Morgunblaðið - 02.11.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
27
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir WOODROW WYATT
Suöur-Afríka:
Efnahagsþvinganir
bera vott um hræsni
HINAR takmörkuðu efnahagsþvinganir gegn Sudur-Afríku, sem frú
Thatcher tókst aö sannfæra samveldisríkin að sættast á, munu ekki
skaða neinn, síst af öllu Suður-Afríku. Þær efnahagsþvinganir sem öfga-
mennirnir kröfðust hefðu sennilega orðið fyrsta skrefíð til að lama
efnahagskerfí Suður-Afríku. Afríska þjóðarráðið (ANC) trúir á ofbeldi og
hefur hvatt til þess að Suður-Afríka verði beitt efnahagsþvingunum.
Hræsni margra leiðtoga sam-
veldisríkjanna er augljós,
þeirra sem kröfðust róttækra
efnahagsþvingana. Kanada, Ástr-
alía og Nýja-Sjáland, sem hafa
hverfandi viðskipti við Suður-
Afríku, er auðvelt um vik að
krefjast fórna af öðrum. Indland,
þar sem milljónir hinna ósnert-
anlegu teijast fimmta flokks þjóð-
félagsþegnar, hefur engin við-
skipti við Suður-Afríku. Fimm
afrísk svört samveldisríki eru í
nánd við Suður-Afríku. Þau höfðu
ekki hugrekki til að segja að
raunverulegar efnahagsþvinganir
myndu leiða af sér hörmungar
fyrir þau, eins og hefði verið
raunin til dæmis með Mosam-
bique. Þessi ríki hljóta að hafa
verið Thatcher þakklát.
Þýskaland og Japan eru stærstu
viðskiptalönd Suður-Afríku.
Þriðja stærsta eru ríki svörtu
Suður-Afríku. Bretland og Banda-
ríkin eru í fjórða og fimmta sæti.
Að hætta viðskiptum við Suður-
Afríku myndi kosta 250 þúsund
Breta vinnuna. Fyrir suma ná-
granna Suður-Afríku myndi það
þýða gjaldþrot.
Það er mikil hræsni í því fólgin
að endurtaka vígorð Katós: „Kar-
þagó verður að leggja í eyði." Það
vígorð er í tísku og erfitt fyrir þá
að standast, sem vilja teljast
frjálslyndir og andsnúnir kyn-
þáttastefnu. Samt sem áður getur
aðeins eitt samveldisríkjanna í
Afríku talist hliðhollt lýðræði. í
hinum ríkir annaðhvort alræði
eins flokks eða stefnt er að eins-
flokksræði.
Hver viljum við
að þróunin verði?
Hver viljum við að verði þróun-
in í Suður-Afríku? Ef megin-
markmiðið er afnám kynþátta-
stefnunnar, þá hefur þrýstingur á
stjórnvöld innanlands, sem styðst
við alþjóðlega fordæmingu kyn-
þáttastefnunnar, borið mikinn
árangur. Hvað atvinnu snertir
hafa orðið miklar breytingar. Sú
er ætlunin á næsta þingi, að gera
það ólöglegt að takmarka störf við
hvíta menn, jafnvel í námum.
Stöðuhækkanir í samræmi við
hæfileika aukast stöðugt. Nú eru
svartir eftirlitsmenn í námunum
og virðing svartra verkamanna
vex. Ekki er lengur nauðsynlegt
að verkalýðsfélögum sé skipt eftir
kynþáttum. í janúar á næsta ári
mun Botha forseti standa fyrir
þingsályktunartillögu þess efnis
að vegabréfakerfið verði afnumið.
Blökkumenn í leit að vinnu munu
ekki lengur þurfa að fá sérstakt
leyfi til að flytjast á milli svæða í
landinu.
Botha ætlar sér að setja á lagg-
irnar á nýjan leik suður-afrískan
ríkisborgararétt, sem tekinn var
af blökkumönnum í heimalöndun-
um. Allir — blakkir, litaðir og
hvítir — munu hafa einn og sama
ríkisborgararétt. Þegar eru 80 lit-
aðir og 40 meðlimir af indversk-
um uppruna á þingi, þó þeir sitji í
sérstakri þingdeild og einn frá
hvorum í stjórninni. Þeir sanna
þar að þeir eru ekki handbendi
stjórnarinnar.
Kynlíf og hjónabönd eru nú
lögleg milli kynþáttanna. Afnám
aðskilnaðar í sambandi við þjón-
ustu við almenning er nær fulllok-
ið. I helstu borgum eru mörg hótel
opin öllum kynþáttum án tillits til
litarháttar. Frá því í júní í ár hef-
ur verið hætt við nauðungarflutn-
ing svartra til heimalandanna.
Réttindi svartra til eignar hafa
verið útvíkkuð talsvert.
Þeir sem hafa viðbjóð á aðskiln-
aðarstefnunni, eins og ég hef,
ættu að minnsta kosti að viður-
kenna þau framfaraskref sem rík-
isstjórn Suður-Afríku hefur stað-
ið fyrir og hvetja jafnframt til
þess að áfram verði haldið á sömu
braut. En það hentar ekki afríska
þjóðarráðinu, sem horfir fram til
þess tíma að geta komið á fót rík-
isstjórn trotskyista einhverrar
tegundar, né fjölmiðlunum.
Einhæfur fréttaflutningur
142 viðurkenndir erlendir
fréttaritarar dveljast í Suður-
Afríku að staðaldri. Þeir fá að
fara frjálsir ferða sinna um land-
ið og segja frá því sem fyrir augu
ber. Slíkt myndi þeim bannað í
ríkjum blökkumanna í Afríku.
BBC hefur hóp sjónvarpsmanna í
Jóhannesarborg að staðaldri,
þann eina fyrir utan þann sem er
í Washington. Einu fréttamenn-
irnir aðrir sem BBC hefur í Suð-
ur-Afríku að staðaldri er útvarps-
fréttamaður í Nairobi. ITV hefur
einnig hóp sjónvarpsfréttamanna
í Suður-Afríku, en ekki neins
staðar annars staðar. Þar sem
sjónvarpsstöðvarnar hljóta að
reyna að réttlæta veru frétta-
manna sinna þar, þá er mikilvægt
að segja frá þvingunaraðgerðum
stjórnarinnar, fremur en að segja
frá uppbyggilegri atburðum, sem
ekki eru jafn fréttnæmir.
Ein af kröfum samveldisríkj-
anna var að neyðarástandinu sem
lýst var yfir í ár í Suður-Afríku í
30 af 260 umdæmum yrði aflýst,
þó að neyðarástandslög hafi verið
í gildi í Zimbabwe frá árinu 1960.
Umbætur í Suður-Afríku eru
hafnar. Suður-afríski forsetinn
hefur boðist til að ræða framtíð-
ina við sérhvern leiðtoga blökku-
manna sem hafnar ofbeldi. Að
semja við þá sem vilja ríkið feigt,
er eins og að semja við IRA eða
þær deildir PLO sem stunda
hryðjuverk.
Styðjum umbætur en
berjumst gegn ofbeldi
Það er í tísku að hallmæla
Gatsha Buthelezi, leiðtoga Kwaz-
ulu-þjóðflokksins Hann er líka al-
gerlega andstæður aðskilnaðar-
stefnunni, en vill ekki efnahags-
þvinganir eða byltingu. Hann tel-
ur að sér fylgi að málum um sex
milljónir Zulu-blökkumanna á
sama tíma og ANC hefur innan
sinna vébanda 2 þúsund manns í
Suður-Afríku og níu þúsund er-
lendis. Samtök Buthelezi telja um
eina milljón félaga og er lýðræð-
isiega stjórnað.
Hvaða sjúkdómur er það sem
veldur þvi að við styðjum blóð-
þyrsta minnihlutahópa gegn
skynsamlegum vilja meirihlutans.
Afríska þjóðarráðið (ANC) er
ekki fulltrúi 23 milljóna svartra
Suður-Afríkubúa, sem skiptast
eftir kynþáttum og landsvæðum,
né 1,5 milljóna litaðra og einnar
milljónar íbúa af indverskum
uppruna. Höldum uppi þrýstingn-
um á Suður-Afríku, en gerum það
án hræsni. Viðurkennum að með
því að skaða efnahag Suður-
Afríku alvarlega, sköðum við Afr-
íku, Vesturlönd og hina nýju
Suður-Afríku, sem sjá má við
sjóndeildarhring.
(Þýtt og endursagt: HJ)
Woodrow Wyatt er dálkahöfundur
hjá The Times.
AP/Símamynd
Frá fundi samveldisríkjanna í Nassau á Bahamaeyjum. Á myndinni má meðal annarra sjá Brian Mulroney,
forsætisráðherra Kanada, og Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands.
I • • *
Spríte
Skrásett vörumerki Coca Cola
OCTAVO 20.16