Morgunblaðið - 07.11.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1985
Utflutningur gámafisks til Bretlands:
Vantar 24 millj-
ónir upp á tolla?
Sé ekki annað en verði að greiða
þetta fé, segir Þórleifur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Stafness í Grimsby
LÍKLEGT má telja að umboðsfyrirtækin, sem annast sölu á ferskum físki
í Hull og Grimsby verði krafín um nálægt 24 milljóna króna greiðslu vegna
rangra tollgreiðslna af fiski, sem héðan hefur verið fluttur í gámum á
markaði á þessum stöðum. Hugsanlega getur komið til sekta að auki. Þá
munu einhver brögð hafa verið að því, að koii hafí verið skráður sem aðrar
físktegundir, sem eru lægra tollaðar. Þessi rannsókn nær ekki til landana
fískiskipa, en tollur af afla þeirra miðast við endanlegt söluverð, en hefur
miðast við tryggingamat á gámafískinum.
Tollyfirvöld hafa nýlega hafið og mismunur á tollgreiðslum næmi
rannsókn á þessum innflutningi og
nær hún þrjú ár aftur í tímann og
tekur til rúmlega 3.300 gáma, en
um 11 lestir af fiski eru að meðal-
tali í hverjum gámi. Toliur á kola
er 15% en 3,7% á öðrum fisktegund-
um. Við gerð tollskýrslna hefur
verið stuðzt við tryggingamat á
aflanum, sem í nánast öllum tilfell-
um hefur verið lægra en endanlegt
söluverð, sem greiða á tollinn af.
Þessi aðferð hefur verið notuð frá
upphafi með vitund og vilja tollyfir-
valda.
Þórleifur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Stafness í Grimsby,
sem hóf starfsemi sína í sumar,
segir þetta mjög alvarlegt mál, en
hann skilji ekki hvers vegna tollyf-
irvöld séu nú að hefja þessa rann-
sókn, þar sem þeim hafi verið
kunnugt um alla framkvæmd máls-
ins frá upphafi. Þórleifur sagði, að
fyrirtæki sitt hefði aðeins selt úr
um 150 gámum og svo virtist sem
mismunur á endanlegu verði og
áætluðu næmi um 40.000 pundum
eða um 2,4 milljónum. Lögfræðing-
ur fyrirtækisins teldi greiðslu á
þeirri upphæð óhjákvæmilega og
líkur á sekt, sem næmi vöxtum af
upphæðinni umrætt tímabil. Þór-
leifur sagði, að þrátt fyrir það, að
þessar fjárhæðir hefðu farið heim
til útflytjenda fisksins, teldi hann
líklegt að greiðslan lenti á fyrirtæk-
inu, þar sem erfitt gæti verið að
innheimta þessa upphæð hér á
landi. Fyrirtækjunum bæri að sjá
um það, að tollgreiðslur væru í
samræmi við lög.
Pétur Björnsson, starfsmaður J.
Marr and Son í Grimsby og Hull,
sagðist áætla að hjá fyrirtækinu
væri um að ræða um 1.600 gáma
Voslensky talar
á Hótel
Esju í kvöld
I KVÖLD kl. hálfníu hefst fund-
ur á annarri hæð í Hótel Esju
með dr. Michael S. Voslensky,
prófessor í Múnchen og fyrrum
starfsmanni Sovétstjórnarinnar
á sviði utanríkis- og alþjóða-
stjórnmála. Hann er höfundur
bókarinnar „Nómenklatúra“ um
völd og spillingu yfirstéttarinn-
ar í Sovétríkjunum. Birgir Isl.
Gunnarsson, alþingismaður,
kynnir ræðumanninn á fundin-
um, sem er opinn félögum í SVS
og Varðbergi ásamt gestum
þeirra.
Michael S. Voslensky
um 200.000 pundum, 12 milljónum
króna, en það væri um 1,5% af
heildar söluverði. Hann sagði ekki
ljóst hvernig mál þetta færi og því
ekki hægt að segja til um hvernig
greiðslum yrði háttað, kæmi til
þeirra. Hann sagði að hér væri á
engan hátt um svikamál að ræða,
enda hefði fyrirtækjunum verið
ráðlagt að gera þetta svona með
vitund og vilja tollyfirvalda.
Aðalsteinn Finnsen, starfsmaður
Fylkið í Grimsby, sagði að fyrir-
tækið væri með svipaðan gáma-
fjölda og J. Marr og gæti því þurft
að greiða svipaða upphæð. Að öðru
leyti vildi hann ekki tjá sig um
málið.
Morgunblaöið/Bjami
Frá vinstri: Benedikt Blöndal formaður Rauða kross íslands, sem afhenti greiningartækið, Jón Ásgeirsson
framkvæmdastjóri Rauða kross íslands, Guðjón Magnússon varaformaður Rauða kross Islands, Sigurður
Guðmundsson læknir, Haraldur Bríem læknir og Jóhannes Pálmason framkvæmdastjóri Borgarspítalans, sem
veitir tækinu viðtöku.
RKÍ gefur Borgarspítalanum og Landspítalanum
tœki tU að greina ónœm istœringu
RAUÐI kross íslands hefur gefið
Borgarspítalanum tæki til að
greina ónæmistæringu og er
þetta nýja tæki eina tæki sinnar
tegundar hér á landi. Að sögn
Jóns Asgeirssonar framkvæmda-
stjóra Rauða kross íslands eykst
öryggi við greiningu ónæmistær-
ingar verulega með þessu skim-
prófstæki og prófið verður vél-
rænna en hingað til hefur þekkst.
Rauði kross Islands hefur þegar
ákveðið að gefa Landspítalnum
samskonar tæki á næstunni.
Framkvæmdastjóri VSÍ tekur undir hugmyndir um lffskjarasamning:
„Gera á vopnahlé um
sex mánaða tilraun“
— byggða á spá um efnahags-
þróunina allt árið 1986
AÐILAR vinnumarkaðarins og ríkisvaldið ættu að komast að samkomulagi
um „lífskjarasamning“ á næsta ári. Til þess þyrfti að gera spá um þróun
efnahagsmála fyrír árið 1986 en síðan ætti að gera „vopnahlé um sex mán-
aða tilraun, byggða á útreikningum fyrir heilt ár,“ eins og Magnús Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands, orðaði það í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, þegar hann setti fram hugmynd
sína í þessu efni. „Ef forsendur slíks samnings færu úr böndunum á þessu
sex mánaða tímabili — umfram fyrirfram ákveðin mörk — þá gætu aðilar
samningsins sagt honum upp,“ sagði hann.
„Mér sýnist að þær hugmyndir Þröstur benti á í sínum tillögum.
sem Þröstur ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar, setti
fram á fundi í félagi sínu á sunnu-
daginn, séu raunhæfar að hluta til
— þær séu einskonar sambland
af skattalækkunarleiðinni, sem
rædd var í fyrrahaust, og þeim
samningi, sem gerður var í sumar,
þar sem byggt var á spá um ákveð-
inn feril efnahagsþróunarinnar,"
sagði Magnús ennfremur.
„Það er grundvallaratriði í þessu
sambandi," sagði hann, „að menn
geri sér grein fyrir því að vísitölu-
kerfið hefur ekkert fært okkur
annað en svartnættið, eins og
Það er því vel þess virði að hug-
leiða leiðir til að taka inn í umræð-
una um ákvörðun kaups og kjara
þætti eins og gengi, fiskverð, bú-
vöruverð og verð á opinberri þjón-
ustu. Þannig má sjá fyrir feril í
efnahagsþróuninni til lengri tíma,
sem gæti lækkað verðbólgu og
tryggt kaupmáttinn. Jafnframt
þyrfti að skapa þau skilyrði fyrir
atvinnuvegina, að þeir geti tekið á
sig þær byrðar, sem þessi þróun
hefði í för með sér.“
Magnús Gunnarsson sagði að
um næstu áramót væri því rétt að
gera spá um þróun verðlags og
kaupmáttar á árinu 1986 — byggða
m.a. á áðurnefndum fimm „stærð-
um“: launum, gengi, fiskverði, bú-
vöruverði og verði opinberrar
þjónustu, en þessir þættir hefðu
öðrum fremur áhrif á verðlags-
þróunina í landinu.
„Með þessu móti geta menn gefið
sér ákveðinn kaupmátt yfir allt
árið,“ sagði hann. „Ef sá kaup-
máttur færi niður fyrir ákveðið
stig, þá myndi ríkissjóður mæta
því með skattalækkunum og til að
mæta þeim tekjumissi ríkissjóðs
yrði dregið úr einhverjum fram-
kvæmdum. Það er undirstöðuatriði
í þessu sambandi, að beint sam-
band verði á milli skattalækkana
og opinberra framkvæmda — að
kaupmátturinn verði færður frá
ríkinu til heimilanna standist ekki
sá ferill, sem gert yrði ráð fyrir.
Á þann hátt gæti tekist samstaða
um tilraun til að gera lífskjara-
samning," sagði Magnús Gunnars-
son.
Norsk vamarmálanefnd á íslandi:
Átti viöræður við íslenska
ráðamenn um varnarmál
Teknir með 20
kassa af vodka
á hafnarbakkanum
TVEIR menn voru handteknir á hafn-
arbakkanum í Sundahöfn á þriðju-
dagskvöldið þegar þeir voru að fíytja
frá borði 20 kassa af Smirnoff-vodka;
240 þríggja pela flöskur. Þeir höfðu
komið áfenginu fyrír í bifreiðum sín-
um og voru teknir við hliðið að Sunda-
höfn.
Mennirnir eru skipverjar á
Eyrarfossi og hafa játað að vera
eigendur að áfenginu. Þeir höfðu
ekið bifreiðum sínum inn í skipið
og komið áfenginu fyrir í þeim.
' Verðmæti áfengisins í verslun er
um 250 þúsund krónur.
ODDMUND Hammerstad, aðstoðar-
varnarmálaráðherra Noregs, dvaldi
hér á landi á þriðjudag og miðviku-
dag ásamt sendinefnd frá norska
varnarmálaráðuneytinu og átti við-
rsður við íslenska ráðamenn um
varnarmál.
Að sögn Sverris Hauks Gunn-
laugssonar, skrifstofustjóra varn-
armálaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins, var þessi heimsókn liður
í þeirri viðleitni utanríkisráðu-
neytisins að efna til tvíhliða við-
ræðna við nábúa okkar í Atlants-
hafsbandalaginu. Fyrr á þessu ári
var efnt til viðræðna við Breta og
Hollendinga um varnarmál og
ætlunin er að efna til funda með
fleiri þjóðum eftir því sem tök eru
á. Sverrir Haukur sagði að á þess-
um fundum hefði verið skipst á
skoðunum um stöðu mála á Norð-
ur-Atlantshafi og ýmsar upplýs-
ingar veittar um varnarmál beggja
ríkja. Jafnframt þessum fundum
hafa hinir erlendu gestir og full-
trúar utanrfkisráðuneytisins átt
viðræður við yfirmenn varnarliðs-
insálslandi.
Jónas Elíasson, prófessor.
Jónas Elíasson ráð-
inn aðstoðarmadur
iðnaðarráðherra
JÓNAS Elíasson prófessor hefur
verið ráðinn í starf aðstoðarmanns
iðnaðarráðherra, Alberts Guð-
mundssonar. H6f Jónas stðrf hinn
1. nóvember síðastliðinn, og hefur
hann jafnframt fengið leyfi frá
störfum við Háskóla íslands frá
og með sama tíma.
Hass finnst
í 3 íbúðum
FIMM MANNS — þrír karlmenn
og tvær konur — voru handtekin af
fíkniefnadeild lögrcglunnar aðfara-
nótt mánudagsins. Konunum hefur
verið sleppt úr haldi ásamt einum
karlmanni. Fíkniefnadeildin setti
fram kröfu um gæsluvarðhald yfir
tveimur mönnum og voru þeir úr-
skurðaðir í viku varðhald í sakadómi
í ávana- og fíkniefnamálum vegna
rannsóknar málsins.
Við leit í þremur ibúðum um
nóttina fundust um 400 grömm af
hassi og lagði lögreglan hald á
fíkniefnin. Mál þetta er ekki tengt
amfetamínsmyglinu, sem upp kom
í síðustu viku.