Morgunblaðið - 06.10.1985, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAG AR 6. OKTÓBER1985
HER
OG
NÚ
IWyndlist
BragiÁsgeirsson
Hulda Hikonardóttir við eitt verka sinna
Á einu fegursta hausti í manna
minnum hafa íslenzkar listakon-
ur blásið í herlúðra til að vekja
athygli á tilvist sinni.
Kvennaáratugur er senn á
enda runninn og minnast konur
þess á hinn fjölbreyttasta hátt
hvort sem þær eru listum vígðar
eða ekki. Hvað myndlistinni við-
víkur þá eru konur með sýningar
um alla borgina, jafnvel er ein i
Hafnarfirði og eru þær svo sem
vænta má af hinni margvísleg-
ustu gerð.
Hin langsamlegast viðamest
þeirra er sýningin „Hér og nú“
að Kjarvalsstöðum, sem fyllir út
allt rými þeirra og þótti þó
ástæða til að hafna % af inn-
sendum verkum.
Sá framsláttur hefur oft sést
í ræðu og riti, að sérstök kvenleg
einkenni séu ekki til í myndlist,
og er hann að öllu jafnaði kominn
frá konunum sjálfum. Svo má
vera, en einnig er víst að til eru
einkenni í myndlist, sem nefna
má kvenleg og önnur er nefna
má karlmannleg. Þessi einkenni
geta verið til í list kvenna sem
karla og til eru karlmannlegar
konur og kvenlegir karlmenn svo
sem allir vita, — en bæði kynin
tel ég persónulega sjálfum sér
samkvæmust þegar hinn klass-
íski mismunur er greinilegur og
ótvíræður.
— Ég álít að öll skapandi list
sé sama marki brennd — hún er
hvorki karlkyns né kvenkyns en
verður til fyrir sérstakar gáfur,
kunnáttu, fjölkynngi og kraft.
Menn eiga einungis að leggja út
á listbrautina fyrir þörf til að
tjá sig en ekki vegna neinnar
tegundar sýndarmennsku. Heim-
urinn er yfirfullur af vondum
listaverkum gerðum af fólki er
vildi sýnast — hvers konar karl-
peningi og þannig séð er það
konunni til sóma, að hún hafði
til að bera það fölskvaleysi og
gáfur að geta setið á sér. Yfir-
burðir konunnar felast í því að
ruslahaugurinn í gegnum aldirn-
ar, er margfalt minni hjá henni
í þessu tilliti og hvað góða list
áhrærir hjá karlpeningnum þá
var konan iðulega í næsta ná-
grenni og gat í raun átt helftina
af listaverkinu ef ekki miklu
meir.
Fyrir þetta allt er maður frá
dýpstu rótum þakklátur konunni
og einnig þann töfrandi mismun,
er hver og einn getur þakkað Iíf
sitt og því eins gott að hann var
ekki hvorugkyns né heldur tví-
tóla. Mörg valkyrjan i fylkingar-
brjósti hefur og fullyrt, að það
væri einungis óheppilegum for-
dómum og kúgun að kenna í 5000
ár, að þáttur konunnar sé jafn
rýr og raun er á. En hér má
mótmæla því að þáttur konunnar
í öllu sköpunarverkinu er a.m.k.
jafn mikill og karlmannsins. En
kemur þó ekki að jafnaði fram á
sama hátt. Með breyttum tímum
og ólíkum hugsunarhætti sækir
konan stíft fram á öllum sviðum
og er það vel, en hraustlegar
væri að lfta 5000 ár fram i tímann
og hugsa stórt en að vera stöðugt
að vitna til fortíðarinnar. Að-
stæður veiðimannaþjóðfélagsins
kröfðust verkskiptinga, sem hafa
orðið býsna lifseigar og jafnvel
fætt af sér kúgun og undirokun.
En án þessarar verkskiptingar,
Ráöherrastólar?
Hljóölátur, lipur og
félagslyndur stóll. Þessi
stóll er góður fyrir
byrjendur og er vinsæl-
astur með gráu áklæöi
Ekki lánshæfur hjá
Húsnæöisstofnun því
verdid er adeins
kr. 8.650.-
Það er nú einu sinni svo með góöa stóla að menn vilja sitja í þeim bæði fast og lengi.
Góðir starfsmenn eiga iíka sannarlega skilið að sitja í bestu stólum. Þess vegna bend-
um við öllum þeim, sem eru að velja sér stóla um þessar mundir, óhikað á Drabert
stólana, sem þúsundir ánægðra
islendinga hafa kosið sér á
undanförnum árum.
Jú takk..
VSKRIFSTOFU HUSGOGN f
Fínlegur og vel hannadur
stóll. Hefur reynst vel í
skólakerfinu þrátt fyrir að
hafa ekki sigrað í vin-
sældakosningum medal
kennara. Verd kr. 11.125,-
Sterkbyggður vinnustóll,
sem þolir mikiö álag og
styður vel við breitt bak-
iö. Líklegur til þess aö
endast lengi í lífsins ólgu
sjó. Verd kr. 14.165,-
Einstefnustóll meö grænu
áklæði. Óþarflega þægi-
legur fyrir sjálfs-
afneitunarsinna, en má
hækka og lækka og jafn-
vel breyta i barstól að
fenginni umsögn áfengis-
varnarnefndar.
Verðkr. 16.710.-
Vandaður leðurstóll, sem
hægt er að stilla á ótal
vegu og láta sér liða vel
i. Snýst jafnt til hægri og
vinstri. Upp úr þessum
stól stendur enginn ótil-
neyddur. Verö kr. 38.700.-