Morgunblaðið - 13.10.1985, Page 19

Morgunblaðið - 13.10.1985, Page 19
TREDIA FOLKSBILL MED TORFÆRUEIGINLEIKA Jafnvígur ísrijó, hálku og aurbleytu — á malarvegum og malbiki A Verð frð kr. 597.000.- Henry k og Rosemarie Koseda, foreldrar Heidi. Amman tók að óttast um Heidi og hafði samband við barnaverndar- samtökin NSPCC; undirtektir þeirra voru hins vegar litlar. Frú Rickard fór bónleið til búðar og sömu sögu var að segja af Lorraine Martin, nágranna þeirra Price og Rosemarie. Hún fékk snemma hugboð um að eitthvað kynni að vera athugavart við heimilislíf þessara nágranna sinna. Einkum hafði hún áhyggjur af öryggi Heidi litlu. „Ég hafði á tilfinningunni að eitthvað ægilegt væri á seyði. Ég hringdi fjórum sinnum í barna- verndarsamtökin NSPCC til að leita aðstoðar en þeim virtist standa alveg á sama. Þeir hjá sam- tökunum vildu greinilega ekkert mark taka á mér, héldu kannski að ég væri eitthvað skrýtin. En ef þeir hefðu aðeins hlustað á mig og gert viðeigandi ráðstafanir í tíma væri litla stúlkan kannski enn á lífi.“ Hvers vegna gripu barnavernd- arsamtökin ekki til viðeigandi ráðstafana þegar síendurteknar viðvaranir bárust frá ungfrú Lorra- ine Martin? Svarið við þessari spurningu má einkum rekja til ófyrirgefanlegra afglapa eins starfsmanna samtakanna, Marcus Colquhoun. í stað þess að fara á vettvang og kynna sér rækilega all- ar aðstæður gerði Colquhoun sér lítið fyrir og falsaði skýrslu þess efnis að hann hefði komið í íbúðina og fengi ekki betur séð en að Heidi tíðarfangelsi, sagði til dæmis að samtökin ættu sinn þátt í því hvernig farið hefði, með því að sinna ekki endurteknum viðvörun- um Lorraine Martin. „Hefðu áhyggjur hennar verið teknar al- varlega væri Heidi að likindum enn á lífi,“ sagði dómarinn. Forráðamenn NSPCC hafa á eng- an hátt reynt að firra samtökin ábyrgð á dauða Heidi Koseda. „Við fengum mál í hendurnar og reynd- umst ekki færir um að leysa það. Skömm okkar er mikil,“ sagði fram- kvæmdastjóri NSPCC, dr. Alan Gilmour, við fréttamenn. Hann hét því að starf samtakanna yrði stokk- að upp og endurskoðað svo koma mætti í veg fyrir fleiri atburði af þessu tagi. „Við brugðumst ekki við á réttan hátt og nú þurfum við að komast að því hvað fór úrskeiðis," hélt Gilmour áfram. „Dauði Heidi Koseda er hræðilegur harmleikur og mikið áfall fyrir alla þá sem standa að baki barnaverndarsam- tökunum NSPCC. Litla stúlkan var lokuð inni alein og látin deyja við hinar skelfilegustu aðstæður. Það er næsta ógerlegt að ímynda sér hvílíkar þjáningar hún hefur þurft að líða.“ eftir Valdimar Unnar Valdimarsson ný. Til dæmis lét einn þingmanna íhaldsflokksins, Terri Dicks, hafa það eftir sér að Price ætti skilið að hanga í snörunni fyrir glæp sinn: „Hafi nokkurn tíma verið ástæða til að innleiða dauðarefsingu á ný, þá er hún komin með þessu óhugnan- lega máli.“ Viðvörunin Óhætt er að segja að í morðmáli þessu hafi fátt vakið jafn mikla undrun og hneykslan og þáttur barnaverndarsamtakanna NSPCC (National Society for the Preven- tion of Cruelty to Children). í ljós hefur nefnilega komið að starfs- menn samtakanna létu sem vind um eyru þjóta viðvaranir, sem komu úr fleiri en einni átt, þess efn- is að ekki væri allt með felldu á heimili þeirra Nicholas Price og Rosemarie Koseda. Meðal þeirra, sem stóð ekki á sama um heimilishagi hjá þeim skötuhjúum, var Ilsa Rickard, sem á sínum tíma hafði gengið Rose- marie í móður stað með því að ætt- leiða hana. Frú Rickard hafði kom- ist upp á kant við Nicholas Price í kjölfar þess að hún neitaði eitt sinn að lána honum peninga. Af þeim sökum meinaði Price frú Rickard að heimsækja Heidi litlu framar. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985 væri við hestaheilsu. Jafnframt lagði hann til að málið yrði tekið af dagskrá. Á sama tíma og Colqu- houn taldi sig hafa öðrum hnöppum að heppa en sinna viðvörunum um að Heidi Koseda kynni að vera í hættu, fjaraði líf litlu stúlkunnar út. Hvers vegna í ósköpunum kynnti Marcus Colquhoun sér ekki mála- vexti? Gífurlegt vinnuálag hefur verið nefnt sem ein hugsanleg ástæða. Maður nokkur, sem þekkir Colquhoun, hefur látið hafa eftir sér: „Hann vildi klifra upp meðtorð- astigann í starfi sínu. Honum fannst sem hann lægi undir þrýst- ingi, málum þyrfti að ljúka með hraði. Hann tók áhættu og tapaði. Líf hans hefur verið lagt í rúst.“ Colquhoun var umsvifalaust lát- inn taka pokann sinn þegar upp komst hvernig málum hafði verið háttað. Annar starfsmaður NSPCC, Arthur Thompson, sagði einnig af sér vegna þessa máls. Ábyrgðin Það er ekki að ástæðulausu sem barnaverndarsamtökin NSPCC hafa að hluta til verið dregin til ábyrgðar á þeim harmleik sem nú hefur orðið uppvís. Dómarinn, sem dæmdi Nicholas Price í lífs- Þú kemst til ádur ókunnra staða á MITSUBISHI TREDIA med ALDRIFI, 85%Jæsingu á afturdrifi, 19 cm veghæð og aflstýri. ~~ Bíllinn, sem alla hefur dreymt um Bókasafna- vikan í Borgar- bókasafni ÝMISLEGT verður á döfinni í Borg- arbókasafni í Bókasafnavikunni 14.- 20. október. Bæði í aðalsafni og útibúum verður t.d. lögð sérstök áhersla á safnkynningu fyrir þá sem gerast lánþegar þessa viku. Yngstu safn- gestunum verður heldur ekki gleymt í þessari viku, þar sem brúðuleikhús verður með í sögu- stund í aðalsafni í Þingholtsstræti 29, þriðjudaginn 15. október kl. 10. Um brúðuleikhús í útibúum verður tilkynnt nánar síðar. FrétUtilkynning Dæml um stadladan búnað: ► Rafstýrdir útispeglar ► Midstýrðar hurðalæsingar ► Rúllu bílbelti í ollum sætum HLÝTT ÁHÖNDUNUM ÖRUGGT í UMFERDINNI * Utsðlustaoir: Torglö, Mlkllgarður. sportbúðln, stormarkaðurtnn. Utllff, Ultíma, Bottamaðurlnn, Heatamaðurtnn og kaupfétðgin vtöa um land V^terkurog hagkvæmur auglýsingamiðill! NÝTT FRÁ MITSUBISHI ryi HEKLAHF LA4 Laugavegi 170-172 Simi 21240

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.