjávarút-
vegurinn búi við taprekstur, ekki síst ef Bandaríkjadalurinn hækkar ekki
á nýjan leik.
„A sama tíma þurfa sjávarút-
vegurinn og framleiðslugreinarnar
að keppa um vinnuafl og fjármagn
við þær atvinnugreinar, sem fá
tekjur við innstreymi erlends láns-
fjár inn í landið og nú síðast hefur
hið opinbera bæst í þennan hóp
með því að hækka laun umfram
það, sem gerist á almenna vinnu-
markaðnum. Ríkið hefur greitt
fyrir þær umframhækkanir með
yfirdrætti í Seðlabankanum en
hallinn á ríkissjóði í ár verður
varla undir 2.000 milljónum
króna,“ segir í grein í nýjasta
fréttabréfi VSÍ.
Þar segir einnig að kaupmáttur
kauptaxta ASÍ hafi haldist nokkuð
stöðugur allt frá 4. ársfjórðungi
1983 og að svo virðist sem hann
verði lítillega lægri en reiknað var
með í samningunum i júní. „Koma
nýgerðir bónussamningar þar m.a.
til, en þeir hækka kaupmáttinn að
hluta upp í það, sem hann lækkar
við meiri verðlagsbreytingar en
ráð var fyrir gert.“
Vinnuveitendasambandið leggst
enn eindregið gegn hugmyndum
um vísitölutryggingu launa. „Verð-
trygging launa með sjálfvirku vísi-
tölukerfi er algjört öfugmæli,"
segir í greininni, „því að með slíku
er ekki verið að tryggja kaupmátt
heldur verðbólgu.“ Segir að ef knú-
ið verður á um miklar hækkanir
og vísitölutryggingu samning-
anna, sem gera á um áramótin,
yrði verðbólgan á næsta ári 50-
60%. Tveir aðrir möguleikar komi
einnig til greina: Hægt væri að
koma verðbólgu niður fyrir 15% á
næsta ári „ef skynsemin ræður við
gerð samninganna og eins hjá
stjórnvöldum ... ef vilji er fyrir
hendi“, og loks sé sú hætta fyrir
hendi, „að við festumst 1 30%
verðbólgustiginu með svipuðum
kollsteypum og á sl. hausti".
Segir að lokum að „kaupmáttur
inn yrði líklega lægstur og afkonu
fyrirtækjanna yrði verst í því til-
felli þar sem verðbólgan er mest“.
PSSSSSSS.....geturðu þagað yfir LEYNDARMÁLI?
P.S. Þegar viö segjum SJÓNVARP þá meinum viö PHILIPS - og ekki orö um þaö meir.
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- S: 27500