Morgunblaðið - 02.11.1985, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÖVEMBER1985
Morgunblaðid/Bjarni
Vid nýja röntgentækið, f.v.: Benedikt Blöndal, formaður RKÍ, Ragnhildur Helgadóttir, heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra, Gunnlaugur Snædal, formaður Krabbameinsfélags íslands, Ólafur Ólafsson, landlæknir, og Páll Sigurðs-
son, læknir, ráðuneytisstjóri i heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
RKÍ færir Krabbameinsfélaginu fullkomin tæki að gjöf:
Tækin auka möguleika á
að greina brjóstakrabba-
mein á byrjunarstigi
RAUÐI kross íslands hefur í tilefni
60 ára afmælis síns í desember 1984
fært Krabbameinsfélagi íslands að
gjöf fullkomið röntgentæki til
myndatöku af brjóstum, ásamt nýj-
um, fullkomnum búnaði til töku
frumusýna. Með þessum tækjum
aukast möguleikar á að greina brjós-
takrabbamein á byrjunarstigi.
Tækin voru formlega afhent í
húsi Krabbameinsfélagsins í gær
að viðstöddum heilbrigðismála-
ráðherra, Ragnhildi Helgadóttur,
og fleiri gestum. Benedikt Blöndal,
formaður RKÍ, ávarpaði gesti og
kvað það afar ánægjulegt að geta
haldið upp á 60 ára afmælið með
því að færa Krabbameinsfélaginu
og þar með íslensku þjóðinni þessi
tæki að gjöf. Yrðu þau vonandi til
þess að fækka dauðsföllum af völd-
um krabbameins. Sagðist Benedikt
Shultz hittir ráð-
herra í Reykjavík
GEORGE Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og að minnsta kosti tveir
aðrir háttsettir embættismenn Reagan-stjórnarinnar, koma til Reykjavíkur á
þriðjudagskvöldið og staldra hér við í tæpan sólarhring, skv. upplýsingum utan-
ríkisráðuneytisins.
Bandaríski utanríkisráðherrann
kemur hingað frá Moskvu, þar sem
hann heldur nú lokafund með starfs-
bróður sínum, Eduard Shevardnadze,
til undirbúnings fyrirhuguðum fundi
Reagans Bandaríkjaforseta og Mik-
hails Gorbachevs leiðtoga sovéska
kommúnistaflokksins í Genf síðar í
þessum mánuði. Með Shultz í förinni
verða meðal annarra Robert McFar-
lane, öryggismálaráðgjafi Banda-
ríkjaforseta, og Rosalynn Ridgeway,
aðstoðarutanríkisráðherra fyrir
Evrópu, auk um tuttugu blaöa- og
fréttamanna og hóps öryggisvarða.
Reiknað er með að bandarísku emb-
ættismennirnir muni halda stuttan
fréttamannafund í Reykjavík á mið-
vikudaginn en á leiðinni frá Moskvu
heldur Shultz fund með bandarísku
fréttamönnunum skv. upplýsingum
frá Upplýsingaþjónustu Bandaríkj-
annaíReykjavík.
Hópurinn mun búa á Loftleiðahót-
elinu í Reykjavík. Árdegis á miðviku-
dag verður haldinn fundur banda-
rísku embættismannanna og ís-
lenskra ráðherra í Ráðherrabústaðn-
um við Tjarnargötu. Ekki er talið
ólíklegt, að bandaríski utanrfkisráð-
herrann reyni að nota tækifærið til
að reyna Vesturbæjarsundlaugina
eftirþann fund.
Shultz hefur viðdvöl hér að eigin
ósk, enda er Island ákjósanlegur
áningarstaður á leið milli höfuð-
borga stórveldanna tveggja. Ekki er
endanlega ákveðið, að sögn Ólafs
Egilssonar, skrifstofustjóra í utan-
rfkisráðuneytinu, hvert verður um-
ræðuefnið á fundinum í Ráðherrabú-
staðnum. Þó má reikna með að þar
verði heimsmálin reifuð, skýrð við-
horf stjórna landanna til fyrirhugaðs
leiðtogafundar og rædd tvíhliða mál,
til dæmis um sjóflutninga til varnar-
liðsins á Keflavfkurflugvelli.
Öryggis bandarísku gestanna verð-
ur gætt vandlega, eins og venja er
við heimsóknir svo hátt settra
manna. Um þetta atriði fengust
engar upplýsingar í utanríkisráöu-
neytinu í gær en íslenskir lögreglu-
menn munu væntanlegan taka þátt
í þeirri öryggisgæslu.
Ljóð
námu land
— Ný Ijóðabók eftir
Sigurð Pálsson
Út er komin Ijóðabókin „Ljóð
námu land“ eftir Sigurð Pálsson.
Það er Forlagið, sem gefur bókina út.
Ljóðunum er skipt í átta flokka
og eru heiti þeirra: „Ljóðnámu-
land, Ratsjá vongleðinnar, Vor-
kvöld í Reykjavík, Draumorð,
Færeyjar, Nær og fjær, Miðbærinn
í Reykjavíkurborg og Þáframskil-
dagi. Bókin er 88 blaðsíður.
Sigurður Pálsson hefur áður
sent frá sér ljóðabækurnar Ljóð
vega salt (1975), Ljóð vega menn
(1980) og Ljóð vega gerð (1982).
Ennfremur hefur hann skrifað
leikritin Hvað er í kokinu á hvaln-
vona að þetta yrði fyrsta skrefið
til frekara samstarfs milli félag-
anna. Gunnlaugur Snædal, for-
maður Krabbameinsfélagsins,
þakkaði því næst hina höfðinglegu
gjöf fyrir hönd félagsins.
Þá skýrði Baldur Sigfússon, yfir-
læknir á röntgendeild Krabba-
meinsfélagsins, frá kostum nýju
tækjanna. Röntgentækið, sem er
franskt að gerð, er m.a. búið hreyf-
anlegri geislasíu til að útiloka
svonefnda dreifigeislun og því
fylgir búnaður til að taka myndir
af litlum svæðum, með beinni
stækkun og auknum myndgæðum.
Hitt tækið, sem hannað er í Sví-
þjóð, tengist röntgentækinu beint
og er það ætlað til töku frumusýna
frá grunsamlegum breytingum,
einkum þeim sem sést hafa á
brjóstamyndum en eru ekki áþreif-
anlegar.
1 frétt frá Krabbameinsfélaginu
segir að hin myndarlega gjöf RKl
og aukin þekking á þessu sviði
muni væntanlega leiða til bættrar
greiningar krabbameins í brjóst-
um, þannig að sjúkdómurinn
greinist fyrr og í færri tilvikum
en ella þurfi að taka skurðsýni.
Muni þetta einkum koma að gagni
þegar hafin verði skipuleg leit að
brjóstakrabbameini með almennri
röntgenmyndatöku kvenna í
ákveðnum aldurshópum um land
allt, en stefnt sé að því að slík leit
hefjist innan tveggja ára.
Sigurður Pálsson
um, Undir suðvesturhimni, Hlaup-
vídd sex og Miðjarðarför (eða
innan og utan við þröskuldinn).
Stjórnmálaályktun
flokksráðsfundar Sjálfstæðisflokksins:
Skilyrði fyrir áfram-
haldandi stjórnar-
aðild að árangur ná-
ist í efnahagsmálum
EFTIRFARANDI stjórnmálaálvktun
var samþykkt á fundi flokksráðs
Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn
var í gær fóstudag:
Flokksráð Sjálfstæðisflokksins
ítrekar þá samþykkt landsfundar,
að það sé skilyrði fyrir áfram-
haldandi stjórnaraðild flokksins
að árangur náist í efnahagsmálum.
Flokksráðið staðfestir niðurstöðu
sameiginlegs fundar miðstjórnar
og þingflokks í Stykkishólmi 28.
og 29. september sl. þess efnis, að
utanríkisviðskipti verði hallalaus
og skuldasöfnun erlendis verði
stöðvuð. Jafnframt er þeirri
ákvörðun ríkisstjórnarinnar fagn-
að að miða efnahagsstefnuna við
þessi markmið.
Eigi árangur að nást í þessum
efnum verða umbætur að halda
áfram í peningamálum og opin-
berum fjármálum. Sparnaður
verður að eflast svo að ekki þurfi
að leita aukinna lána erlendis.
Vextir verða að hvetja til sparnað-
ar, sem ekki er skattlagður. Opin-
ber rekstur verður að miðast við
eðlilega og hagkvæma þjónustu.
Hann verður að treysta undirstöð-
ur almennrar velferðar án þess að
skerða úr hófi fjárráð einstaklinga
og heimila. Rekstrarhalli og er-
lendar lántökur mega ekki verða
uppspretta þenslu og launaskriðs.
Kjarasamningar eiga að taka mið
af verðmætasköpun þjóðarbúsins
og nauðsyn þess að treysta kaup-
mátt og tryggja hag þeirra, sem
verst eru settir. Mestu varðar að
verðbólga lækki aftur, atvinnulíf
dafni og lífskjör þjóðarinnar geti
þess vegna batnað á komandi
árum.
Flokksráðið staðfestir niður-
stöður nýafstaðinnar ráðstefnu
Sjálfstæðisflokksins um sveitar-
stjórnarmál. Þeim tilmælum er
beint til þingmanna flokksins, að
Alþingi afgreiði frumvarp til laga
um sveitarstjórnir með þeirri
breytingu m.a. að kaflinn um hér-
aðsnefndir, sem yrði þriðja stjórn-
sýslustigið verði felldur úr frum-
varpinu. Sjálfstæði sveitarfélag-
anna þarf að auka og tryggja og
þar með áhrif einstaklinga á þau
mál, sem snerta þá sjálfa, fjöl-
skyldur þeirra og nánasta um-
hverfi. Markmiðið er að einfalda
stjórnkerfið, færa verkefni frá
ríkinu og samræma tekju- og
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga.
Undirbúningur sveitarstjórnar-
kosninga næsta vor er mikilvægt
verkefni Sjálfstæðisflokksins á
þessum vetri. Flokksráðið hvetur
sjálfstæðismenn um land allt til
að hefja nú þegar öfluga baráttu
til að tryggja flokknum sigur í
kosningunum.
Flokksráðið leggur áherslu á, að
einstaklingsfrelsi og athafnafrelsi
er forsenda efnalegra framfara og
grundvöllur ábyrgðar, mannúðar
og umburðarlyndis í samskiptum
fólks. Frá þessari frjálsræðis-
stefnu mun Sjálfstæðisflokkurinn
ekki hvika.
Ungir sjálfstæðis-
menn leggja til
2500 millj. króna
lækkun ríkisútgjalda
Á flokksráðsfundi Sjálfstæöisflokksins sem haldinn var á föstudag kynnti
Vilhjálmur Egilsson, formaður Kambands ungra sjálfstæðismanna tillögur
stjórnar SUS um ráðdeild í ríkisrekstri. Tillögur ungra sjálfstæðismanna
gera ráð fyrir 2500 milljón króna lækkun ríkisútgjalda, eða um 4 til 5% af
ráðstöfunartekjum heimilanna.
I greinargerð með tillögum
stjórnar SUS segir að í fjárlaga-
frumvarpi því sem nú liggur fyrir
Alþingi sé gert ráð fyrir að tekju-
skattur einstaklinga á næsta ári
nemi um 3800 milljónum króna.
Með því að nýta alia fjárhæðina
sem sparast, nái tillögurnar fram
að ganga, til að lækka tekjuskatt
stæðu aðeins eftir 1000 milljónir
króna. Og í greinargerð segir að
þá myndi tekjuskattur einvörð-
ungu leggjast á hátekjufólk. Jafn-
framt er bent á: „Enn má geta
þess að 2500 milljónir króna er
fjárhæð sem svarar um 5 sölu-
skattsstigum. Lækkun söluskatts
myndi lækka vöruverð og hækka
kaupmátt og reyndar væri unnt
að lækka söluskattshlutfallið um
nokkuð meira en 5% vegna þess
að ríkið greiðir sjálfu sér söluskatt
í mörgum tilfellum."
Eins og áður segir gera tillög-
urnar ráð fyrir að lækka megi
ríkisútgjöldin um 2500 milljónir
króna. Meðal þess sem lagt er til
að fellt verði niður í fjárlagafrum-
varpinu eru framlög vegna afleys-
ingaþjónustu bænda (20 m.kr.),
búfjárræktar (21,6 m.kr.), vatns-
veita (8 m.kr.), blaðastyrkja (13
m.kr.), lífeyrissjóðs bænda (32
m.kr.). Þá er einnig lagt til að ýmis
verkefni sem nú eru í höndum
opinberra stofnana eða annarra
aðila er fá beina fjárstyrki frá
ríkinu verði færð til einkaaðila.
Þannig væri hægt að spara vegna
húsameistara ríkisins 2,6 m.kr.,
vegna Búnaðarfélags íslands 33,5
m.kr., vegna Fiskifélags Islands
20,5 m.kr., vegna Bifreiðaeftirlits-
ins 40 m.kr. og vegna ýmisskonar
starfsemi stofnana sem heyra
undir samgönguráðuneytið 186
m.kr. Einnig leggja ungir sjálf-
stæðismenn til að framlög til
ýmissa liða fjárlagafrumvarpsins
verði lækkaðir verulega. Sparnað-
ur sem af þessu næst er áætlaður
um 1.800 milljónir króna. Og að
lokum vilja þeir auka sértekjur
stofnana og lækka útgjöld ríkisins
með þeim hætti um 136 milljónir
króna.
Hafskip hf.;
Eignatjón —
ekki rekstrartap
VEGNA fréttar i Morgunblaðinu
í gær, sem byggð var á ummælum
stjórnarformanns Hafskips skal
tekið fram, að þegar rætt var um
250—300 milljóna króna tap var
átt við eignatjón m.a. vegna verð-
falls á skipum, en ekki að rekstr-
artap nemi þessari upphæð.