Morgunblaðið - 02.11.1985, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
13
Tær morgunljóð
Bókmenntir hversdagsheim og stundum flókn-
-----—-------- ari tilveru. Lítum á þetta erindi úr
Johann Hjálmarsson ljóðinu Náttfarir:
Atli Ingólfsson:
Ljóstur.
30 Ijóó.
Forlagið 1985.
Atli Ingólfsson notar þannig
myndmál í ljóðum sínum að það
leiðir hugann að verkum atóm-
skáldanna. Sum ljóðanna minna í
sjötta áratuginn, en það út af fyrir
sig segir ekki annað en Atli Ing-
ólfsson sé vel lesinn í verkum eldri
skálda.
Nóttin skenkir af sársauka sínum:
Ristir kvölddúninn hvassri sigð
og bikarinn freyðir af hrapandi stjörnum.
Við skulum bergja.
Ogalltsemvarsagt
brennur í funa myrkursins
á milli okkar.
Göngum svo tregaskírð
út í tært morgunljóðið. (Berging).
Ljóstur er óvenju gott byrjanda-
verk, ekki síst með það í huga að
höfundurinn hefur vald á máli og
kann listina að takmarka sig.
Hann leggur líka áherslu á að
bregða upp myndum sem veita
lesandanum óvænta innsýn í
Svefnfirrtarhlustir
Opinn gluggi
í grenndinni, tjóðruð í kaldann,
tíksemýliróró.
Það er ekkert minna en óróleiki
og óvissa sem lesandinn skynjar í
þessu erindi.
Atli Ingólfsson hikar ekki við
að beita djarflegu myndmáli. Þótt
hann yrki um kunnugleg fyrir-
brigði: borgarumhverfi, náttúru og
mikið um nóttina og það sem henni
fylgir, skyggnist hann fyrst og
fremst inn í eigið hugskot. Ljóð
hans eru innri hljómur. Hann á
það líkt með innhverfum skáldum
að láta lesandanum eftir að ráða
í málið, lesa milli línanna, en segja
honum ekki hvað orðið merki.
Orðið lifir í sjálfu sér. Þetta er
ekki algengt í verkum yngstu
skálda, en þó eru mörg ljóð þessar-
ar bókar dæmi um æsku höfundar-
ins. Sem betur fer. Hér yrkir ekki
gamalt skáld. Það er einkum í
Atli Ingólfsson.
ástalóðunum sem æskan kveður
sér hljóðs.
Það sem m.a. er eftirtektarvert
við þessa bók er að höfundurinn
virðist kunna vandmeðfarna list
prósaljóðsins. í bókinni eru vel
gerð prósaljóð. Þó kann ég ekki
við orðalag eins og „lifun þessarar
stundar" og það „að hrófla orðun-
um eitthvert annað“, eins og stend-
ur í prósaljóðinu Stund.
En því ber auðvitað að fagna og
vera ekki um of gagnrýninn þegar
ungt skáld sendir frá sér bók eins
og Ljóstur.
OG ÞAÐ VARST ÞÚ,
í BUÚGRI BÆN
Hljómplötur
Árni Johnsen
Hljómplatan Og það varst þú
sem útgáfan Skálholt gaf út
hefur ekki heyrst mikið spiluð í
útvarpi hins opinbera, en hér er
um að ræða kristilega hljóm-
plötu þar sem ungt fólk, börn og
unglingar, leggja hönd á plóginn
í þágu hins jákvæða. Og það varst
þú er vönduð hljómplata með
góðum textum. Það eru engin
öskur á plötunni, ekkert klám,
enginn óskapnaður sem því mið-
ur virðist stundum v
hleypir hlutunum inn í sviðsljós
fjölmiðlanna.
Textarnir fjalla um lífið og
tilveruna hjá venjulegu fólki,
fjalla um það sem allir velta fyrir
sér, en þeir eru fluttir í skjóli
trúarinnar og í sumum lögunum
rabbar söngvarinn við börnin um
þeirra sjónarmið og möguleikana
til þess að lifa góðu lífi og
skemmtilegu. Þessi þáttur plöt-
unnar er mjög skemmtilega gerð-
ur og fyrir utan það að vera gott
efni í útvarp þá ætti efni af slíkri
plötu ekki síður heima í sjón-
varpi, til dæmis í barnatíma
sjónvarps.
Og það varst þú er vönduð að
allri gerð. Upptökustjóri var Jón-
as Þórir, Sverrir Guðjónsson og
Páll ó. Hjálmtýsson sjá um
sönginn en þar brennur dieitast
á Sverri. Barnakór úr Melaskóla
leggur lið og átta manna biand-
aður kór og ýmsir kunnir hljóð-
færaleikarar leika með á plöt-
unni.
Lögin eru fjölbreytt og
skemmtileg, lítið um framúr-
stefnu og mikil áhersla lögð á
að textarnir skili sér.
Og það varst þú er falleg og
góð hljómplata sem fólk á öllum
aldri er líklegt til að hafa gaman
af og hún er ein af þeim plötum
sem foreldrar ættu að hlusta á
með börnum sínum og ræða um,
það væri til gagns og gamans
fyrir báða aðila.
Vor í Dölum
með sönggleði
Dalamanna
Hljómplötur
Árni Johnsen
Vor í Dölum heitir hljómplata sem
hefur að geyma nokkur lög sem tón-
listarunnendur í Dölum fluttu á
samkomum sínum árin 1982 og 1983.
Hér er um að ræða ýmsa sönghópa,
Janúarkvartettinn, Söngfélagið Vor-
boðinn sem var stofnað 1947 og hefur
séð um kórsöng í Hjarðarholtskirkju
frá 1948, Karlakórinn Hljómur,
Lúðrasveit Tónlistarskóla Dalasýslu
1982—1983, söngfélaga í kirkjukór-
um Hvamms- Staðarfells-, Dagverð-
arness-, Skarðs- og Staðarhóls-
kirkna 1983, Þorrakórinn sem flestir
ofangreindir kirkjukórsfélagar
mynda og söngfélagar í kirkjukórum
Stóra- Vatnshorns-, Kvennabrekku-
og Snókdalskirkna. Allur þessi skari
söngmanna í Dölum syngur 22 lög á
hljómplötunni Vor í Dölum.
Lagavalið hjá Dalamönnum er
fjölbreytt, en undirstrikast af því
að þeir eru dreymnir og rómantískir
Dalamenn, því flest lögin eru í
hægum og mildum takti. það er mikil
sönggleði hjá því fjölmarga fólki
sem leggur hönd á plóginn við þessa
heimilislegu plötu, en mikið hefði
verið skemmtilegra að sönghóparnir
hefðu haft aðgang að fullkomnari
hljóðupptökusal, því tóngæði hrapa
nokkuð við auðheyrilega frumstæð-
ar og ófullnægjandi aðstæður í
upptöku.
En það neikvæða vegur ekki þungt
miðað við það jákvæða, að ná á eina
hljómplötu rjómanum úr sönglifi
Dalamanna á tveggja ára tímabili.
Það er menningarauki að slíku.
Þarna eru á ferðinni lög eins og
Vor í Dölum, Söngheilsan, E1 Relic-
ario sem Lúðrasveit Tónlistarskóla
Dalasýslu flytur, Vorið góða, Húmar
að kveldi, Himnafaðirinn hér, Kirkj-
an ómar öll, Kúbanskt næturljóð,
Kórsöngur, Logn og blíða, Söng-
kveðja, Vormyndir, Dýrð í hæstum
hæðum, Bandtangó, Blátt lítið blóm
eitt er, Kvöldið er fagurt, Laxárdal-
ur og fleiri alkunn og söngvin lög
sem fara vel í túlkun söngglaðra
Dalamanna. Það er ástæðulaust að
gera upp á milli sönghópanna, þeir
syngja allri af mikilli prýði og per-
sónuleika en mikið hefur Vorboðinn
á að skipa skemmtilega samstilltu
oggóðu söngfólki.
Vinsælasti
herrafatnaður
í Evrópu
Þú nýtur þín vel í MELKA.
Úlpur - blússur - frakkar - buxur -
skyrtur. Gæöin eru frábær — verðió
sérlegahagstætt.
Þú færö MELKA-vörur í öllum bestu
herrafatabúöum landsins.
iKKVAIWft 11