Morgunblaðið - 02.11.1985, Side 31

Morgunblaðið - 02.11.1985, Side 31
31 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985 Basar Kven- félagsins Heimaeyjar Kvenfélagið Heimaey heldur ár- legan bazar sinn laugardaginn 2. nóvember að Hallveigarstöðum klukkan 14. Selt verður margt góðra muna, segir í frétt frá félag- inu, kökur, j ólaskraut o.f 1. Rokkhá- tíð í MH 3. nóvember heidur Tónlistar- félag MH fjölbragðarokkhátíðina „Velkomin um borð“. Þar munu koma fram breski gítarleikarinn Fred Frith ásamt hijómsveit sinni, Skeleton Crew, bandaríski blásarinn og söngvarinn Leo Smith ásamt hljómsveit sinni, New Dalta Ahkri, hljómsveitin Vonbrigði og skáldin Jóhamar, Sjón og Þór Eldon. Einar Melax mun leika undir á hljómborð. Þetta verður í fyrsta sinn á þessu ári sem hljómsveitin Vonbrigði lætur í sér heyra. Pred Frith er kunnur af gít- ar- og fiðluleik með hljómsveit- unum Henry Cow, Residents og Art Bears. Fjölbragðarokkhátíðin „Vel- komin um borð“ hefst stundvís- lega kl. hálf níu í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð. Hátíðin er öllum opin. Forsala aðgöngumiða er í hljómplötu- verslunum og í MH. Hljómsveitin Skeleton Crew. Basar til styrktar mosaíkmynd á kór- vegg Háteigskirkju Á MORGUN sunnudag 3. nóvember klukkan 15 heldur Kvenfélag Há- teigssóknar basar íTónabæ. I frétt frá sóknarpresti Háteigs- kirkju, séra Arngrími Jónssyni, segist hann vilja vekja athygli allra velunnara Háteigskirkju á basarnum, þar sem á boðstólum verði margir ágætir munir, vefn- aðarvara, handavinna, kökur o.fl. Auk þess verður selt kaffi með vfiflnm. Basarinn er til styrktar væntan- legri altaristöflu í Háteigskirkju, en í sumar hefur verið unnið öt.ul- lega að undirbúningi gerðar altar- istöflu og hafa þrír listamenn verið fengnir til að gera tillögur að myndverki í mósaík. Ljóst er að slík tafla mun kosta mikið fé. Kvenfélagið hefir tekizt það verk á hendur að kosta töfluna, sem prýða mun kórvegg kirkjunnar. Konur fjölmenntu í Egilsbúð Kröfuganga kvenna á Neskaupstað Nesk»upst«ð 25. oktiber. ÞRÁTT fyrir storm og sjórok fjölmenntu konur í Neskaups- stað í kröfugöngu á kvennafrí- daginn. Hófst hún klukkan 14 við loðnubræðsluna og endaði í Eglisbúð þar sem konur stóðu fyrir opnu húsi. Láta mun nærri að um 300 konur hafi komið í Egilsbúð, hlustað á ræður og sungið baráttusöngva yfir kaffiboll- um. Mjög margar konur tóku sér frí frá vinnu þennan dag og voru ýmsar verzlanir og stofnanir annað hvort lokað- ar eða haldið opnum af fá- mennu karlaliði. Morgunblaðið/Sigurbjðrg — Sigurbjörg. Gísli Haraldsson, kaupfélagsstjóri í Fram, hafði nóg að gera við afgreiðsluna. Handavinnupokinn Hér koma hugmyndir að snotrum litlum gjöfum og föndri, sem alltaf má stinga með í jólapakkana. Og eins og ég hef áður bent á, þá notið eigið hugmyndaflug við val á litum og efni. „Buddur“ fyrir pappírsþurrkur Fyrst hugmynd að litlum „budd- um“ fyrir papp- írsþurrkur. Alls- konar efnaaf- gangar duga. Efni: bómullar- efni, flauel, slétt eða rifflað, mislit leggingabönd, blúnduafgangar og skábönd. Klippið stykki 14x16 sm og 28 sm af skábandi. Sau- mið leggingabönd eða blúndu á stykkið, annað hvort beint eða á ská. Bryddið styttri hliðarnar (14 sm) með skábandinu. Brjótið stykkið saman, rétt móti réttu, látið skáböndin standast á. Saumið saman í hliðunum. Snúið réttunni út í gegnum skábandsopið og fyllið með pappírsþurrkum. Fallegir og fljótgerðir munnþurrkuhringir Efni eftir smekk, flíselín og mjóar blúndur, fatalím („hobby- lím“). Sníðið efni 8x16 sentí- metra. Strauið flíselín (þykkt) á rönguna. Saumið stykkið saman á röngunni. Snúið við og búið til hring, brjótið efni inn að röng- unni svo það verði 5 sm breitt og notið fatalím til að líma efnið niður að innanverðu. Bryddið með blúndu. Með þessum hringjum getið þið haft pappírsservíettur í litum, sem fara vel við. Sæt, lítil gjöf. Stórar áberandi hálsfestar eru mikið í tísku. Ég hef áður gefi ykkur hugmynd að heima- gerðu hálsbandi, sem mér var sagt að hefði komið vel út. Hér er önnur hugmynd sem kostar ekki mikið en þjónar sínum til- gangi. Notið grófa silkisnúru (mikið úrval í Uppsetningabúðinni við Hverfisgötu) og þræðið upp á hana gyllta eða litaða hringi (fást í tómstundabúðum), sbr. mynd. Þið getið átt eina hálsfesti með hverri peysu! Og að lokum í dag er hér hugmynd fyrir þá sem safna korktöppum. Þessu er sérstaklega beint til Heiðu á Neskaupstað. Ég veit að hún hefur verið iðin við söfnunina! Búið til „mottur“ til að hafa undir heit föt, skálar eða potta á matborinu. Raðið töppunum saman í lengjur og límið þá saman, eða skerið þá í tvennt, stillið upp í lengjur og límið saman. Þið fáið varla betri einangrun fyrir borðið. Tappana má einnig kaupa í apótekinu og svo má mála motturinar í viðeigandi litum. Góða skemmtun!.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.