Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985
fclk í
fióttum
Sterkar hendur og
ársæfing hljóta að
vera skilyrði til að
geta borið siíkt.
í einu af bjórtjöldunum.
Októberhátíðin í Munchen
w
Aþessu hausti eru 175 ár síðan tek-
ið var upp á þessum frægu hátíð-
arhöldum í Miinchen sem nú orðið
draga að gífurlegan fjölda fólks og læt-
ur nærri að um hálf sjöunda milljón
manns safnist til gleðinnar, sem stend-
ur í 15 daga. Hátíðin hefst þegar vika
lifir af september og út fyrstu viku af
október. Þýskir fornir þjóðbúningar
setja áberandi svip á gleðskapinn,
söngur og bjórdrykkja, enda risatjöld
reist í borginni þar sem allt að 10.000
manns geta svalað þorstanum í einu
undir sama þaki. Víðar í Þýskalandi
eru haldnar svonefndar októberhátíðir
en allar taldar blikna við hlið þeirrar
einu sönnu í Munchen.
Hvað
er það
sem veitir þeim
mesta hamingju?
Julio Iglesias
„Ég hef aldrei verið neitt ofurmenni
og tel mig frekar óöruggan slána, og
kann best við mig í íþróttagalla. Ég
er semsagt ósköp einfaidur náungi
sem elska konur og sólskin."
Clint Eastwood
„Að vera með vinum sínum, gantast
og leika golf, það er toppurinn. Fyrir
utan það er gönguferð í tunglskini
með kærri vinkonu ofarlega á listan-
um. Annars þrífst ég best í rólegu
umhverfi og þess vegna líður mér
best þegar ég er með einhverjum
sem ekki krefst of mikils af mér.“
ERLENDUR SVEINSSON YFIRÞINGVÖRÐUR
í Alþingishúsið eftir
32 ár
í
lögreglunni
Erlendur Sveinsson varðstjóri
í lögreglunni hefur tekið við
starfi yfirþingvarðar í Alþingi. ‘Ég
kann hinu nýja starfi vel - vinn
hér með góðu fólki, sem hefur tekið
mér mjög vel. Ég þekki marga
þingmenn persónuiega og hlakka
til að takast á við starfið. Það er
“ hollt að breyta til,“ sagði Erlendur
Sveinsson í stuttu samtali við
Morgunblaðið. Hann tekur við af
Jakobi Jónssyni, sem lést fyrr á
þessu ári.
„Starfið er í því fólgið að annast
öryggisvörslu og stjórnun þing-
varða. Þá heyra sendlar undir mitt
starf. Það er mikilvægur þáttur í
> starfi þingsins að bera boð hratt
og örugglega," sagði Erlendur.
Athygli vekur, að Erlendur, sem
þekkir vel til öryggismála, er ráð-
inn til starfans. I liðinni viku var
bensínsprengju kastað á Alþingis-
húsið og munaði litlu að stjórtjón
hlytist af. Því lá beint við að
spyrja, hvort öryggisgæsla í og við
Alþingishúsið verði hert? ‘Atvikið
um daginn sýnir nauðsyn þess að
taka öryggismál til gagngerrar
skoðunar. Við höfum verið svo
heppin, að ekki hefur verið reynt,
að skaða ýmsar stjórnarstofnanir.
Atvikið við Alþingishúsið minnir
okkur á að vera á varðbergi og ég
vænti þess, að öryggi Alþingis
verði hert,“ sagði Erlendur Sveins-
son.
Erlendur Sveinsson, nýr yfirþingvörður Alþingis.
Morgunblaöið/Árni Sæberg.