Morgunblaðið - 20.10.1985, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER1985
Kristín Steingríms-
dóttir - Minning
Stína frænka er dáin. Hún
veiktist snögglega að morgni
föstudagsins 11. október sl. og var
flutt í Sjúkrahúsið á Selfossi. Um
kvöldið var hún öll.
Kristín Steingrímsdóttir fædd-
ist á ísafirði 23. september 1909.
Foreldrar hennar voru Steingrím-
ur Benediktsson, skósmiður, og
kona hans, Kristjana Katarínus-
dóttir. Stína var elst þriggja
barna þeirra hjóna, hin voru
Sæmundur er lést 1958, og Ingunn
Katrín er lést 1961, bæði um aldur
fram.
Stína giftist 30. nóvember 1935
Jónasi Halldórssyni, rakarameist-
ara, ættuðum frá Seyðisfirði, og
bjuggu þau 5 fyrstu árin á ísafirði,
en í janúar 1940 fluttust þau til
Siglufjarðar.
Stína og Jónas eignuðust 5 börn.
Eitt barn misstu þau nýfætt. Hin
eru: Hermína, sjúkraliði, gift
Karli Th. Lilliendahl hljóðfæra-
leikara og starfsmanni Húsa-
smiðjunnar, Guðný, sjúkraliði,
gift Jónmundi Hilmarssyni húsa-
smíðameistara, Stefán,
hárgreiðslumeistari á Selfossi,
kvæntur Valgerði Gísladóttur, og
Dagný, sjúkraliði, gift Sigurði
Sveinbjörnssyni húsasmíðameist-
ara. Barnabörnin eru 12 og barna-
barnabörnin 2.
Er börnin uxu úr grasi fór það
svo að leið þeirra lá suður á land,
eins og svo margra annarra. Þá
voru Stína og Jónas orðin ein eftir
í fallega húsinu sínu á Kirkjustíg
9. Veturnir voru oft langir og var
þá beðið eftir sumrinu, en þá
komu börnin og barnabörnin í
heimsókn í sumarfríum og stund-
um dvöldu ömmubörnin þar
sumarlangt.
Kg og fjölskylda mín minnumst
sérstaklega þessara heimsókna á
sumrin. Það var aldrei farið norð-
ur í sumarfrí án þess að heim-
sækja Stínu og Jónas og dvelja hjá
þeim í nokkra daga. Þar var tekið
á móti okkur með höfðingsskap,
enda var Stína húsmóðir af lífi og
sál.
í nóvember 1979 fluttu Stína og
Jónas frá Siglufirði og settust að á
Stokkseyri, í nágrenni við son
sinn, Stefán, á Selfossi. Það hefur
ekki verið sársaukalaust fyrir þau
að kveðja húsið sitt, fjörðinn og
fjöllin, þar sem þau höfðu lifað og
búið saman í 40 ár. Þau keyptu
lítið hús á Stokkseyri og bjuggu
þar vel um sig, og þar voru þau í
meiri nálægð við börn sín og fjöl-
skyldur þeirra, sem gafst þaá
fleiri tækifæri til njóta samvista
með þeim. Einnig heimsótti þau
fjöldi vina og kunningja sem leið
áttu um Suðurlandsundirlendið.
Fyrir fjórum árum fóru Stína
og Jónas til sólarlanda með dóttur
sinni og tengdasyni. Þau létu ekki
þar við sitja, heldur fóru alls fjór-
ar ferðir, þar af þrjár á eigin veg-
um. Þá var það fastur liður að þau
dvöldu á heimili okkar í Keflavík í
nokkra daga er heim kom, síðast í
júlí sl. Það eru okkur dýrmætar
minningar, sem og allar samveru-
stundir er við höfum átt saman.
Að lokum vil ég þakka Stínu
fyrir alla þá ástúð og umhyggju
sem hún sýndi okkur systkinunum
á erfiðum stundum og alla tíð.
Einnig vil ég þakka henni fyrir
þann hlýhug sem hún sýndi konu
minni og dætrum, sem væru þær
tengdadóttir og ömmubörn. —
Guð blessi minningu hennar.
Við vottum Jónasi, börnum
hans og öðrum ástvinum dýpstu
samúðarkveðjur og biðjum Guð að
styrkja þau í sorg sinni.
Steingrímur
Guðrún Guðbrands-
dóttir - Minning
Fædd 24. febrúar 1908
Dáin 12. október 1985
Að morgni hins 13. október sl.
bárust okkur hjónum þau sorgar-
tíðindi að kvöldið áður hefði
tengdamóðir mín, Guðrún Guð-
brandsdóttir, látist á Landa-
kotsspítalanum.
Sárt er að frétta lát ættingja
þegar maður er staddur tieima á
íslandi, en helmingi verra þegar
verið er á ferðalagi erlendis.
Guðrún Guðbrandsdóttir fædd-
ist hinn 24. febrúar 1908 að Litlu-
gröf í Mýrasýslu, dóttir hjónanna
Olafar Gilsdóttur og Guðbrandar
Sigurðssonar oddvita.
Systkini Guðrúnar voru 10.
Elstur var Ingólfur fyrrum hrepp-
stjóri að Hrafnkelsstöðum, látinn
1972, Sigurður fyrrum mjólkur-
bússtjóri í Borgarnesi, látinn 1984,
Jenny fyrrverandi verkakona,
Reykjavík, látin 1983, Stefanía
húsfrú í Borgarnesi, Pétur sem
lést á unga aldri, Haíldóra húsfrú
á Brúarlandi, Andrés verkamaður
í Reykjavík, Sigríður húsfrú í
Reykjavík, Ólöf húsfrú í Reykja-
vík og Hrefna húsfrú í Reykjavík.
Fyrstu ár ævi sinnar dvaldi
Guðrún í foreldrahúsum á fjöl-
mennu heimili. 1933 fór Guðrún til
Reykjavíkur og starfaði fyrst sem
vinnukona við húshjálp og síðar í
Laugavegsapóteki.
30. október 1937 var mikill
gæfudagur í lífi Guðrúnar, en
þann dag giftist hún Októ Þor-
grímssyni, fæddum í Reykjavík
hinn 31. október 1915.
Hófu þau búskap í Reykjavík og
áttu meðal annars heima í Garða-
stræti 4 og síðast á Víðimel 19. Á
heimili þeirra á Víðimelnum
dvöldust oft ættingjar Guðrúnar,
er þeir komu til Reykjavíkur.
Októ Þorgrímsson var mikill
mannkostamaður, góður heimil-
isfaðir og stoð og stytta Guðrúnar.
Októ Þorgrímsson starfaði allan
sinn starfsaldur hjá Leðurverzlun
Jóns Brynjólfssonar, Austurstræti
3 hér í bæ.
Börn Guðrúnar og Októs eru:
Óttar fæddur 5. janúar 1936,
framkvæmdastjóri, ókvæntur,
ólöf fædd 31. október 1904, röntg-
entæknir, gift undirrituðum, eig-
um við 4 börn og eitt barnabarn,
Þorgrímur fæddur 18. maí 1945,
skrifstofustjóri, kvæntur Ebbu G.
Pétursdóttur. Eiga þau 2 syni.
Hjónaband Guðrúnar og Októs
var mjög gott en ekki urðu árin
mörg. Árið 1958 lést Októ skyndi-
lega aðeins 43 ára að aldri. Var
hann öllum harmdauði.
Eftir lát Októs starfaði Guðrún
nokkur ár m.a. í Efnagerð Reykja-
víkur við iðnaðarstörf og hjá
Mjólkursamsölunni í Reykjavík,
við afgreiðslu í mjólkurbúð. Veittu
þessi störf henni mikla ánægju og
lífsfyllingu.
Það mun hafa verið 1961 sem
Guðrún og synir hennar fluttu í
Stóragerði 30. Um það leyti stofn-
uðum við ólöf okkar fyrsta heimili
hinum megin á ganginum í sama
stigahúsi. Það má segja að skrefin
hafi ekki verið mörg á milli okkar
en nábýlið í alla staði mjög gott.
Það sem mér fannst einkum ein-
kenna Guðrúnu í löngum sam-
skiptum okkar var glaðværð henn-
ar og ánægja hennar með lffið og
tilveruna. Þótt það megi með
sanni segja að mjög margt hafi
t
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
GUORÚN GUOBRANDSDÓTTIR,
verður jarösungin trá Bústaöakirkju mánudaginn 21. október kl.
15.00.
Óttar Óktósson,
Ólöf Óktósdóttir, Einar Kristinsson,
Þorgrimur Óktósson, Ebba G. Pétursdóttir,
börn. tengdabörn og barnabarn.
blásið á móti henni, lát eigin-
manns hennar og ótal sjúkdómar
og fjölmargar spítalalegur.
Annar þáttur var mjög sterkur í
fari Guðrúnar, en það var hversu
barngóð hún var. Er mér sérstak-
lega hlýtt að hugsa til þess hversu
góð Guðrún var börnum okkar
Ólafar. Þau sakna hennar mikið
eins og við öll.
Við kveðjum góða konu, elsku-
lega móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu.
Guð blessi minningu hennar.
Einar F. Kristinsson
Friófinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið 5II kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
4S^
t
Eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
KRISTÍN STEINGRÍMSDÓTTIR,
Eyrarbraut 6, Stokkseyri,
áður búsett á Siglufiröi,
veröur jarösungin frá Hallgrímskirkju mánudaginn 21. október kl.
13.30.
Jónas Halldórsson,
Hermína J. Lilliendahl, Karl Lillíendahl,
Guöný Jónasdóttir, Jónmundur Hilmarsson,
Stefán Jónasson, Valgeröur Gísladóttir,
Dagný Jónasdóttir, Siguróur Sveinbjörnsson,
barnabórn og barnabarnabörn.
t
Móðirmín,
SÓLVEIG JÚLÍUSDÓTTIR
frá Grindum, Skagafiröi,
Grundarstig 5b,
Reykjavík,
veröur jarösungin frá Hallgrimskirkju þriöjudaginn 22. október kl.
13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Hallgrímskirkju. Jarösett verður í Gufuneskirkju-
garöi.
Sigurlína Hermannsdóttir.
t
GUOMUNDUR JÓNSSON,
Háageröi 37,
Reykjavík,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 22. október kl.
15.00.
Vilborg Ingimundardóttir,
Lilly Guömundsdóttir, Gunnar Páll Ingólfsson,
Lilja Guömundsdóttir,
Jón I. Guðmundsson,
Jóhanna Steindórsdóttir,
börn og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginkonu
minnar, móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR BJÖRNSDÓTTUR,
Garöi, Núpasveit.
Einar Benediktsson,
Pétur Einarsson, Helga Helgadóttir,
Lára Einarsdóttir, Halldór Halldórsson,
Sigurveig Einarsdóttir, Ólafur Benediktsson,
Guðbjörg Einarsdóttir, Olfert Náby,
Vilborg Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega þann hlýhug sem okkur var sýndur viö andlát og
útför
HELGA FINNBOGASONAR,
Álftamýri 46.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki Búrfellsvirkjunar og Lands-
virkjun.
Svava Guðbergsdóttir,
Sigríöur Helgadóttir,
Helgi Fannar Vilhjálmsson,
Sigurrós Helgadóttir, Þorsteinn Guölaugsson,
Anna Garöarsdóttir,
Guörún Karítas Garöarsdóttir.
Fyrirtæki til sölu
Til sölu fyrirtæki ásviði málningarframleiöslu. Tæki, lager
og framleiösluleyfi. Heppilegt fyrir tvo samhenta menn.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Árni G. Finnsson hrl., Strandgötu 25,
Hafnarfiröi, sími 51500.
I
Hef opnað
tannlæknastofu mína á Barónsstíg 5.
Tímapantanir í síma 22969.
Friðrik H. Ólafsson
tannlæknir.