Morgunblaðið - 02.11.1985, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
29
Sagan af Schevchenko - Grein I
Brotíst undan ráðstjórn
— eftir Árna
Sigurðsson
Með þessari grcin hefst hér á
síðum Morgunblaðsins stuttur
greinaflokkur um sovéska flótta-
manninn Arkady N. Schevchenko
er flúði til Vesturlanda í apríl
1978. Hann er einn háttsettra Sov-
étmanna er flúið hafa heimaland
sitt frá lokum heimsstyrjaldar-
innar síðari. Schevchenko gegndi
ýmsum mikilvægum embættum á
tuttugu og tveggja ára löngum
ferli, var m.a. varaaðalritari Sam-
einuðu þjóðanna um það leyti er
hann flúði, árið 1970. Aðeins þrjá-
tíu og níu ára að aldri varð hann
einn aðalráðunautur og aðstoðar-
maður þáverandi utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Andrei
Gromyko, er nýverið lét af störf-
um utanríkisráðherra eftir nær-
fellt þrjátíu ára setu á ráðherra-
stóli. Þar gafst Schevchenko ómet-
anlegt tækifæri til að kynnast af
eigin reynslu innra skipulagi og
störfum Æðsta ráðs Sov-
étríkjanna.
Hann tók við starfi varaaðalrit-
ara Sameinuðu þjóðanna árið 1973
með aðsetur í New York, fjörutíu
og tveggja ára gamall. Hann virt-
ist sigla hraðbyri í æðstu stöður í
Moskvu er hann sagði skilið við
ráðstjórn Kremlverja, gerðist
pólitískur flóttamaður og settist
að í Bandaríkjunum, fjörutíu og
sjö ára gamall. Hann hefur nú ný-
verið sent frá sér merka bók um
lífshlaup sitt er hann nefnir
„Breaking With Moscow" og hlaut
geysigóðar viðtökur í Bandaríkj-
unum þar sem hún kom fyrst á
markað.
Greinaflokkur þessi verður að
verulegu leyti byggður á þeirri bók
en í henni lýsir Schevchenko
reynslu sinni bæði af mönnum og
málefnum innan sovéska stjórn-
kerfisins og veitir þar með lesand-
anum sjaldgæfa innsýn inn í hul-
iðsheim æðstu embættis- og ráða-
manna Sovétríkjanna. Hann lýsir
einnig þeirri valdabaráttu, spill-
ingu og ráðabruggi er fram fer að
tjaldabaki í skúmaskotum Kreml-
arkastala sem flestum er sem
lokaður heimur.
Fullsaddur af hugmynda-
fræði kommúnismans
Schevchenko segir svo frá í bók
Arkady N. Schevchenko
sinni að hann hafi verið búinn að
fá sig fullsaddann af hugmynda-
fræði kommúnismans og tvöfeldni
og hræsni ráðamanna í Krem).
Eins og hann segir sjálfur í bók
sinni: „Væri Machiavelli á lífi og
innan raða hinnar sjálfskipuðu
herrastéttar er fer með öll völd í
Sovétríkjunum væri hann þar
nemandi ekki kennari."
Schevchenko njósnaði fyrir
leyniþjónustu Bandaríkjanna,
CIA, um tveggja og hálfs árs skeið
áður en hann sagði skilið við yfir-
boðara sína í Moskvu. Þó er bók
hans annað og meira en einhver
sannsöguleg njósnasaga. Hún lýs-
ir fyrst og fremst innviðum
stjórnkerfis Sovétríkjanna auk
þess að draga upp mynd af lífi og
valdabaráttu æðstu embættis- og
ráðamanna í Kreml. í bók sinni
kemur hann víða við og fræðir les-
andann um ýmislegt er á daga
hans hefur drifið.
Sem fylgdarmaður Krútsjeffs á
leið hans í opinbera heimsókn til
Bandaríkjanna árið 1960 heyrir
Schevchenko hinn stæriláta leið-
toga Sovétríkjanna tauta í eigin
barm hótanir í garð þáverandi að-
alritara Sameinuðu þjóðanna, Dag
Hammarskjöld, er dó aðeins ári
síðar í dularfullu flugslysi í
myrkviðum Kongó.
í spjalli við samstarfsmann sinn
kemst Schevchenko að því að heit
umræða var á fundi Æðsta ráðs
Sovétríkjanna þar sem rökrætt
var hvort varpa ætti kjarnork-
usprengjum á Kína þegar sam-
bandið við Kínverja var einna
verst.
Schevchenko lýsir herferð ráða-
manna í Kreml til að ljúka gerð
samnings við Bandaríkjamenn er
hefði í för með sér eyðileggingu og
bann við framleiðslu efna- og
sýklavopna, í áróðurslegum til-
gangi. Hann segir: „Það er engin
spurning um það, að Sovétríkin
eru mun betur undir slikan hernað
búin en Bandaríkin."
Kunningjar Schevchenkos hjá
KGB og í miðstjórn Kommúnista-
flokksins segja honum frá því að
þeirri skoðun ráðamanna að vilja
losna við forseta Egyptalands,
Anwar Sadat: „ ... á einn eða ann-
an hátt“ sé sífellt að vaxa byr und-
ir báða vængi.
Gagnrýni Schevchenkos
Þó svo Schevchenko gagnrýni
ráðamenn í Moskvu er ekki laust
við að hjá honum gæti virðingar í
garð fyrrum yfirmanns hans,
Gromykos. Hann ver stefnu Gro-
mykos í utanríkis- og alþjóða-
málum og telur hann fylgja „dét-
ente“-stefnunni. I því kuldakasti
er ríkt hefur undanfarin ár í sam-
skiptum risaveldanna, Sovét-
ríkjanna og Bandaríkjanna, hafa
sérfræðingar í málefnum Sovét-
ríkjanna ígrundað hvort Gromyko
væri aðalharðlínumaðurinn í
Kreml og hemill á batnandi sam-
skipti risaveldanna. Það álýtur
Schevchenko vera tómt rugl. Hann
er sannfærður um að Gromyko
hafi verið og sé enn (enda ennþá
valdamikill áhrifamaður sovéskra
utanríkismála þó svo hann sitji
ekki lengur á ráðherrastóli), tals-
Árni Sigurðsson
„Þó er bók hans annað
og meira en einhver
sannsöguleg njósna-
saga, Hún lýsir fyrst og
fremst innviðum stjórn-
kerfis Sovétríkjanna
auk þess að draga upp
mynd af lífi og valda-
baráttu æðstu embættis-
og ráðamanna í Kreml.“
maður détente, þíðu, í samskiptum
risaveldanna, sem Schevchenko
aðhyllist einnig.
í grein II, er mun birtast í
næstu viku, verður ferill Schevch-
enkos rakinn frá því hann hóf
störf sem ungur diplómat þar til
hann leikur eitt af lykilhlutverk-
unum bakvið tjöldin í undirbún-
ingi og framvindu fundar Nixons
og Brezhnevs árið 1972.
Helstu heimildir:
Arkady N. Schevchenko. Breaking
With Moscow, A.F. Knops, USA,
1985. Time Magazine, february 11.
og 18.
Höíundur á sæti í utanríkismála-
neínd Sambands ungra sjilístæð-
ismanna.
Viðskiptahalli við Sovétríkin:
Hefur farið minnkandi
á liðnum árum og horfur
á enn minni halla 1985
11 tanríkisráðherra Sovétríkjanna
lýsti því yfir í samræðum sínum við
Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra
og Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra, sl. miðvikudag, að það
væri vilji sovéskra stjórnvalda að
viðskiptajöfnuöur næðist á milli
landanna þegar á næsta ári. Jón
Ögmundur Þormóðsson í viðskipta-
ráðuneytinu upplýsti blaðamann
Morgunblaðsins um að viðskiptahalli
íslands við Sovétríkin hefði farið
minnkandi á síðustu árum, og horfur
væru á að enn drægi úr honum á
þessu ári og næstu ef áætlanir stæð-
ust.
Jón Ögmundur sagði að á síð-
astliðnu ári hefðu íslendingar
flutt út til Sovétríkjanna fyrir
1844 milljónir, en Sovétmenn
hefðu flutt hingað til lands fyrir
2441 milljón króna, þannig að
hallinn var rétt tæpar 600 millj-
ónir á sl. ári. Jón Ögmundur
sagði að hallinn hefði farið
minnkandi á síðustu árum, á
gildistíma viðskiptasamningsins
1980 til 1985 og viðskiptasamn-
ingurinn 1986 til 1990 gerði ráð
fyrir enn minnkandi halla. Jón
Ógmundur sagði að á árunum
1978 til 1980 hefði útflutningur
íslendinga til Sovétríkjanna að
meðaltali verið um 43% af út-
flutningi Sovétmanna til íslands.
1981 til 1984 hefði þetta hlutfall
batnað þannig að útflutningur
íslendinga til Sovétríkjanna
hefði að meðaltali verið 67% af
útflutningi Sovétmanna til ís-
lands. Á síðasta ári hefði þetta
hlutfall verið 76% af innflutn-
ingi frá Sovétríkjunum.
Jón Ögmundur sagði að síðasti
viðskiptasamningur við Sovét-
ríkin gerði ráð fyrir aukinni sölu
á saltsíld og freðfiski, og því
mætti gera ráð fyrir að hallinn
minnkaði enn, svo fremi sem
takist að standa við þá samninga.
Hveragerði:
Ljósaskoðun á að vera lokið
LJÓSASKOÐUN bifreiða á nú að
vera lokið. Síðasti dagur var á
fímmtudag en þá var meðfylgjandi
mynd tekin á einu af bifreiðaverk-
stæðum Reykjavíkur.
í árlegri skoðun ökuljósa eru
öll ljós yfirfarin, en algengt er
að stilling þeirra fari úr skorðum
af ýmsum orsökum og þau verði
þar af leiðandi hættuleg öðrum
vegfarendum. Nú fer í hönd
dimmasti tími ársins og er því
ástæða til að hvetja ökumenn og
aðra vegfarendur að vera „vel
upplýstir" eins og segir í frétt
frá Umferðarráði.
Hlýjasti októ-
ber í tíu ár
NÝLIÐINN októbermánuður var
hinn hlýjasti í tíu ár. Meðalhiti í
Reykjavík í mánuðinum er 6,5 gráður
og á Akureyri heldur kaldara, 6,0
gráður.
Fyrir tíu árum 1975, var meðal-
hitinn i Reykjavík einni gráðu
meiri í október en nú er, eða 6,6.
Fyrir tuttugu árum, 1965, var
októbermánuður í Reykjavík enn
hlýrri, 7,2 gráður, og árið 1959 var
meðalhiti mánaðarins 7,7 gráður.
Trausti Jónsson, veðurfræðing-
ur, sagði í samtali við blaðamann
að október nú hefði skipst í tvennt.
Fyrstu tíu dagarnir voru tiltölu-
lega kaldir en síðan hafa veri?
hlýindi. „Ekkert er þó hægt a? ,-
spá um komandi vetur þrátt fyrir
hlýindi nú. T.d. var veturinn
1959—1960 mjög hlýr eftir hlýjan
október, en hinsvegar var veturinn
1965—1966 mjög kaldur þrátt fyrir
háan meðalhita í október það ár,“
sagði Trausti.
Úthlutað til ferðamannaþjónustu
ALLS hefur verið úthlutað um 30
þúsund fermetrum af lóðum að
undanfórnu undir atvinnurekstur í
Hveragerði tengdan ferðamanna
þjónustu.
Samkvæmt samtali við Hafstein
Kristinsson oddvita er hér um að
ræða 17.000 fermetra lóð til Helga
Þ. Jónssonar undir hótel, sem
verður með 32 gistiherbergjum og
veitingasal, en framkvæmdir eru
þegar hafnar og er ráðgert að taka
hluta byggingarinnar í notkun
næsta vor. Hótelið verður 2.700
fermetrar að gólffleti, að hluta til
á tveimur hæðum.
Þá hefur Tómasi Tómassyni og
fleirum verið úthlutað lóð fyrir
veitingastað í líkingu við þann stað
sem sömu aðilar eru að opna um
þessar mundir við gamla Fáks-
heimilið, en ráðgert er að taka
hinn nýja veitingastað í notkun
nk. vor.
Einnig eru fyrirhugaðar stór-
framkvæmdir á 10 þúsund fer-
metra lóð sem tívolíið í Hveragerði
hefur fengið og verður bæði unnið
að fjölgun skemmtitækja og frá-
gangi stærri hluta lóðarinnar.
Eden er að stækka um þessar
mundir um 300 fermetra, bæði
veitingasal og eldhús.