Morgunblaðið - 06.10.1985, Síða 16
ÞANU SI6LIR EIHHVERIHH.
Pegar talað er um rómantík I höfuöborginni jafnast varla nokkuö á viö
gömlu höfnina í Reykjavík síðla kvölds, bátarnir vaggandi I kvöldgol-
unni og ungir elskendur. . . Er hægt að hugsa sér rómantískari senu? Eöa á
sólskinsdegi ( miöri viku þegar öll hjólin snúast, skip aö fara og koma, ferma
og landa. Lítil trilla aö smokra sér framhjá ógnandi hvalveiöiskipi sem lagst er
að bryggju eins og gömul orustuhetja aö safna kröftum fyrir næstu törn.
í slippnum er verið að gera upp togarajálk. Sjóða saman plötur, dytta aö
skrúfunni. I hverri einustu glufu og gati sést hafnarverkamaður vopnaður
verkfærum að berja á ferlíkinu. Minnir óneitanlega á söguna af Gulliver I
Putalandi. „Vá, bara kvenmaður á svæöinu," heyri ég útundan mér. Það fer
greinilega lítiö fyrir veikara kyninu á þessum slóöum. En mér sýndist ég sjá
karlmenn allt frá tiu ára og upp úr hamast I góöa veörinu. Síðdegis eftir
sleitulaust skak síga trillurnar undir þéttu máfaskýi heim í höfn. Trillukarlarnir
skófla aflanum á land. Fiskur á disk. Eftir vellukkaöan dag er báturinn
spúlaður og greitt úr netinu, allt klárt fyrir næstu ferö. Síðan er jafnvel
drukkinn kaffisopi á Kaffivagninum eöa Skeifunni I Tryggvagötu, en þaö
kaffihús gæti vel verið skúlptúr eftir einhver meðlim þýsku Bauhaus-hreyf-
ingarinnar. Dorgararnir eru líka aö vinna viö aö ná slnum bita úr fjársjóöi
hafsins. Eins og atvinnumenn þekkja þeir bestu staöina til aö flatmaga yfir
hafnarbakkann meö öngul á snæri.
Erlent skip staldrar dag einn í höfninni. Ferðamenn meö myndavélar á
maganum streyma (land, hverfa inn í bæinn og dreifa sér um götur og
öngstræti. Þegar líður á daginn týnast þeir einn af öörum aftur um borö meö
lopapeysu í plastpoka og smella af seinustu myndinni áöur en lagt er úr höfn.
Stúlka horfir löngunaraugum á hafið . . . og hinu megin eru útlöndin.
Alda Lóa Leifsdóttir.
Samtök um byggingu tónlistarhúss:
Happdrættisherferð og tónleikahald
KINS OG fram hefur komið í Morg-
unblaðinu standa Samtök um bygg-
ingu tónli.starhúss fyrir tónleikahaldi
í beinni útsendingu á rás tvö næst-
komandi sunnudagskvöld í samvinnu
við Kíkisútvarpið. Munu þar koma
við sögu margir ólíkir listamenn, sem
allir eiga það þó sameiginlegt að vera
þekktir á sínu sérsviði. Allir koma
þátttakendurnir fram endurgjalds-
laust og gefst hlustendum kostur á að
styrkja málefni þetta með því að
panta happdrættismiða samtakanna
gegnum síma meðan á tónleikunum
stendur og mun ágóðinn, sem þannig
safnast, því óskiptur renna til bygg-
ingar hússins.
Það var glatt á hjalla í húsa-
kynnum Tónlistarfélagsins í
Garðastræti 17 síðdegis á fimmtu-
daginn, er listamenn og forsvars-
menn framtaksins komu þar sam-
an til skrafs og ráðagerða. Gat þar
að líta mörg þekkt andlit úr tón-
listarlífi landsmanna undanfarin
ár, allt frá óperusöngvurum til
poppsveita. Tilgangurinn með sam-
kundu þessari var tvíþættur, ann-
ars vegar að leggja lokahönd á und-
irbúninginn, hins vegar að kynna
fjölmiðlum starfsemi samtakanna
og markmið þessa músíkviðburðar.
„Við verðum ekki fullmannaðir,
það er alveg ljóst,“ fullyrti Valgcir
Guðjónsson Stuðmaður. „Endur-
menntunarstefnan er nefnilega I
hávegum höfð hjá okkur, menn í
skólum út um allan heim,“ bætti
hann við til útskýringar. Upplýs-
ingar á borð við þessar voru sam-
viskusamlega skráðar niður af um-
sjónarmönnum útsendingarinnar,
þeirra sem um hljóðfæraskipanina
og uppstillingar sjá. „Það er heil-
mikill hugur í okkur núna,“ sagði
Bragi Jónsson, sem sæti á í happ-
drættisnefnd samtakanna, er hann
var inntur eftir því hvernig gengi.
„Verkefnið er líka viðamikið, tón-
listarhús með tveimur sölum, sem
allt í allt eiga að rúma u.þ.b.
1800—2400 manns. En, við höfum
þó enga ástæðu til annars en að
vera bjartsýnir, erum staðráðnir í
að gera þennan draum að veruleika
og höfum nú lagt út í heilmikla
happdrættisherferð, sem við von-
um að gefist vel. Samhugur er mik-
ill innan hópsins og allir eru reiðu-
búnir að leggja sitt af mörkum,
málinu til framdráttar. Þó hefur sú
tillaga nú skotið upp kollinum að
húsið verði staðsett annars staðar
en á höfuðborgarsvæðinu, en það er
nú meira í gamni en alvöru," sagði
Bragi. Þessa síðustu athugasemd
Sjálfboðaliðar við sölustörf á Sinfóníutónleikum.
heyrði Valgeir Guðjónsson og var
nú ekki lengi að finna lausn á þeim
vanda. „Ja, svei mér þá,“ sagði
hann. „Það skyldi þó aldrei fara svo
að við fjárfestum bara í hjólhýsi?"
Meðal þeirra sem fram koma á
útvarpstónleikunum á sunnu-
dagskvöld eru þau Kristján Jó-
hannsson, Kristinn Sigmundsson,
Elísabet Eiríksdóttir, Maurizio
Barbacini, Bubbi Morthens, Martin
Berkofsky, Stuðmenn, Blásara-
kvintett Reykjavíkur, Ófétin,
Skólakór Kársness, Jónas Dag-
bjartsson, Jónas Þórir Jónasson,
Ingimar Eydal, Kolbeinn Bjarna-
son, Páll Eyjólfsson og Stórsveit
Kópavogs undir stjórn Arna Schev-
ing. Kynnir á tónleikunum verður
Svavar Gests og umsjónarmenn
þeir Sigurður Einarsson og Magnús
Einarsson, sem einnig munu ræða
við listamennina milli atriða.
IAA
---------------------------------------\
Buxur
Herra-terelynebuxur á kr. 1.000.-
Kokka-og bakarabuxurá kr. 900.-
Saumastofan, Barmahlíð 23,
(gengið inn frá Lönguhlíð).
Sími 14616.
f " >
Hef opnaö
tannlæknastofu
aö Þverholti, Mosfellssveit.
Viötalstímar eftir samkomulagi í síma 666104.
Elmar Geirsson, tannlæknir
Vegna flutninga í eigið húsnæði í november n.k. seljum við á næstunni allar
sýningainnréttingar okkar með afslætti.
SKALINN
GRENSÁSVEGI12,108 REYKJAVÍK, S 91-39520*