Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. OKTÓBRR1985
fclk í
fiéttum
Dóttir Roberts
Wagner að
gefa út
matreiðslubók
Robert Wagner var giftur
Natalie Wood tvisvar
sinnum en á milli þeirra
hjónabanda giftist hann
Marion Marshall og eignaðist
með henni Katie sem nú er 23
ára. Hún býr í London og var
að enda við að gefa út mat-
reiðslubók sem ber nafnið
„Rock’n Roll Cuisine", þar
sem poppstjörnur gefa upp-
skriftir af sínum uppáhalds-
réttum. Hluti af ágóða bókar-
innar rennur til „Live Aid“
Eþíópíusöfnunarinnar.
Pabbi stúlkunnar tekur
gjarnan hlutverk sem bjóðast
í London svo hann geti verið
nálægt dóttur sinni, en hún
er sögð hafa verið hans stoð
og stytta fyrsta árið eftir
dauða Natalie og verið sam-
kvæmisdama hans við hin
ýmsu tækifæri.
Thatcher komin
í nýtt húsnæði
Olíklegt er að frúin í forsæt-
isráðherrabústaðnum Down-
ingstræti 10 í London sé farin að
huga að bráðri brottför úr þeim
tignarstað en engu að síður er það
staðreynd að hún hefur ásamt
manni sínum Denis nýlega fest
kaup á nýju húsi og um það segir
frú Thatcher m.a.:
I fyrsta skipti í lífinu fæ ég nú
eldhús með nýtísku þægindum
sem mig hefur alltaf langað i. ...
Ég á dálítið af húsgögnum sem
hafa fylgt mér alla tíð og ég er
nokkuð lagin við að sauma glugga-
tjöld. „Þetta er draumahús,“ sagði
járnfrúin, sem varð sextug fyrir
nokkrum dögum.
Jónina Kjartansdóttir
og Sigurlína Guðmunds-
dóttir frá Leikfélagi
Selfoss á námskeiðinu
sem haldið var í „Hjá-
leigu“, húsakynnum
Leikfélags Kópavogs.
Kolbrún Viggósdóttir frá Leikfélagi Skagastrandar.
Ágústa Guðnadóttir frá Leikfé-
laginu sunnan Skarðsheiðar og
Magnús Geir Þórðarson frá
Gamanleikhúsinu í Reykjavík.
Hrönn Albertsdóttir og
Brynja Bjarnadóttir frá
Leikhokknum . Hvamms-
tanga.
Margrét Matthíasdóttir, förðunarmeistari
Þjóðleikhússins, Sveinbjörg V. Lúðvíksdóttir
frá Leikfélagi Grindavíkur og Þorbjörg
Steinsdóttir frá leikfélaginu „Veit mamma
hvað ég vil?“ Reykjavík.
Um síðustu helgi stóð yfir listförð-
unarnámskeið á vegum bandalags ís-
lenskra leikfélaga, sem fólk sótti úr áhuga-
mannaleikfélögum víðsvegar að af land-
inu. Rúmlega 20 manns tóku þátt í nám-
skeiðinu en það voru þær Margrét Matt-
híasdóttir og Elsa Þórisdóttir, hárkollu-
og förðunarmeistarar hjá Þjóðleikhúsinu,
sem leiðbeindu.