Morgunblaðið - 07.11.1985, Side 1

Morgunblaðið - 07.11.1985, Side 1
80 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 252. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Jaruzelski tekur sér forsetavald Varejá, 6. nóvember. AP. JARUZELSKI hershöfðingi tók sér í dag forsetavald og afsalaði sér jafnframt starfi forsKtisráðherra, sem náinn samstarfsmaður hans og vinur, hag- fræðingurinn Zbigniew Messner, tók við. Jaruzelski lætur ekki af starfi aðalritara pólska kommúnistaflokksins, og verður því engin breyting á stöðu hans, sem valdamesta manns landsins. Nýkjörið þing Póllands kom saman til síns fyrsta fundar í dag og, eins og venja er, baðst Jaruz- elski lausnar fyrir stjórn sína í upphafi hans. Var hann samstund- is kjörinn formaður ríkisráðsins, en formaður þess fer með forseta- vald. Tekur hann við forsetastarfi af Henryk Jablonski. Messner hefur lengi þótt líkleg- ur arftaki Jaruzelski, sem fól honum að stýra efnahagslegri endurreisn og gerði að aðstoðar- manni sínum í hitteðfyrra. Búist er við að Messner leggi fram nýjan ráðherralista á þingfundi næst- komandi þriðjudag. Með því að hverfa úr stóli for- sætisráðherra hyggst Jaruzelski einbeita sér að flokksstarfinu, sem hann hefur þótt vanrækja. Hyggst hann nú ná traustataki á flokks- vélinni áður en til flokksþings kemur að ári og herða flokksaga. Með afsögn hans sem forsætisráð- herra er lokið einstæðu tímabili í sögu austantjaldsríkis, þar sem sami maðurinn gegndi samtímis tveimur valdamestu embættunum, starfi forsætisráðherra og flokks- formanns. Auk þessa átti það sér stað í borginni Olztyn að á annan tug þúsunda manna sóttu jarðarför stúdents, sem dó í varðhaldi lög- reglunnar. Fór allt friðsamlega fram, að sögn lögreglu. Jafnframt ruddist lögregla inn á heimili Lech Walesa Samstöðu- leiðtoga og gerði tilraun til að flytja hann nauðugan til fundar við ríkissaksóknara, sem rannsak- ar hvort Walesa hafi gerst brotleg- ur við lög með yfirlýsingum um kjörsókn í nýafstöðnum þingkosn- ingum. Eldhnöttur AP/Símamynd Gífurlegur eldhnöttur myndaöist yfir olíuhreinsunarstöó í Mont Belvieu í Texas í Bandaríkjunum eftir spreng- ingu í stöðinni. Tveggja manna er saknað. Vegna mikils hita komust slökkviliðsmenn ekki nálægt eldhafinu drjúga stund. Svartsýni eftir för WasfainKton, 6. nivrmlx-r. AP. HÁTTSETTUR embættismaður segir að eftir Moskvuför George Shultz, utanríkisráðherra, hafi dregið úr bjartsýni æðstu manna í Washington um að árangur verði af leiðtogafundi Ronalds Reagan og Mikhails S. Gorbac- hev. Embættismaðurinn, sem óskaði nafnleyndar, sagði þvergirðingshátt Rússa gagnvart geimvarnaáætlunum Randaríkjamanna og rangar hugmyndir Gorbachevs um stefnu Bandaríkjamanna hafa valdið vonbrigðum. Shultz sagði við komuna til Washington að Rússar teldu að allar ákvarðanir Banda- ríkjamanna væru runnar undan rifjum hersins og auðugra stórfyrirtækja. Bandaríkjamenn telja nú vonlít- ið að leiðtogarnir geri með sér samkomulag um vígbúnaðartak- mörkun af einhverju tagi. Paul H. Nitze, helzti ráðgjafi Banda- ríkjaforseta í afvopnunarmálum, skýrði hins vegar frá því að Rússar hefðu lagt fram formlegt tilboð í afvopnunarviðræðum stórveld- anna í Genf um takmörkun meðal- drægra kjarnavopna. Væru þeir reiðubúnir að semja sérstaklega um langdræg vopn og geimvarnir og væri um verulega stefnubreyt- ingu af þeirra hálfu að ræða. Hingað til hafa Rússar krafizt þess að samið yrði um málin þrjú samtímis. 1 Genf ber mönnum saman um að stórveldin „nálgist" hvort ann- að örlítið eftir tilboð Rússa, sem Reagan um Yurchenko: Útilokum ekki ráðabrugg Washinffton, 6. nÓTembnr. AP. RONALD REAGAN, Bandaríkja- forseti, segist ekki útiloka þann möguleika að yfirvöld í Moskvu hafi „vísvitandi sett á svið“ flótta þriggja Sovétmanna, sem síðar hafi óskað eftir þvf að snúa heim. „Þessar grunsemdir eru fyrir hendi, en það er útilokað að sanna þær eða afsanna," sagði Reagan. Reagan var spurður um mál Vitaly Yurchenko, sem var mjög háttsettur í sovézku leyniþjónustunni (KGB). Hann gaf sig fram við sovézka sendi- ráðið í Washington um helgina og hélt því fram að bandaríska leyniþjónustan, CIA, hefði rænt sér. Bandarísk yfirvöld vísa þeirri fullyrðingu á bug. Auk Yurchenko átti Reagan við sovézka sjómanninn Mi- roslav Medvid, sem strauk af skipi sínu fyrir viku í New Orleans en snerist síðan hugur, og sovézka hermanninn Vasily- eich Sukhanov, sem bað um hæli í bandariska sendiráðinu í Kabúl i Afganistan, en skipti um skoðun eftir fjögurra daga dvöl í sendiráðinu. Eldur í hreyfli: Flugmenn F-27 sýndu snarræði GauUborg, 6. nóvember. Frá Krtsljáni E. Kinarssyni frétUriUra Morgunblaðsins. FLUGMENN Fokker F-27-flugvélar sænska flugfélagsins Swedair þóttu sýna mikið snarræði í dag er þeim tókst að stöðva flugvélina á Kallax- fiugvellinum í Luleá eftir að eldur kom upp I hreyfli í flugtaksbruninu. Flugvélin brunaði eftir braut- inni á 180 kílómetra hraða og var nær komin á flugtakshraða er annar flugmaðurinn tók eftir því að reykur stóð upp úr hægri hreyfli. Var tafarlaust hætt við flugtak og enda þótt lftið væri eftir af brautinni tókst flugmönnunum að stððva á brautarenda. Er þeim hælt fyrir snarræði og færni. Um leið og flugvélin nam staðar þustu farþegar og áhöfn frá borði og sluppu allir ómeiddir. Rannsókn leiddi í ljós að olíuleki f hreyfil- húsinu olli eldsvoða í hreyflinum. Flugvélin er nokkuð skemmd. Geimför lokið Kdwards-riugstöóinni, 6. nóvember. AP. GEIMFERJAN Challenger lenti heilu 'og höldnu í Edwards-flugstöð- inni í Kaliforníu í kvöld eftir vel- heppnaða geimferð. Challenger var viku í ferðinni, sem var frábrugðin fyrri ferðum að því leyti að hún var kostuð að miklu levti af Vestur- Þjóðverjum. Ovissa á málm- markaði í London — vegna stöðvunar á tinverzlun London, 6. nóvember. AP. SEXTAN fjármálastofnanir sem hafa lánað alþjóða tinráðinu fjármuni til að halda uppi lágmarksverði á tini á síðustu misserum, telja lítið unnið í að finna lausn á fjárhagsvanda ráðs- ins. Málmmarkaðurinn í London hætti tinverzlun á föstudag þegar f ljós kom að tinbirgðir ráðsins Shultz skýrt var frá í dag. Tillögurnar voru til umræðu á fundum Shultz f Moskvu. Nitze var þar viðstaddur. Ekki var skýrt frá tilboðinu í efnisatriðum. Reagan vfsaði á bug f dag þeim skilningi á ummælum, sem sovézk- ir blaðamenn höfðu eftir honum, að Rússar gætu hugsanlega komið í veg fyrir geimvarnaáætlun Bandarikjamanna með neitunar- valdi. stóðu ekki undir lánum sem tekin hafa verið til að halda uppi tin- verðinu, og þar sem ríkisstjórnir aðildarlanda ráðsins vildu ekki ábyrgjast frekari lántökur. Var þá ákveðið að hætta tinverzlun fram til nk. föstudags en í dag, miðviku- dag, áttu fulltrúar 22 aðildarríkja ráðsins að koma saman f London til að ræða fjárhagsvanda tin- ráðsins og finna leiðir til lausnar. Fulltrúum lánastofnana finnst hins vegar að þeir sem þarna eiga helst hlut að máli fari sér hægt. „Bankarnir geta ekki beðið enda- íaust," segir sir Adam Ridley, bankastjóri Hambros Bank í Lon- don og talsmaður lánveitenda. Hafa þeir boðið eins árs greiðslu- frest á afborgunum en vilja svar fyrir nk. föstudag. Viðræður fulltrúa innan tin- ráðsins í London f dag eru sagðar geta haft mikil áhrif á framtíð málmmarkaðarins í London og reyndar á framtiðarskipan mark- aðsmála hrávöru almennt. Sjá „Alþjóða tinriðið leggur upp laup- ana" — Viðskipti/Atvinnulíf B2.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.