Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. OKTÓBER1985
íslandslax hf. í Grindavík:
Framkvæmdir hafnar
við 500 tonna eldisstöð
Kostnaður á annað hundrað milljónir kr.
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við byggingu 500 tonna eldisstöðvar íslands-
lax hf. á Stað í Grindavík. Þorsteinn Olafsson stjórnarformaður fslandslax
hf. tók fyrstu skóflustunguna fyrir skömmu og síðan tóku stórvirkar vinnu-
vélar Hagvirkis hf. við jarðvegsframkvæmdum. Á Stað er nú þegar risin
seiðaeldisstöð eins og kunnugt er og er ráðgert að eldisstöðin taki við seiðun-
um til framhaldseldis í byrjun júní. Byggingarkostnaður stöðvarinnar er
áætlaður eitthvað á annað hundrað milljónir kr.
ólafsson, fram- Þórður ákveðið að kerin yrðu
Þórður H.
kvæmdastjóri íslandslax hf., sagði
í samtali við Morgunblaðið að
bygging stöðvarinnar hefði verið
boðin út í sumar í fimm áföngum.
Hann sagði að mörg tilboð hefðu
borist en eingöngu væri búið að
semja um jarðvinnuna. Bjóst hann
við að ákvarðanir um næstu
áfanga yrðu teknar á næstu dög-
um. Islandslax samdi við Hagvirki
hf. um jarðvinnuna fyrir um 2,5
milljónir kr.
Eldið á að fara fram í óupp-
hituðum sjó í kerum á landi. Sagði
steinsteypt, byggð úr forsteyptum
einingum. Þau verða samtals 20,
12 með 13 metra þvermál og 8 með
26 metra þvermál. Þórður sagði
að tvö tilboð hefðu verið lægst í
byggingu keranna, um 50 milljónir
kr., frá Hagvirki og fstaki. Stálver
átti lægsta tilboðið í véla- og
lagnahliðina, um 6 milljónir, og
Geisli í Keflavík átti lægsta til-
boðið í rafmagnsvinnu, 3,5 milljón-
ir kr. Þá hafa framkvæmdir við
sjótöku verið boðnar út og áttu
Hagvirki og Norðurverk lægstu
Báti stolið í Hafnarfírði
Rannsóknarlögregla ríkisins lýsir
eftir báti sem stolið var ásamt kerru
á tímabilinu 15.—30. september síð-
astliðinn.
Báturinn stóð við Lýsi og mjöl í
Hafnarfirði. Báturinn var smíðað-
ur í Noregi og er 21 fet að lengd,
frambyggður og brúnn að lit. Ekk-
ert nafn var á bátnum.
Meðfylgjandi mynd er af bátn-
um. Þeir sem geta gefið upplýs-
ingar um hvarf bátsins eða vita
hvar hann er núna, eru beðnir að
•hafa samband við RLR.
Austfirðir:
Fjögur félög hafa
fellt bónussamninga
FORYSTUMENN verkalýðsfélaganna í Neskaupstað, á Stöðvarfirði og
Breiðdalsvík hittast á Egiísstöðum í dag til að bera saman bækur sínar um
nýja bónussamninga en á þessum stöðum hafa félagsmenn í verkalýðs-
félögunum felit nýgerða bónussamninga Verkamannasambandsins og at-
vinnurekenda.
Samningarnir hafa auk þess
verið felldir á Hornafirði en sam-
þykktir á Eskifirði og Fáskrúðs-
firði. Seyðfirðingar eiga enn eftir
að taka afstöðu til samninganna
og sömuleiðis verkalýðsfélögin á
Vopnafirði og Borgarfirði eystra
en þar er ekki unnið við fiskverkun
(aðra en saltfiskverkun) sem
stendur vegna yfirstandandi slát-
urtíðar.
Fundur um
prófkjör
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri flyt-
ur ræðu á almennum fulltrúa-
ráðsfundi sem haldinn verður í
kvöld, miðvikudaginn 16. október,
kl. 20:30 í sjálfstæðishúsinu Val-
höll. Á fundinum verður ennfrem-
ur tekin ákvörðun um það hvort
halda skuli prófkjör vegna borgar-
stjórnarkosninga vorið 1986.
Fundurinn er opinn öllum með-
limum fulltrúaráðsins og eru þeir
hvattir til að fjölmenna.
tilboðin, um 8 milljónir. Fyrir utan
þetta er eftir að kaupa allan vél-
búnað og taldi Þórður að hann
myndi kosta 10—15 milljónir kr.
Með öðru er þetta dæmi upp á
eitthvað á annað hundrað milljón-
ir kr., að sögn Þórðar.
t seiðastöð Islandslax hf. eru nú
seiði af norskum stofni, seiði sem
keypt voru sem augnhrogn frá
Noregi í apríl. Þau verða sett í
útikerin í byrjun júní og eiga að
vera komin í sláturstærð um ára-
mótin 1987/88.
Morgunblaöið/RAX
Prins Jóakim á Reykjavíkurflugvelli
á leið norður í land ásamt félögum
sínum, þar sem þau dvöldu við Mý-
vatn og skoðuðu meðal annars Detti-
foss og Ásbyrgi áður en haldið var til
Akureyrar og þaðan aftur til Reykja-
víkur.
Danskir menntaskólanemar
heimsækja Menntaskólann í Reykjavík:
Prins Jóakim á
meðal gestanna
PRINS Joakim, yngri sonur Margrétar Danadrottningar og prins Henrik,
er í hópi nemenda úr Öregaard Gymnasium í Hellerup, sem hingað eru
komnir í stutta kynnisferð. Nemendurnir eru hér á vegum Menntaskólans
í Reykjavík og tóku nemendur hans á móti þeim við komuna. Dönsku
gestirnir gista allir á einkaheimilum nemenda Menntaskólans á meðan á
heimsókninni stendur nema prins Joakim, sem þáði boð forseta Islands
Vigdísar Finnbogadóttur um að dvelja hér á hennar vegum.
Að sögn Guðna Guðmundssonar inni. Brugðu menn fyrir sig ýmsum
Kvikmyndahátíð kvenna
Agnés Varda
viðstödd
sýningu
kvikmyndar
sinnar
FRANSKI kvikmyndaleikstjórinn
Agnés Varda, annar gestur kvik-
myndahátíðar kvenna, verður við-
staddur er rekinn verður endahnút-
urinn á hátíðina með sýningu á
nýjustu kvikmynd hans Sans toit
ni loi, nk. föstudag, 18. október, kl.
21.
Varda hefur verið talin í hópi
virtustu kvikmyndahöfunda
Frakklands. Hún hlaut Gullljónið
i Feneyjum í síðasta mánuði fyrir
myndina Sans toit ni loi, en það
eru ein eftirsóttustu verðlaun sem
veitt eru fyrir kvikmyndaleik-
stjórn. Á fimmtudag kl. 17 mun
Varda svo kynna þrjár aðrar
myndir sínar sem sýndar eru á
kvikmyndahátíðinni, Daguerre-
otypes, Ulysse og Réponse de
femmes.
Fréttatilkynning
rektors Menntaskólans í Reykjavík
sátu Danirnir nokkra tíma í
Menntaskólanum og kynntu sér
skólastarfið. Skólinn bauð þeim
síðan í skoðunarferð um borgina
og síðan tóku nemendur Mennta-
skóians á móti þeim í Casa Nova
þar sem boðið var upp á veitingar.
Vel fór á með gestum og gestgjöf-
um, sem héldu í stuttar ferðir um
nágrenni borgarinnar og skoðuðu
það sem ekki náðist í skoðunarferð-
tungumálum, nokkrir þökkuðu fyr-
ir sig á ensku, aðrir töluðu íslensku
og var svarað á dönsku.
Síðastliðið vor stóð til að nem-
endur fimmta bekkjar Menntaskól-
ans í Reykjavík færu til Danmerkurx
og sæktu heim öregaard Gymnas-
ium. Af því gat ekki orðið þá en
vonir standa til að það verði hægt
síðar og verður það þá í fyrsta
skipti um langt árabil sem nem-
endaskipti sem þessi fara fram.
Franski kvikmyndaleikstjórinn Agn-
és Varda.
Það eru einkum ákvæði um að
samningarnir væru samþykktir á
öllum stöðum, að því er Sigfinnur
Karlsson, forseti Alþýðusambands
Austurlands, sagði í samtali við
Morgunblaðið. „Við munum ráða
ráðum okkar á þessum fundi en
fundir með atvinnurekendum hafa
ekki verið ákveðnir enn,“ sagði
hann.
Davíð Oddsson borgarstjóri
Enn kemur FIAT á
óvart
Tveir verðlaunabíl-
ar á frábæru verði
Fiat Uno 45 s kr.
278.000
Fiat Panda 4 x 4 kr.
w 328.000
Þeir eru á heimavelli í snjó og ófærð FIAT
PANDA
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Simar 77200 - 77202