Morgunblaðið - 02.11.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
25
Simdrung innan OPEC
Abu Dhabi, 1. nóvember. AP.
FRAMLEIÐSLU- og verðfyrirkomu-
lag á olíu hjá olíuframleiðsluríkjun-
um innan OPEC er hrunið, vegna
samkeppni frá olíuframleiðsluríkjum
Irving S. Cooper látinn
Naples, Florita, 1. nóvember. AP.
Irving S. Cooper, brautryðjandi í
heilaskurðlækningum, sem uppgötv-
aði lækningaaðferðir sem m.a. eru
notaðar við Parkinsons veiki, er lát-
inn 63ja ára að aldri. Banamein hans
var krabbamein.
Cooper er höfundur svonefndra
kulskurðlækninga sem byggja á
því að sýktum vef er eytt með
kælingu. Uppgötvanir hans hafa
hjálpað sjúklingum sem þjáðst
hafa af Parkinsonsveiki, flogaveiki
og heilalömun. Sagt hefur verið
um Cooper að hann hafi stuðlað
utan OPEC, að sögn Mana Saeed
Otabia, olíumálaráðherra Abu
Dhabi. Hann sagði að hér eftir væru
OPEC— ríkin ekki bundin af sam-
að meiri framförum í heilaskurð-
lækningum en nokkur annar núlif-
andi maður.
Cooper fæddist árið 1922. Hann
á langan starfsferil að baki, m.a.
hjá Mayo sjúkrastofnuninni í
Minnesota. Hann vakti fyrst at-
hygli 1959 þegar hann fram-
kvæmdi uppskurð á ljósmyndara
Life—tímaritsins, Margaret Bo-
urke—White, sem þjáðist af Park-
insons veiki. Heilsufar hennar
batnaði til muna og hún lifði allt
til ársins 1971.
þykktum ÖPEC um framleiðslu og
verðlagningu á olíu í samtali við sjón-
varpið í Abu Dhabi.
Þessi ummæli gefa til kynna að
OPEC— ríkin hyggist fara yfir
þann framleiðslukvóta sem sam-
þykktir OPEC gera ráð fyrir, en
aðrar heimildir segja að ekkert
bendi til þess að samkomulag sé
meðal olíuríkjanna almennt um
breytingu á verðlagningu olíu.
Þessi ummæli Otabia sýni hins
vegar þann ágreining sem upp sé
kominn innan OPEC.
Sérfræðingur í olíumálum í Los
Angeles sagði að Otabia væri
augsjáanlega að vísa til nýlegrar
ákvörðunar Mexikó um að lækka
verð á hráolíu hjá sér um 40 sent
tunnuna, jafnframt því að hækka
verð á unninni olíu um 60 sent
tunnuna, en Mexíkó er ekki innan
OPEC.
Svíþjóð:
Jafnaðarmenn vilja
lækka erföafjárskatt
Eftir Pétur
Pétursson
Hinn hái skattur á dánarbúum
hér I Svíþjóð, einkum fyrirtækjum
og verðbréfum sem skráð eru í
kauphallarviðskiptum, er vel þekkt
fyrirbæri. Ekkert land sem býr við
blandað hagkerfi gengur eins hart
að erfingjum að þessu leyti eins og
Svíþjóð. Erfðaskatturinn er 70%, en
í nágrannalöndunum um 20-30%.
Að auki koma til skattar og álögur
á það sem eftir er sem oft nemur
um 20%. Dæmi eru til um að fólk,
sem erft hefur milljónir fari á haus-
inn þegar ríkið hefur tekið sitt.
Einn ríkasti forstjórinn
flýr til Sviss
Nýlega lýsti einn ríkasti for-
stjórinn hér í Svíþjóð, Fredrik
Lundberg, því yfir að hann sæi
sér ekki fært að búa lengur í landi
sínu. Hann hefur ákveðið að flytja
til Sviss þar sem erfðaskatturinn
er ekki nema 6% og er hann alls
ekki sá fyrsti af sænskum auðkýf-
ingum sem flýja land til að losna
við skatta. Lundberg hefur þó
ekki fyrst og fremst eigin afkomu
í huga, heldur vill hann tryggja
framtíð fyrirtækja sinna og yfir-
ráð fjölskyldu einnar yfir þeim.
Hann á m.a. framgangsríkt bygg-
ingafyrirtæki sem hefur aukið
mjög umsvif sín á alþjóða vett-
vangi undanfarinn áratug. Þetta
fyrirtæki, sem faðir hans stofnaði
fyrir fjörutíu árum og rak í byrj-
un frá eldshúsborði fjölskyldunn-
ar, vill Lundberg að verði áfram
í höndum fjölskyldunnar og hefur
hann mikinn hug á að auka
umsvif og markaði þess enn meir.
„Þegar ég fell frá,“ sagði hann í
blaðaviðtali, „og það gæti gerst á
morgun, að ég fengi múrstein í
höfuðið, tvístrast fyrirtæki mín
og örn mín missa þar með tæki-
færið til þess að reka þau áfram
í nafni fjölskyldunnar".
Lundberg mun reka fyrirtæki
sín í Svíþjóð áfram frá Sviss, en
hann segist munu snúa aftur til
heimalands síns jafnskjótt og
erfðaskatturinn verði lækkaður
vegna þess að hann vilji hvergi
annars staðar eiga heima í raun
og veru. En eftir fimm ár getur
hann fengið svissneskan ríkis-
borgararétt. Allar líkur eru á því
að honum takist að halda lífi og
heilsu þangað til, ekki nema 34
ára og mikill skíðagarpur.
Jafnadarmenn endur-
skoöa afstöðu sína
Lundberg gekk fyrir fjármála-
ráðherrann í stjórn jafnaðar-
manna, Kjell Olofs Fledts, og til-
kynnti honum formlega ákvörðun
sína. Hann vill vekja upp umræð-
ur um erfðaskattinn og álögur
ríkisins á dánarbúin og það hefur
tekist. Fjármálaráðherrann hefur
lýst því yfir, að hann skilji ástæð-
ur Lundbergs og liti alvarlegum
augum á málið. Segir hann, að lög
og reglugerðir þessu lútandi verði
endurskoðuð og bendir á, að hann
hafi þegar lagt fram tillögur í þá
átt. Hinn nýi samgöngumálaráð-
herra, Sven Hulterström frá
Gautaborg, sem þekktur er fyrir
Fredrik Lundberg, sænski auðkýf-
ingurinn, sem flýði erfðafjárskatt-
inn.
jákvæð viðhorf sín í garð kapítal-
ista, hefur margoft bent á, að
Svíþjóð geti ekki leyft sér að
hrekja þennan hóp manna úr
landi, á meðan ekki séu aðrir til-
búnir og betur til þess hæfir að
reka fyrirtækin. Hann vill, að
erfðaskatturinn í Svíþjóð verði
lækkaður til móts við það sem
gerist í hinum skandinavísku
löndum. Ritstjóri stærsta dag-
blaðs jafnaðarmanna, Arbetet,
hefur tekið eindregið undir þessi
sjónarmið.
Pétur Pétursson er fréttaritari
Mbl. í Lundi, Svíþjóð.
Kasparov:
Reyndi ekki að vinna
Skák
Margeir Pétursson
Kasparov gerði enga tilraun til
að vinna tuttugustu og fyrstu ein-
vígisskákina sem tefld var áfram
í Moskvu í gærdag. Skákin fór í
bið eftir 41 leik á fimmtudaginn í
betri stöðu fyrir áskorandann.
Biðskákin var aðeins tefld áfram
í fjóra leiki, þá hafði Karpov tekist
að ná þráskák með riddara og ekki
um annað að ræða en að semja
jafntefli. Það voru flestir á því máli
að Kasparov hefði getað teflt bið-
stöðuna til vinnings, en hann tók
alls enga áhættu, enda ekki ástæða
til, þar sem aðeins þrjár skákir eru
eftir af einvíginu. Staðan er nú
ll'/i—9>/2 Kasparov í vil. Hann
þarf aðeins tvö jafntefli til viðbótar
til að verða næsti heimsmeistari.
21. skákin tefldist þannig
áfram eftir bið:
Svart: Anatoly Karpov
Hvítt: Gary Kasparovs
41. -b6
Biðleikur Karpovs, leikið eftir
20 mínútna umhugsun.
42. b4
Hyggst Kasparov tefla til
vinnings í þessari stöðu verður
hann fyrr eða síðar að leika
e4—e5. Eins og málin æxlast í
framhaldinu fær hann ekki
möguleika til þess og því er lítt
skiljanlegt hvers vegna hann
greip ekki tækifærið nú.
42. — Ba6, 43. Rg4 — Rb5!, 44.
Kd3 - Ra3+
Hér var samið jafntefli, því 45.
Ke3? gengur ekki vegna Rc2+ og
eftir 45. Kd2 — Rb5 kemur sama
staðan upp aftur.
Karpov heldur því enn í veika
von um að hann nái að jafna í
þremur síðustu skákunum. í
‘ þessari skák var þó allan tímann
á brattann að sækja fyrir hann
og hann verður að tefla hvassar
til að eiga möguleika á að vinna.
FAfÖTA
Skrásett vörumerki Coca Cola
OCTAVO 20.13