Morgunblaðið - 13.10.1985, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985
B 17
Hrygnan hvflir mjúklega í greipum Sóleyjarbakkamannsins þótt hlaupið sé
það var mikið kapp hlaupið í hann.
Geir Birgir sat inni í bíl á hinn
bóginn, rólegheitin uppmáluð og
samdi drög að reglum, sem hann
ætlaði að mæla með á næsta aðal-
fundi veiðiklúbbsins Fjaðrafoks,
sem þeir félagar eru aðilar að.
Eina tillöguna las hann fyrir
viðstadda: „Formaður einn hafi
rétt til þss að skamma félags-
menn. Var álitamál hvort þetta
yrði samþykkt óbreytt. Nema
hvað nú lá leiðin niður með ánni,
að Bergsnös, einum frægasta
veiðistað árinnar alla tíð. Þetta er
mikill pottur, áin rennur niður
með miklu bjargi og er geysidjúp,
sérstaklega efst í hylnum. Þarna
er oft mikið af laxi, sérstaklega
síðsumars og á haustin, og oft eru
þarna stærstu laxarnir.
Var nú hafður sami hátturinn á
og fyrr, nokkrir óðu yfir með net-
Sá stærsti að þessu sinni, 22 punda hængur, og aðdáunarsv:purinn leynir sér ekki...
endann. Eyþór óð yfir fyrir neðan
og tók við netinu, síðan var farið
að draga og ekki laust við að eftir-
vænting svifi yfir vötnunum, enda
hafði lax stokkið svo að segja
strax og menn voru að hefjast
handa. Þarna veiddist samt lítið
eða ekkert á stöng í sumar. Þarna,
eins og í Kálfhaganum, á laxinn
greiða undankomuleið niður úr
hylnum, því bændur eiga ekki net
til að strengja yfir til fyrirstöðu.
Samt hefur þetta blessast og mik-
ið veiddu þeir í Bergsnösinni
haustið 1984 þó menn sæju „undir
iljarnar" á einum 50 löxum niður
Það var þess virði að draga á Bergsnösina þó aðeins einn lax næðist Hrygn-
an er hin fallegasta og Stefán Á. Magnússon er hæstánægður nýstiginn upp
úr ánni í bókstaflegum skilningi, svo mikið vatn er í vöðlunum að þær
hanga niðri á nafla ...
hylnum og urðu nokkrir blautir
við að losa það, ekki síst Stefán Á.,
sem gekk hart fram og hlífði sér
hvergi. Fyrir neðan allt saman
stóð Eyþór eins og drangur út í
miðri ánni og freistaði þess að
stöðva mögulegan flótta laxa úr
hylnum.
Nú tók hringurinn að þrengjast
og brátt urðu menn þess vísari að
það var bara þó nokkuð af laxi
innilokaður, samt höfðu menn séð
slatta af löxum laumast yfir, und-
ir og fram hjá. Hringurinn lokað-
ist og sjá, þetta var torfa af laxi.
Var nú handagangur í öskjunni,
menn óðu þarna hver um annan
þveran og gripu laxa, sem þeir
færðu strax í vatnsfylltan tank,
sem dráttarvél hafði ekið á stað-
inn. Mátti vart milli sjá hvort var
áhrifameira, ærslin í löxunum að
öðlast frelsi á ný, eða veiðigleðin
hjá „liðinu". Þarna voru stórir lax-
ar innan um þó sumarið 1985 hafi
verið „smálaxasumar", einn fór á
vogina og reyndist 22 pund, ægi-
legur hængur. Annar var um 20
pund, einnig hængur og tvær
hrygnur voru áætlaðar 18—19
pund hvor. Auk þess var talsvert
af 9—12 punda hrygnum, eftirlæti
klakmamnsins, og þegar upp var
staðið var næstum helmingur afl-
ans hrygnur, sem eiga eftir að
koma að góðum notum við styrk-
ingu stofnsins í Stóru Laxá. Þarna
voru saman komnir 64 laxar og
4—5 vænir sjóbirtingar, litlu
minni afli en metsumarið 1984.
og svo í Bergsnös
„Nú förum við í Bergsnös, þar
eru drekarnir," sagði Stefán Á. og
Eftirvæntingin við Bergsnös í þann mund að leysast upp í vonbrigði, allir
í viðbragðsstöðu, en aðeins einn lax var í netinu ...
Vonbrigðin við Bergsnös, reynt að gera urriða að laxi...
úr hylnum meðan dregið var á.
Eftirvæntingin breyttist í hálf-
gerð vonbrigði er hringurinn lok-
aðist og aðeins einn lax var í net-
inu, um það bil 10 punda hrygna,
hinn glæsilegasti fiskur. Tveir sjó-
birtingar voru þar líka, annar
býsna vænn, svo vænn, að menn
fóru með vonarglampa í augum að
velta því fyrir sér hvort þetta væri
ekki Iax eftir allt saman. Silungur
var það, heillin. „Eigum við að
reyna aftur?“ hljómaði í loftinu,
en Eyþór fullyrti að hann hefði
fundið þegar margir laxar
„keyrðu“ í netið þó aðeins hafi
náðst þessi eini. „Þarna við nefið
er hylurinn um 5 metra djúpur og
netið nær ekki niður. Þarna er ör-
ugglega talsvert af laxi, að
minnsta kosti 7—8 hængar, sem
alltaf má búast við að séu að
snudda í kring um svona fallega
hrygnu," sagði kempan og þegar
lax er annars vegar má búast við
því að hann hafi lög að mæla. Það
var samt úr að láta þetta gott
heita, enda komnir um 70 laxar úr
ánni og vissa fyrir því að talsvert
væri af laxi eftir til að sjá um
náttúrulega klakið. Héldu menn
til síns heima og blaðamaður í bæ-
inn að setja ævintýrið á blað.
-gg-
Texti:
GUÐMUNDUR
GUÐJÓNSSON
Myndir:
HERDÍS
BENEDIKTSDÓTTIR
OG GUÐMUNDUR
GUÐJÓNSSON
I