Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 1
48 SIÐUR
STOFNAÐ1913
233. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Enga loðnuveidi í
Barentshafi 1986
— segja fiskifræðingar
Osló, 15. október. Frá fréttaritara Morgunblaðsins. J.E. Laure.
NORSKIR og sovéskir fiskifræding-
ar ætla að mælast til þess að engin
Kasparov nær
forustunni
Moskvu, 15. október. AP.
KASPAROV knúði fram sigur í 16.
skák heimsmeistaraeinvígisins og
hefur nú vinnings forskot á heims-
meistarann. Karpov gaf eftir 40. leik
og gat þá ekki komið í veg fyrir mát.
Kasparov hafði svart og sýndi
frakka taflmennsku og var vel að
sigrinum kominn. Áhorfendur í
Tsjaíkovskí-höllinni risu á fætur
og fögnuðu lengi er skákmennirnir
tókust í hendur að skákinni lok-
inni.
Sjá einnig skákskýringu
á síðu 21.
loðna verði veidd 1986 þar sem
undanfarin tvö til þrjú ár hafi verið
gengið það mikið á loðnustofninn
þar um slóðir.
Fiskifræðingarnir segja að
loðnustofninn hafi numið um 4,5
milljónum tonna árið 1980, en nú
reiknast þeim til að hann sé ekki
stærri en milljón tonn.
Það er ekki aðeins sakir ofveiði
að stofninn er i hættu. Margar
fisktegundir lifa á loðnu og má þar
telja þorsk, ufsa, ýsu og síld. Þessir
stofnar hafa stækkað mikið und-
anfarin ár.
Stöðvun loðnuveiða í Barents-
hafi getur haft hvimleiðar afleið-
ingar fyrir hringnótaflotann og
loðnubræðslur í Norður-Noregi, en
síðan síldveiðar lögðust af hefur
loðnan verið helsta tekjulind
þeirra.
AP/Slmamynd
Mennirnir fjórir sem rændu Achille Lauro. Þeir hafa ekki verið nafngreindir enn.
Sjóræningjar Achille Lauro:
Ætluðu þeir að fremja
hryðjuverk í ísrael?
Genúa, 15. október. AP.
HANDTÖKUSKIPUN var gefin út á hendur tveimur
Palestínumönnum á Ítalíu í dag, og hafa því sjö manns
verið ákærðir fyrir ránið á farþegaskipinu Achille
Lauro í síðustu viku. Ræningjarnir fjórir hafa verið
fluttir í kyrrþey frá Sikiley ti! öryggisfangelsis í Spol-
eto, um 130 km norður af Róm.
Mennirnir tveir, sem voru handteknir í dag, hafa
ekki verið nafngreindir og neitaði saksóknarinn i
Genúa að gefa upp sakargiftir á hendur þeim. En
í ítölsku blaði sagði að annar þeirra hefði farið
með skipinu, en farið frá borði í Alexandríu og
hinn hefði keypt farmiða fyrir fjórmenningana i
Genúa.
Að minnsta kosti einn maður hjálpaði sjóræn-
ingjunum við verknaðinn, er haft eftir manni, sem
að rannsókn málsins stendur. Hryðjuverkamenn-
irnir hafa sagt í yfirheyrslum að hríðskotabyssum
og sprengiefni hafi verið komið fyrir i klefum
þeirra, áður en þeir gengu um borð í skipið.
Bandaríkjamenn greindu frá því í dag að Sýr-
lendingar hefðu fundið sjórekið lík miðaldra manns
nærri hafnarborginni Tartus og verið væri að
rannsaka hvort hér gæti verið um jarðneskar leifar
Leons Klinghoffer að ræða. Hryðjuverkamennirnir
eru taldir hafa myrt hann, en þeir neita því stað-
íastlega.
Hermt er að hryðjuverkamennirnir hafi játað
að hafa rænt skipinu, en það hafi ekki verið upp-
runaleg áætlun þeirra. Þeir hafi neyðst til að gripa
til þessa ráðs þegar þjónn kom að þeim í káetu
þeirra með vopnin uppi við. Að eigin sögn ætluðu
hryðjuverkamennirnir að fara með Achille Lauro
til ísrael og fremja þar hryðjuverk.
Sjá nánar á síðu 22.
Er borgarastríðið
í Líbanon á enda?
Damaskus, 15. október. AP.
HIN stríðandi öfl í borgarastyrjöld-
inni í Líbanon hafa komist að sam-
komulagi um að binda enda á átökin,
sem staðið hafa í áratug og kostað
líf 100.000 manna. Sýrlendingar
AP/Símamynd
Geir Hallgrímsson ásamt Tómasi Tómassyni, sendiherra, á fundi utanríkis-
ráðherra Atlantshafsbandalagsríkja í Brussel í gær.
Utanríkisráðherrafundurinn í Brussel:
Bandaríkjamenn hvattir
til að gera gagntilboð
Bnissel, 15. október. Frá Önnu Bjamadóttur, I
Utanríkisraðherrar ríkja Atlants-
hafsbandalagsins samþykktu í
Brussel í dag fyrirhugaöa málsmeð-
ferð Bandaríkjamanna á fundi Reag-
ans og Gorbachevs í Genf í nóvem-
ber. Geir Hallgrímsson, utanríkis-
ráðherra, situr fundinn fyrir íslands
hönd og sagði hann að fundinum
loknum að samstaða og stuðningur
við sjónarmið Bandaríkjamanna
heföu komið fram.
Hans Dietrich Genscher, utan-
fréttaritara MorgunblaÓNÍns.
ríkisráðherra Vestur-Þýskalands,
sagði eftir fundinn að hann hefði
hvatt Shultz til að hafna ekki til-
boði Sovétmanna um að skera
kjarnorkuvopn niður um helming.
Flestir fulltrúa sögðu mikilvægt
að Bandaríkjamenn legðu drög að
gagntilboði í samráði við banda-
menn sína.
Geir sagði að þess væri ekki að
vænta að komist yrði að endan-
legri niðurstöðu í viðræðunum í
Genf, en líta bæri á þær sem
áfanga í leið að settu marki.
Geir ræddi við Shultz í fundar-
hléi um „Rainbow-málið" og sagði
Geir að Shultz hefði verið bjart-
sýnn á að farsæll endir yrði fund-
inn á málið, en málstaður Banda-
ríkjastjórnar væri sterkur fyrir
dómstólum.
Sjá nánari fréttir af fundinum á
síðu 20.
gegndu hlutverki sáttasemjara og
skýrðu frá sáttmálanum í dag.
í þann mund, sem greint var
frá friðarsamkomulaginu, um-
kringdu sýrlenskir stríðsbátar
eyju skammt undan norðurhluta
Líbanon á meðan fallhlífarher-
menn vörpuðu sér á eyna í leit að
vopnum, er frelsissamtök Palest-
ínumanna eru talin hafa falið þar
fyrir bandamenn sína, öfgasinnaða
múhameðstrúarmenn.
Sýrlensku embættismennirnir
sögðu að sáttmálinn hefði verið
undirritaður á fjórða fundi full-
trúa drúsa, síta og kristinna
manna og varaforseta Sýrlands,
Abdul-Halim Kaddam.
Ekki var greint frá skilyrðum
fyrir samkomulaginu, en sagt að
þau yrðu tilkynnt síðar.
„Allir eru staðráðnir í að stöðva
borgarastyrjöldina og koma á
þjóðarfriði," sagði sýrlenskur
embættismaður.
Michell Samaha, fulltrúi her-
skárra kristinna Líbana, kvað
samræðurnar hafa verið jákvæðar
og uppbyggilegar. Hann sagði að
yfirmanni líbanska hersins, Elie
Hobeika, hefði verið boðið til
Damaskus nk. mánudag.
Þetta er fyrsta sinni sem fulltrú-
ar hinna stríðandi afla hafa sam-
þykkt að binda enda á borgara-
styrjöldina. Leiðtogar stjórnar-
innar hafa gert nokkrar sam-
þykktir þar að lútandi undanfar-
inn áratug, en þær hafa alltaf farið
út um þúfur.
Fulltrúar fylkinganna þriggja
hafa setið fundi í tvær vikur.
Sýrlendingar vilja fá kristna
menn, sem sitja í stjórn Líbanon,
til að samþykkja breytingar á
stjórnskipulaginu og veita múha-
meðstrúarmönnum valdajöfnuð.
Múhameðstrúarmenn eru í meiri-
hluta í Líbanon.
Kristnir menn hafa verið ein-
ráðir í stjórn, dómskerfi og hern-
um frá því að Frakkar gáfu Líban-
on sjálfstæði 1943. Þá voru kristnir
íbúar landsins í meirihluta, en nú
er talið að múhameðstrúarmenn
séu rúmur helmingur landsmanna.
Einn skæruliði var drepinn í dag
og fimm borgarar og fimm skæru-
liðar særðir í átökum í borgarhluta
kristinna í Beirút í nótt.