Morgunblaðið - 15.10.1985, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985
43
Akranes:
Stuttar fréttir úr bæjarlífinu
Akranesi 8. október.
Endurskoöun á hafnsögu-
gjöldum Ríkisskipa
Hafnarnefnd Akraness hefur
ákveðið að taka til endurskoðunar
hafnsögugjöld Skipaútgerðar rík-
isins þegar reynslutölur liggja
fyrir fyrir fyrstu sex mánuði árs-
ins 1985.
Skipaútgerðin hefur nú um skeið
látið skip sín koma reglulega við
á Akranesi vegna vöruútflutnings
til og frá bænum.
Á fundi atvinnumálanefndar 26.
sept sl. var lögð fram könnun á
þessum flutningum sem sýnir að
frá því 12. mars sl. hafa skipakom-
ur Skipaútgerðar ríkisins vegna
sementsflutninga verið alls 48 og
skipin hafa flutt rúmlega 8000
tonn af sementi.
Úttekt á andrúmslofti
Vinnueftirlit ríkisins hefur gert
úttekt á andrúmslofti í Grunda-
skóla og var úttektin kynnt á fundi
skólanefndar grunnskóla fyrir
skömmu.
Margt bendir til að í andrúms-
lofti innan skólans séu efni sem
eru ofnæmisvaldar, sem þekkist í
nýjum húsum. Tekið er fram að
frekari rannsókna er þörf.
Húsvörður við
Brekkubæjarskóla
Karl Ragnarsson, Garðabraut
10, hefur verið ráðin húsvörður við
Brekkubæjarskóla frá og með 1.
nóvember nk. Frá sama tíma lætur
Jónas Helgason af störfum.
65 manns bíða eftir vistun
Alls bíða 65 manns eftir vistun
á dvalarheimilinu Höfða á Akra-
nesi, en að mati þjónustuhóps
aldraða sem lagt hefur fram álit
og tillögur til stefnumótunar um
málefni fatlaðra eru um 20—24 á
listanum með mikla þörf fyrir
vistun.
Tónlistarskóli Akraness
30 ára
Tónlistarskólinn á Akranesi
verður 30 ára nú í nóvember nk.
og verður ákveðið nú á næstu
dögum endanlega hvernig afmæl-
isins verður minnst en fyrirhugað
er m.a. að halda afmælistónleika
í byrjun nóvember og er ætlunin
að þar komi fram margir af núver-
andi og fyrrverandi nemendum
skólans.
Byggingarnefnd vill Ijúka
vinnu deiliskipulags
Byggingarnefnd Akraness hefur
óskað eftir því við bæjarstjórn að
nú þegar verði hafin vinna við
gerð deiliskipulags þar sem það
vantar og ennfremur að staðfest
verði deiliskipulag sem þegar hef-
ur verið unnið og byggt hefur verið
eftir, svo hægt verði að framfylgja
skipulagsreglugerð númer 318 sem
tók gildi 1. september sl.
J.G.
Hjónin Lára Árnadóttir og Alfred W. Gunnarsson í verslun sinni að Skóla-
braut 18 á Akranesi.
Ný skartgripa-
verslun á Akranesi
HJÓNIN Lára Árnadóttir og Alfred
W. Gunnarsson, gullsmiður, opnuðu
skartgripaverslun á Akranesi 7. sept-
ember sl. og er hún til húsa á Skóla-
braut 18.
Verslunin ber nafnið „Eðalstein-
ar“. Auk sölu skartgripa, er boðið
upp á viðgerðarþjónustu á skart-
gripum og sérsmíði eftir pöntunum.
Þá verða til sölu trúlofunarhringar
og eru 70 sýnishorn af þeim í versl-
uninni.
Til sölu verða einnig vörur frá
Holmegaard, vínglös, karöfflur,
kertastjakar og blómavasar. Vörur
þessar eru allar úr gleri og eru
munnblásnar og handunnar.
Innréttingarnar í versluninni eru
hannaðar af Jörmundi Hansen hjá
Þrigripi og ljósabúnaður er frá
Ljósafli í Reykjavík.
Síöbúin
afmæliskveðja:
Steinþór
Eiríksson
Steinþór Eiríksson er fæddur 2.
september 1915 i Hróarstungu. Er
hann því orðinn sjötugur.
Hann fæddist í Hróarstungu, en
ólst upp í Þórsnesi í Hjaltastaða-
þinghá. Þar átti hann heima í rúm-
lega tuttugu ár. Hugur hans stóð
ekki til búskapar og ungur hleypti
hann heimdraganum og hélt til
Reykjavíkur til náms í vélfræði.
Þaðan fluttist hann til Reyðar-
fjarðar, en þaðan í Egilsstaði.
Hann er með fyrstu landnemum í
Egilsstaðakauptúni. Þar setti
hann á stofn fyrsta vélaverkstæðið
og rak það til ársins 1967, að hann
hætti vegna veikinda. Hann hefur
þó ekki setið auðum höndum.
Löngunin til að mála hefur alltaf
blundað með honum. Nú málar
hann mikið og hefur hann haldið
málverkasýningar víða um land.
Steinþór er mikill náttúruunn-
andi eins og glöggt má sjá á verk-
um hans. Hann er hafsjór af fróð-
leik og les mikið. Hefur hann ferð-
ast víða bæði innanlands og utan.
Nú síðast var gamall draumur
hans að rætast er þau hjónin fóru
til Sviss í nokkra daga.
Árið 1946 giftist hann Þórunni
Þórhallsdóttur, kennara, frá
Ljósavatni, mikilhæfri konu. Þau
hjónin eignuðust 5 börn. Elstur var
Eiríkur, en hann lést af slysförum
við vinnu í Reykjavík; Stefanía,
kennari, býr á Hallormsstað; Barn
er dó nýfætt; Jenný Karitas, hús-
móðir, býr á Breiðdalsvík; Þór-
halla, nemandi í Háskóla íslands.
Margir koma á heimili þeirra
hjóna. Gestrisnin og hlýjan situr
þar í fyrirrúmi. Undirrituð kemur
oft til þeirra og er alltaf tekið jafn
hlýlega svo og minni fjölskyldu.
Það vil ég þakka þeim hjónum.
Steinþór hefur verið virkur í
félagsmálum. Hefur hann m.a.
verið í slysavarnadeildinni, Rotary
og fleiri félögum.
Ég óska ykkur hjónum til ham-
ingju með þennan áfanga. Gæfan
fylgi ykkur.
Björg Guðiaugsdóttir