Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR16. OKTÓBBR1985
Askriftarsímmn er 83033
Þing Landssambands slökkviliðsmanna:
Áhyggjur af aukinni hættu á
slysum af völdum eiturefna
Morgunblaöiö/Bjarni
Höskuldur Einarsson, formaður Landssambands slökkviliðsmanna, ávarpar
þingfulltrúa.
DAGANA 11—13 október sl. var 13
þing Landssambands slökkviliðs-
manna haldið að Hótel Hofi, Reykja-
vík.
Mættir voru þingfulltrúar frá
félögum slökkviliðsmanna víðs
vegar af landinu. Mörg stórmál
voru tekin fyrir og rædd á þinginu
og ber þar hæst menntunar- og
öryggismál slökkviliðsmanna.
Mættir voru þingfulltrúar frá
félögum slökkviliðsmanna víðs
vegar af landinu. Mörg stórmál
voru tekin fyrir og rædd á þinginu
og ber þar hæst menntunar- og
öryggismál slökkviliðsmanna.
Þingfulltrúar fögnuðu þeim
skilningi sem félagsmálaráðherra,
Alexander Stefánsson hefði sýnt
málefnum slökkviliðsmanna m.a.
með skipan skólanefndar til undir-
búnings stofnunar skóla fyrir
stéttina. Þingfulltrúar lýstu
ánægju sinni með það samstarf
sem tekist hefur milli SVFÍ og
L.S.S. varðandi öryggisfræðslu
sjómanna og hvatti til aukinnar
samvinnu um þennan málaflokk.
Þingið samþykkti að fela stjórn
LSS að vinna að stofnun þjálfunar
og fræðslumiðstöðvar fyrir
slökkviliðsmenn og aðra þá er á
slíku þurfa að halda.
í ávarpi formanns stjórnar
Brunamálastofnunar ríkisins,
Inga R. Helgasonar, kom fram að
L.S.S. stendur til boða að fá full-
komna slökkvi- og björgunarbif-
reið ásamt tveim leiðbeinendum
frá Noregi. Stjórn LSS hefur
ákveðið að þiggja þetta boð og er
ljóst að bifreið þessi verður mjög
mikil lyftistöng fyrir væntanlega
þjálfunar- og fræðslumiðstöð
sambandsins og kemur til með að
bæta að einhverju leyti úr hinni
geysilegu vöntun á fræðslu til
slökkviliðsmanna þar til að fyrir-
hugaður skóli slökkviliðsmanna
verður að veruleika. Slökkvi- og
björgunarbifreið þessi er eign
Storebrand Norden sem er endur-
fryggjandi Brunabótafélags ís-
lands og munu þeir standa straum
af öllum kostnaði.
Fram kom að slökkviliðsmenn
hafa miklar áhyggjur af aukinni
hættu á eiturefnaslysum og telja
að fræðsla á því sviði sé í algeru
lágmarki og svo er almennt tækja-
kostur slökkviliðanna ekki í neinu
samræmi við þann útbúnað sem
til þarf.
„Stjórn LSS skipa eftirtaldir
menn:
Formaður: Höskuldur Einarsson,
Reykjavík, varaformaður: Ágúst
Magnússon, Selfossi, gjaldkeri:
Þorbjörn Sveinsson, Hafnarfirði,
ritari: Birgir ólafsson, Reykjavík-
urflugvelli, meðstjórnendur: Þórir
Gunnarsson, Keflavíkurflugvelli,
Halldór Vilhjálmsson, Keflavíkur-
flugvelli og Baldur Baldursson
Keflavík.
j raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar |
Akranes
Aöalfundur sjálfslæöiskvennafélagsins Bárunnar veröur haldinn
mánudaginn 21. október og hefst kl. 20.30 i sjálfstæöishúsinu viö
Heiöarbraut.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. önnur mál.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Landsmálafélagiö Vöröur
Ráðstefnu Varðar frestað.
Áöur auglýstri ráöstefnu landsmálafélagsins Varöar um utanríkis-
og varnarmál sem halda átti laugardaginn 19. október nk. hefur veriö
frestaö af óviöráöanlegum orsökum. Ný dagsetning hefur ekki veriö
ákveöin en verður auglýst nánar síöar.
Stiórnin
Hvöt - Trúnaðarráðsfundur
Trúnaðarráösfundur veröur haldinn miö-
vikudaginn 16. október kl. 18.00. Þórunn
Gestsdóttir talar um aógeröir 24. október.
Gestur fundarins veröur Salome Þorkels-
dóttir alþingismaöur og mun hún ræöa þau
mál sem efst eru á baugi á þingi.
Stjórnin.
Týr30ára
í tilefni af 30 ára afmæli Týs, félags ungra sjálfstæöismanna i Kópavogi,
boöar stjórn félagsins lil afmælishófs laugardaginn 19. október nk.
kl. 16.00-20.00 í Sjálfstæöishúsinu aö Hamraborg 1, 3. hæö. Húsið
veröur opið öllum stuöningsmönnum Sjálfstaaöisflokksins frá kl. 18.
Stjórn Týs.
Húsvíkingar — Þingeyingar
Breytt viðhorf —
breytt stjórn
Almennur stjórn-
málafundur veröur
haldinn i Félagsheim-
ilinu Húsavík laugar-
daginn 19. október
kl. 13.30. Frummæl-
endur: Þorsteinn
Pálsson formaöur
Sjálfstæöisflokksins
og Halldór Blöndal
alþingismaöur.
Sjálfstæðis/élögin
Fulltrúaráð sjálfstæðis-
félaganna f Reykjavík
— Almennur fulltrúaráösfundur
Fulltrúaráó sjálfstæóisfélaganna í Reykjavik
heldur almennan fulltrúaráösfund í kvöld,
miövikudaginn 16. okt., kl. 20.00 í Sjálfslæö-
íshúsinu Valhöll.
Dagskrá:
1. Ákvörðun tekin um hvort halda skuli próf-
kjör vegna borgarstjórnarkosninga voriö
1986.
2. Ræóa Davíös Oddssonar borgarstjóra.
3. önnurmál.
Fundurinn er opinn meölimum fulltrúaráðsins.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Garðabær
Bessastaðahreppur
Fulltrúaráö sjálfstæöisfélaganna i Garöabæ
og Bessastaóahreppi boða félaga sína til
fundar fimmtudaginn 17. okt. kl. 18.15 i
sjálfstæðishúsinu Lyngási 12. Ólafur G. Ein-
arsson alþingismaöur mætir á fundinn og
ræöir stjórnmálaviöhorfin.
Fjölmenniö.
Stjórnin.
Fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna
í Kópavogi
boöar til fundar miövikudaginn 23. októbor nk. kl. 20.30 í sjálfstæöis-
húsinu í Kópavogi aö Hamraborg 1,3. hæö.
Fundarefni:
1. Tillaga stjórnar um prófkjör vegna bæjarstjórnarkosninganna voriö
1986.
2. Kosning fjögurra fulltrúa íkjörnefnd.
3. Umræður um kosningaundlrbúning og bæjarmál. Bæjarfulltrúar
flokksins flytja stutlar framsögur og svara fyrlrspurnum.
Fulltrúar eru hvattir til aö f jölmenna á fundinn.
Stjórnin.
Fulltrúaráð Sjálfstæöísfélaganna í Reykjavík
Almennur fulltrúa-
ráðsfundur
Almennur fundur í fulltrúaráöi sjálfstæöis-
félaganna i Reykjavík veröur haldinn miö-
vikudaginn 16. okt. kl. 20.30 í Sjálfstæóis-
húsinu Valhöll, Háaleltisbraut 1.
Dagskrá:
1. Ákvöröun tekin um hvort halda skuli
prófkjör vegna borgarstjórnarkosninga'
voriö 1986.
2. Ræöa Davíös Oddssonar borgarstjóra.
3. Önnur mál.
Fulltrúaráösmeðlimir eru hvattir til aö f jölmenna.
Stjórnin
Noröurland eystra
Aðalfundur
kjördæmisráös
sjálfstæöisfélag-
anna í Noröurlands-
kjördæmi eystra
hefst meö almenn-
um stjórnmálafundi í
félagsheimilinu á
Húsavík laugardag-
inn 19. október kl.
13.30 en aöalfund-
arstörf hefjast kl.
Gestlr fundarins
veröa Þorsteinn .
Pálsson formaöur Sjálfstæöisflokksins og alþingismennirnir Halldór
Blöndal og Björn Dagbjartsson.
Kjördæmisþinginu veröur slitiö á sunnudag.
Stjórnin