Morgunblaðið - 02.11.1985, Page 32
sf*rjpí)'?* ^ ynwi
32
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
Gengið til starfa með bros á vör
Þær ganga brosandi til starfa Guðrún Agnarsdóttir og Kristín Halldórs-
dóttir, þingmenn Samtaka um kvennalista, sem hér sjást sækja i
brattann upp stigann til salar þingsins.
Deilt á orðalag stjómarfrumvarps:
„Hjólreidamenn skulu aka ...
— Orðalag klúðurslegt, sérvizkulegt og
torskiljanlegt, sagði Eiður Guðnason
Mér finnst það síður en svo góð
vinnubrögð af hálfu ráðuneytisins,
sagði Eiður Guðnason (A) efnislega
í þingræðu um stjórnarfrumvarp til
umferöarlaga, að leggja fram „alger-
lega óbreytt frumvarp," eftir „fímm
ára meðgöngutíma hjá endurskoðun-
arnefnd umferðarlaga," þrátt fyrir
margvíslegar athugasemdir um-
sagnaraðila.
Eiður Guðnason taldi af þessum
sökum ólíklegt að frumvarpið, svo
viðamikið sem það væri, næði
afgreiðslu á þessu þingi, nema
allherjarnefndir beggja þingdeilda
störfuðu saman að athugun þess
og lagfæringu.
„Mér finnst," sagði Eiður, „orða-
lag í þessu frumvarpi klúðurslegt
og sérvizkulegt á mörgum stöðum
og sums staðar kannske torskilj-
anlegt.“ Ég tek dæmi af handahófi,
sagði Eiður:
„Hraöinn má aldrei verða meiri
en svo að ökumaður hafí fullt vald
á ökutækinu og geti stjórnað því á
þeim hluta vegar framundan, sem
hann hefur útsýni yfír og áður en
kemur að hindrun sem gera má ráð
fyrir.“ Ég hélt, sagði Eiður, að öku-
manni bæri að hajga akstri þannig,
að hann gæti stanzað í tæka tíð ef
hann kemur að hindrun, sem ekki
má gera ráð fyrir á veginum.
Eiður tók annað dæmi: „Þegar
ökutæki nálgast stóra fólksbifreið,
Eiður Guðnason
Ný þingmál
Alnæmi — heimilt að leita
að sýktum einstaklingum
— Geimvopn og erlend þátttaka í atvinnustarfsemi
Stjórnarfrumvarp um breytingu á
lögum (nr. 16/1978) um varnir gegn
kynsjúkdómum felur í sér að alnæmi
- aids - falli undir sömu lagareglur
sí og aðrir kynsjúkdómar. „Þannig
verður sjúkdómurinn m.a. skráning-
arskyldur", segir í greinargerð, „og
heimilt verður að leita að sýktum
t einstaklingum og veita þeim meðferð
• og ráðleggingar til að sporna gegn
• því að þeir sýki aðra“.
‘
j Stuðningur við bann
' gegn geimvopnum
Hjörleifur Guttormsson (Abl),
t Kristín Kvaran (BJ) og Guðrún
Agnarsdóttir (Kvl) flytja tillögu til
1 þingsályktunar um „stuðning við
bann gegn geimvopnum". Tillagan
. /'felur ríkisstjórninni, verði hún
• samþykkt, að beita sér fyrir og
| styðja á alþjóðavettvangi bann við
geimvopnum.
k
I
Erlend þátttaka
í nýsköpun ís-
lenzks atvinnulífs
Björn Líndal (F) hefur lagt fram
frumvarp til breytinga á iðnaðar-
lögum (nr. 42/1978) I greinargerð
segir efnislega að mikilvægt sé að
stöðva söfnun erlendra skulda.
Eigi að síður sé ljóst „að erlent fé
er ein veigamesta forsenda þess
að íslendingum takizt að gera þær
breytingar á atvinnulífinu sem
tryggt geta fjölbreytni og sam-
keppnishæfni íslenzks útflutn-
ings“ Þess vegna er lagt til að
iðnaðarráðherra geti veitt undan-
þágu frá ákvæðum 3. töluliðar 2.
málsgreinar 4. greinar viðkomandi
laga.
„í þessu frumvarpi er lagt til
að iðnaðarlögum verði breytt og
opnað fyrir aukna möguleika á
iðnaðarsamstarfi innlendra og
erlendra fyrirtækja. Samkvæmt
frumvarpinu verður það áfram
meginregla að íslendingar eigi
meirihluta hlutafjár í hlutafélög-
um sem reka iðnaðarstarfsemi. Á
hinn bóginn er lagt til að lögleidd
verði undanþága frá þessari meg-
inreglu". Frumvarpið gerir ráð
fyrir því að inðnaðarráðherra geti
veitt slíka undanþágu „þegar telja
má að starfsemi viðkomandi félags
feli í sér mikilvægt framlag til
nýsköpunar íslenzks atvinnulífs".
Fyrirspurnir
Sturla Böðvarsson spyr félags-
málaráðherra, hversku mikil
skerðing verði á ráðstöfunarfé
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga árið
1985, vegna greiðslna til Inn-
Lögberg:
Fyrirlestur
um tónlist
ÞORSTEINN Gylfason heldur fyrir-
lestur sem nefnist „Tónlist, vísindi
og réttlæti" í Lögbergi stofu 101 á
morgun, sunnudag. Fyrirlesturinn,
sem haldinn er á vegum Félags áhuga-
manna um heimspeki, hefst kl. 15.
Þorsteinn hefur lýst efni fyrir-
lestrarins á þessa leið: „Tónlist er
miklu áhrifameiri en hún ætti að
vera, ef hún er ekki annað en hún
virðist vera: leikur að hljóðum sem
hafa enga merkingu. í fyrirlestrin-
um ætla ég að reyna að skoða þetta
efni frá ólíkum sjónarmiðum, en
einkum í ljósi spurningarinnar
hvort tónlist kunni að vera, þrátt
fyrir merkingarleysið, einhvers
konar tungumál eða tungutak."
Fréttatilkynning
Brauðgerð opnuð
í Búðardal í dag
Búdardal, 1. nóvember
FYRSTA BRAUÐGERÐIN í Búðar-
dal verður opnuð í dag, laugardaginn
2. nóvember. Eigandi brauðgerðarinn-
ar er Kaupfélag Hvammsfjarðar og
bakarameistari verður Kristján
Skarphéðinsson. Fjórir til fímm
starfsmenn verða í brauðgerðinni.
Opnunardaginn verður boðið upp
á kaffi, kökur og brauð frá klukkan
14.00-18.00 og vonast er til að sem
flestir sjái sér fært að koma, njóta
veitinga og skoða brauðgerðina.
Kristjana.
heimtustofnunar sveitarfélaga?
Hver hefur skerðingin verið 1980-
1984? Hyggst ráðherra breyta
reglum sem gilda um þetta efni?
* Almenn stjórnsýslulöggjöf. Gunn-
ar G. Schram spyr forsætisráð-
herra, hvað líði framkvæmd álykt-
unar Alþingis frá 20. júní 1985 um
að ríkisstjórnin skipi nefnd til að
semja frumvarp að almennum
stjórnsýslulögum?
* Sláturkostnaður og geymslugjald.
Steingrímur J. Sigfússon spyr
landbúnaðarráðherra um skipt-
ingu sláturkostnaðar einstakra
sláturleyfishafa og heildarkostnað
vegna geymslu kjöts; hvern veg
geymslugjald skiptist á einstaka
geymsluaðila sl. 3 ár.
* Útflutningur á ferskum físki. Sig-
hvatur Björgvinsson og Helgi Selj-
an spyrja viðskiptaráðherra, hvort
veittar séu heimildir til sölu á
ferskum fiski þó vinnsla sé stopul
í heimahöfn skips. Þeir spyrja
ennfremur, hversu mikið hafi ver-
ið flutt út af ferskum fiski 1985,
annarsvegar með beinum sölum
veiðiskipa og hinsvegar í gámum.
sem numið hefur staðar til að
hleypa farþegum inn eða út, þá
hvílir sérstök skylda á ökumanni
að aka nægilega hægt miðað við
aðstæður." Þetta er eins og hvert
annað rugl, sagði þingmaðurinn,
„að aka nægilega hægt.“ Því ekki
að skylda menn til að aka varlega
eða með fyllst gát þegar komið er
að öðru ökutæki, ekkert endilega
„stórri fólksbifreið".
Eiður taldi hraðamörk frum-
varpsins „alltof íhaldssöm", 70 km
á klukkustund utan þéttbýlis, þó
80 km á bundnu slitlagi.
Ræðumaður vitnaði til ákvæða
um hjólreiðamenn. 1 39. grein
standi: „Hjólreiðamenn skulu
aka...“ Á íslenzku heitir þetta að
hjóla. Þetta er svona álíka mál-
lýska og menn heyrðu í þættinum
um daginn og veginn síðastliðið
mánudagskvöld, þegar þar var
talað um að „framkvæma uppeldi".
Eiður vék og að ákvæðum í 47.
greinar, sem skyldar veitinga-
mann eða þjóna hans til að gera
lögreglu viðvart þegar ástæða er
til að ætla að menn aki bifreið
undir áfengisáhrifum. Sama grein
bannar benzínsölu til ökumanns,
sem telst „undir áhrifum". Hvers-
vegna þessar tvær starfsstéttir?
spurði Eiður. Hversvegna ekki
hver og einn, sem telur ástæðu til
að ætla að um lögbrot sé að ræða?
Er hér ekki um almenna borgara-
lega skyldu að ræða?
Eiður taldi mikilsvert að stuðla
að almennri hugarfarsbreytingu,
til að auka tillitssemi í umferð og
fækka slysum. Taka eigi öku-
kennslu upp í skólakerfinu við 17
ára aldur.
I
Ágúst Ragnarsson sölumaður við nýjan SAAB 9000 Turbo 16
Kynning á nýjum SAAB
SAAB umboðið Töggur sýnir nýjan SAAB 9000 Turbo 16 á bifreiðasýn-
ingu, sem opnuð verður almenningi í Bfldshöfða 16, sunnudaginn 3.
nóvember. Tíu ár eru liðin síðan fyrst var farið að huga að gerð þessar-
ar bifreiðar. Bifreiðin er nýsmíði þar sem hönnuðir hafa notað og
endurbætt það besta úr eldri SAAB bifreiðum.
Sölusýning vistfólks
Hrafnistu í dag
Hin árlega sölusýning vistfólks á Hrafnistu í Reykjavík verður haldin
í dag, laugardaginn 2. nóvember kl. 13.30. Þar verða til sölu hosur,
vettlingar, svuntur, o.m.fl. og ýmiss konar jólavörur.
(FrétUtillgrnning)