Morgunblaðið - 02.11.1985, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
Rás 1
og 2
w
Imorgunþætti rásar II á
fimmtudaginn var, ræddu þátt-
arstjórar, þeir Ásgeir Tómasson
og Kristján Sigurjónsson, við
ónefndan popptónlistarmann, sem
hefir nýlega sent frá sér hljóm-
plötu. Eg má víst ekki auglýsa
vörur hér í þáttarkorninu, öfugt
við til dæmis ítalska starfsbræður
er þiggja meginhluta launa sinna
frá umboðsmönnum listamanna,
enda stórefnaðir menn margir
hverjir, en ekki er allt fengið með
peningunum og því stilli ég mig
um að auglýsa fyrrgreindan popp-
tónlistarmann og plötuna hans, en
vil þess í stað lofa ykkur að berja
augum nokkur tilsvör popptónlist-
armannsins er minna máski á hina
sérstæðu flugmannamállýsku er
getið var í síðasta Reykjavíkur-
bréfi, og vakið hefir mikla athygli,
til dæmis meðal íslenskukennara.
Popptónlistarmaðurinn: ... ég tók
upp þrjá grunna og fékk energí...
byrjaður á annarri plötu með þrjá
grunna ... Hljóðblandaði í Tap-
estry Studio þar sem Mezzó skiptu
um sánd á snerli... döbbuðum
þetta allt upp... minn bransi
byggir á því að kópera erlenda
artista ... hugsa mér að fara um
landið sem artisti, með playback á
bandi...
Tvíkynja?
Ég rek ekki frekar tilsvör fyrr-
greinds popptónlistarmanns, en
þau vöktu sérstaka athygli mína,
vegna þess að það börðust í raun
íslenskan og enskan um völdin.
Nýyrði úr poppheimi vorum, eins
og grunnur, hljóðblöndun og sner-
ill, togast á við ensk hugtök svo úr
verður undarlegasta blanda, slík
er minnir á hrognamál mörlan-
dans, þegar Danir réðu hér lögum
og lofum.
Almannafé
Þungar byrðar hafa verið lagðar
á launamenn þessarar þjóðar á
undanförnum árum, kaupgjalds-
vísitala tekin úr sambandi á sama
tíma og lánskjaravístala og „verð-
lagsvísitala" leika lausum hala. Ég
veit ekki hvernig launþegum þessa
lands hefir brugðið við þá frétta-
maðurinn á rás 1 hóf í fyrrakveld
að lesa upp listann yfir „aukafjár-
veitingar" fyrrum fjármálaráð-
herra. Rúmlega milljarði af skatt-
peningum okkar launamanna var
veitt með þessum hætti út í sam-
félagið á seinasta ári (hvað um
hinar óskráðu sporslur liðinna
áratuga?) að hluta vegna kjara-
samninga en seinasta hálfa mán-
uðinn er fyrrum fjármálaráðherra
sat í embætti, útdeildi hann hvorki
meira né minna en 135 milljónum
króna með undirritun 201 auka-
fjárveitingar. Þessir skattpening-
ar hrutu í ólíklegustu áttir: 5 millj-
ónir í Hallgrímskirkju, 2 í Kvenna-
hús, 1 'k til Ólympíunefndar og
álíka til KR og ekki má gleyma
Lionsklúbbinum á Djúpavogi sem
fékk 50 þúsund. Ekki var getið um
það hve margir húsbyggjendur
fengu „aukafjárveitingu" úr hinum
sameiginlega sjóði. Máski hafa
lögfræðingarnir er ganga nú hér
hús úr húsi og krefjast lögtaks og
fjárnáms eða hvað þetta heitir nú
allt saman, einhverja smá „auka-
fjárveitingu" uppá vasann? Ekki
veitir „litla manninum", er stóð
undir „endurreisn efnahagslífs-
ins“, af smá huggun á þessarri
vargöld okurvaxta og litfagurra
óskráðra verðbréfa.
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP/SJÓNVARP
Fastir liðir „eins og venjulega“
— íslenskur fjölskylduharmleikur
■I Annar þáttur
00 íslenska fjöl-
— skylduharm-
leiksins Fastir liðir „eins
og venjulega" er á dagskrá
sjónvarps kl. 21.10 í kvöld.
Þættirnir eru eftir þau
Eddu Björgvinsdóttur,
Helgu Thorberg og Gísla
Rúnar Jónsson. Aðstoðar-
leikstjóri er Viðar Egg-
ertsson og leikmynd gerði
Gunnar Baldursson. Tón-
list er eftir Vilhjálm
Guðjónsson.
Leikendur eru: Júlíus
Brjánsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Jóhann
Sigurðarson, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Arnar Jóns-
son, Hrönn Steingríms-
dóttir, Heiðar Örn
Tryggvason, Friðgeir
Grímsson, Oddný Agnars-
dóttir, Guðmundur Klem-
enzson, Kristján Franklín
Magnús, Sigurður Sigur-
jónsson og fleiri.
Upptöku stjórnaði Við-
ar Víkingsson. Þátturinn
verður endursýndur 10.
nóvember. Alls eru þætt-
irnir sex og verða sýndir
hálfsmánaðarlega.
Leikstjórinn Gísli Rúnar ásamt tveimur leikenda í Fastir
liðir „eins og venjulega"
Gestgjafar og gestir á Staupasteini.
Staupasteinn
■i Bandaríski
35 gamanmynda-
— flokkurinn
„Staupasteinn" er í sjón-
varpi í kvöld kl. 20.35 og
er það þriðji þáttur sem
verður á dagskrá.
Þættirnir gerast á með-
al gesta og þjónustuliðs á
krá einni í Boston. Þýð-
andi er Guðni Kolbeins-
son.
LAUGARDAGUR
2. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Tónleikar, þulur velur og
kynnlr.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Islenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veöurfregnir. Tónleikar.
8.30 Lesiö úr forystugreinum
dagblaðanna. Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
9.30 Oskalög sjúklinga. Helga
Þ. Stephensen kynnir.
10.00 Fréttir.
Daglegt mál. Endurtekinn
páttur frá kvöldinu áður I
umsjá Guövarðar Más Gunn-
laugssonar.
10.10 Veðurfregnir.
Óskalög sjúklinga, framhald.
11.00 Bókaþing. Gunnar Stef-
ánsson dagskrárstjóri stjórn-
ar kynningarþætti um nýjar
bækur.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur I
vikulokin.
15.00 Miðdegistónleikar
a. Syrpa um rússnesk þjóð-
lög op. 58 eftir Anatole
Ljadov. Sinfónluhljómsveitin
I Moskvu leikur. Évgenl
Svjetlanov stjórnar.
b. Fiðlukonsert nr. 2 I d-moll
op. 22 eftir Henwyk Wien-
iawski. Itzhak Perlman leikur
með Orchestre de Paris.
Daniel Barenboim stjórnar.
15.40 Fjölmiölun vikunnar.
Margrét S. Björnsdóttir end-
urmenntunarstjóri talar.
15Æ0 Islenskt mál. Asgeir
Magnússon flytur þáttinn.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Listagrip. Þáttur I umsjá
Sigrúnar Björnsdóttur um
listir og menningarmál.
17.00 Framhaldsleikrit barna og
unglinga: „Ævintýraeyjan"
eftir Enid Blyton.
Fjórði þáttur af sex. Þýðandi:
Sigrlður Thorlacius. Steindór
Hjörleifsson bjó til flutnings
l útvarp og er leikstjóri. Leik-
endur: Halldór Karlsson, Arni
Tryggvason, Kristln Anna
16.00 Móðurmálið — Fram-
burður.
Endursýndur þriðji þáttur.
16.10 Iþróttir.
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
18.30 Enska knattspyrnan.
19.20 Steinn Marcó Pólós.
(La Pietra de Marco Polo)
Sjötti þáttur.
Italskur framhaldsmynda-
flokkur fyrir börn og ungl-
inga.
Þættirnir gerast I Feneyjum
þar sem nokkrir átta til tólf
ára krakkar lenda I ýmsum
ævintýrum.
Þýðandi Þuriður Magnús-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttlr og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Staupasteinn (Cheers)
Þriðji þáttur.
Bandarlskur gamanmynda-
flokkur sem gerist á meðal
Harry og Walther halda til New York
— bandarísk bíómynd frá 1976
H Bandaríska bíó-
40 myndin „Harry
— og Walther
halda til New York“ er á
dagskrá sjónvarps kl.
21.40 í kvöld. Myndin er
frá árinu 1976 og er leik-
stjóri Mark Rydell. Aðal-
hlutverkin leika þau Jam-
es Caan, Elliott Gould,
Diane Keaton og Michael
Caine.
Tveir farandleikarar
lenda í steininum og kynn-
ast þar slyngum innbrots-
þjófi. Atvikin haga því svo
að þessir kumpánar kepp-
ast síðar um það hvorir
verði fyrri til að brjótast
inn í banka í New York.
Kvikmyndahandbókin
gefur myndinni eina og
hálfa stjörnu af fjórum
mögulegum.
Á svörtu nótunum
The Supremes
■i Pétur Steinn
00 Guðmundsson
~ sér um þátt
sinn „Á svörtu nótunum"
kl. 20.00 í kvöld á rás 2. í
þættinum og þeim tveim-
ur næstu mun Pétur
Steinn kynna og rifja upp
lög hljómsveitarinnar The
Supremes, sem var vin-
sælasta kvennasveit 7.
áratugarins, og lífshlaup
leiðtoga sveitarinnar, Di-
önu Ross, sem á sér glæsi-
legan sólóferil og er enn
ÚTVARP
meðal stærstu stjarna
poppheimsins.
Supremes var stofnað í
Detroit árið 1960. Auk
Diönu Ross var sveitin
skipuð þeim Mary Wilson
og Florence Ballard. Hin
síðastnefnda sagði skilið
við stöllur sínar árið 1967
og lést níu árum síðar.
Supremes hélt þó áfram
að starfa allt til ársins
1976, en þá hafði Diana
Ross yfirgefið hljómsveit-
ina fyrir alllöngu.
Supremes komust á tind
bandaríska vinsældarlist-
ans árið 1964 með lagið
„Where Did Our Love Go“
og ellefu sinnum léku þær
sama leik áður en yfir
lauk. Diana Ross hefur
síðan átt fjöldamörg lög á
vinsældarlistanum aust-
anhafs og vestan og lætur
engan bilbug á sér finna
þótt orðin sé rúmlega fer-
tug.
mmm
Þórarinsdóttir, Þóra Friðriks-
dóttir, Asgeir Friðsteinsson,
Steinþór Hjörleifsson og
Valdimar Lárusson.
17.30 Einsöngur I útvarpssal.
„Astir skáldsins", Ijóðaflokk-
ur op. 48 eftir Robert
Schumann. Robert Becker
syngur. Bjarni Þór Jónatans-
son leikur á planó. Tónleikar.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Stungiö I stúf. Þáttur I
SJÓNVARP
LAUGARDAGUR
2. nóvember
gesta og þjónustuliös á krá
einni I Boston.
Þýöandi Guðni Kolbeinsson.
21.10 Fastir liöir „eins og venju-
lega".
Annar þáttur.
Léttur fjölskylduharmleikur I
sex þáttum eftir Eddu Björg-
vinsdóttur, Helgu Thorberg
og Glsla Rúnar Jónsson leik-
stjóra. Aðstoðarleikstjóri:
Viðar Eggertsson. Leik-
mynd: Gunnar Baldursson.
Tónlist: Vilhjálmur Guðjóns-
son. Leikendur: Júllus
Brjánsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Jóhann Sig-
uröarson, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Arnar Jónsson,
Hrönn Steingrlmsdóttir,
Heiðar örn Tryggvason,
Friðgeir Grlmsson, Oddný
Arnarsdóttir, Guðmundur
Klemenzson, Kristján Frankl-
In Magnús, Sigurður Sigur-
jónsson og fleiri. Upptöku
umsjá Davlðs Þórs Jónsson-
ar og Halls Helgasonar.
20.00 Harmonlkuþáttur
Umsjón: Bjarni Marteinsson.
20.30 „ Eitthvaö illt I húsinu",
smásaga eftir Celiu Fremlin.
Jón B. Guðlaugsson þýddi.
Brlet Héðinsdóttir les.
20.55 Tónleikar.
21.20 Vlsnakvöld
Aðalsteinn Asberg Sigurðs-
son sér um þáttinn.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins.
stjórnaði Viðar Vlkingsson.
Þátturinn verður endursýnd-
ur sunnudaginn 10. nóvem-
ber.
21.40 Harry og Walther halda
til New York
(Harry and Walther Go to
New York).
Bandarlsk blómynd frá
1976.
Leikstjóri: Mark Rydell. Aðal-
hlutverk: James Caan, Elliott
Gold, Diane Keaton og
Michael Caine.
Tveir umferðaleikarar lenda
I steininum og kynnast þar
slyngum innbrotsþjófi. Atvik-
in haga þvl svo að þessir
kumpánar keppast slðar um
þaö hvorir verði fyrri til aö
brjótast inn l banka l New
York.
Þýðandi Olafur B. Guðna-
son.
23.40 Dagskrárlok.
22.30 Aferð
með Sveini Einarssyni.
23.05 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar.
Umsjón: Jón örn Marinós-
son.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
03.00.
10.0C -12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Sigurður Blöndal
14.00—16.00 Laugardagur til
lukku
Stjórnandi: Svavar Gests
16.00—17.00 Listapopp
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son
17.00—18.00 Hringþorðið
Stjórnandi: Heiðbjört Jó-
hannsdóttir
Hlé
20.00—21.00 A svörtu nótun-
um
, Stjórnandi: Pétur Steinn
Guðmundsson
21.00—22.00 Milli strlða
Stjórnandi: Jón Gröndal
22.00—23.00 Bárujárn
Stjórnandi: Sigurður Sverris-
son
23.00—24.00 Svlfflugur
Stjórnandi: Hákon Sigurjóns-
son
24.00—03.00 Næturvaktin
Stjórnandi: Jön Axel Olafs-
son
Rásirnar samtengdar að
lokinní dagskrá rásar 1.