Morgunblaðið - 07.11.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985
mo
Sjatwvt
£rta
SnorrabrautW
Slmi 1*290
I verslunmn er \
mW*
Meknuöumchi^
n punThandkUBö-
um°9''ð0^^;
FinnKi pa’
útsaumuö vöQQU'
^tt, rúmlöt ofl
handklæ*1-
Versiunin netut
annast ’mntömmun
""Totteumisem
\crefst néhvæmni og
vandaörar vmnu_
Mergt"*'8* i
aóiu 1 venlunm™'
avo seffi puöw.
teppi og dúltar-
Vertlunin twJurW
Aherslu á öö PP”
^nd-hönm
un> «em boöt 09
^Töogve^
rseaöNj^
23. Frt uppha’’
hefur versluntn
reynt eö *«**
hoöetólum irtseu"1
aen, ekki hefur
tengist annars
staðar. Þe' m* .
rvafna WuhhusW«-
inn Atvinnuv^me
aem Quörun fcne
hannaöi «f*
tekningum Heiwon
Pétutæonerog
hefurnövenO
endurtrtgefæn-
par lurfu'
veriö t« sölu metg
konaran^tút-
MlJmur sem ww
hefur verið ttenje
ur anners steöer
með_
Cremedas
— hesta umhirda sem þú getur veitt húð þinni.
Hin einstœða samsetning Cremedas veitir húð
þinni þann raka, sem nauðsynlegur er í okkar
breytilega loftslagi kulda, hita og vinda.
Notaðu Cremedas Nordic andlitskrem eitt sér eða
undir „make up", og Cremedas „bodykrem" eða
„bodylotion“ / hvert sinn eftir bað.
JOPCO HF. VATNAGÖRÐUM 14 - SÍMAR/39130. 39140
Litprentaður
myndalisti
Blaðió sem þú vaknar við!
00
Hringiö ísíma91-14290
og biöjiöum lista.
yfir útsaum o.fl.
fylgir Vikunni núna.
Sjómannsævi
Lokabindi endurminninga
Karvels Ögmundssonar komið út
ÞRIÐJA og síðasU bindi æviminn-
inga Karvels Ögmundssonar, Sjó-
mann.sævi, er komin út. Útgefandi
er Bókaútgáfan Örn og Örlygur og
er þetta 3. bindi 240 biaðsíður að
stærð. Aftast í bindinu er nafnaskrá,
sem nær yfir öll bindin þrjú. Allmarg-
ar myndir eru í bókinni.
Á bókarkápu segir, að Karvel
ögmundsson fjalli í bindinu um
sjósókn sína frá Hellissandi á
Snæfellsnesi, ísafirði og síðar frá
Njarðvíkum. Hann rekur einnig
útgerðarsögu sína og segir frá
stofnun samtaka útvegsmanna og
baráttu þeirra fyrir hagsmunum
sínum. Þá segir hann sitthvað frá
félagsmálum í Njarðvík og Kefla-
vík.
Á bókarkápu segir: „Karvel
kann vel að segja frá og er laginn
að finna hinn rétta frásagnarmáta
hvort sem atburðir eru harmsögu-
legir eða spaugilegir. Afstaða
Karvels til manna og málefna er
ákaflega jákvæð og allir vaxa
fremur en smækka við umsögn
hans. Innan um meginfrásögnina
eru alls konar spaugileg innskot,
sem oft eru hreinustu perlur.
Mikill fengur er að tveimur síð-
ustu köflunum, leiftrandi frásögn-
um af ólafi Thors og svörum við
spurningum frá Þjóðminjasafni
íslands um yfirnáttúruleg fyrir-
bæri, drauma, dulheyrn, hugboð
og aðvaranir. En Karvel virðist
gæddur dulrænum hæfileikum
sem hann kann bæði að hagnýta
sjálfum sér til góðs og miðla öðrum
til fróðleiks og skemmtunar."
Akiireyri:
Reisa Hótel Goðafoss
Aknreyri, 5. nórember.
GUÐMUNDUR Sigurðsson arkitekt
og fleiri ctla að reisa fjögurra til sex
hæða bótel á geiranum milli Hafnar-
strætis og Drottningarbrautar og
bygginganefnd Akureyrar hefur
þegar úthlutað þessari lóð undir hót-
elbygginguna.
í upphafi var ætlunin að þetta
hótel stæði á lóðinni númer 18 við
Skipagötu, en þegar farið var að
vinna að teikningum komu ýmis
vandamál í ljós. Þess vegna var
horfið frá því ráði að sækja um
lóðina austan við Dynheima, en
Skáldsaga eftir
Hermann
ÚT ER komin hjá Forlaginu skáld-
saga eftir Hermann Másson og nefn-
ist hún Froskmaðurinn.
í frétt frá Forlaginu segin
„Hermann er sjálfur froskmaður,
fæddur í Sandgerði árið 1959.
Hann stundaði sjómennsku á
Suðurnesjum en fór að vinna á
Keflavíkurflugvelli og fékk þá
áhuga á að fást við froskköfun.
Þegar hinn frægi franski frosk-
maður Roland Barthes kom hingað
til að kanna flakið af skipinu
Pourquoi pas? sem fórst hér í
vísindaleiðangri var Hermann
fenginn til að kafa með honum.
Köfunin, nafnið á skipinu og til-
gangur þess höfðu rík áhrif á hann
og því hélt hann til Frakklands,
þar sem þeir Roland störfuðu lengi
saman við köfun á ýmsum svæðum
og sviðurn."
I frétt Forlagsins segir m.a. um
bókina: „Froskmaðurinn er saga
mannsins sem fullorðinn lifir líkt
og á seigdrepandi hausti, án allrar
gleði. Dag nokkurn hittir frosk-
maðurinn hafmeyju sem heimtar
að hann yfirgefi konu og börn og
taki saman við sig. Verður hann
ekki að hlýða þegar hún hótar að
leggja sjávarútveginn í rúst með
Másson
Hermann Másson, alias Guðbergur
Bergsson. Æskumynd, sem Forlagið
sendi með fréttatÚkynningu um út-
komu bókarinnar.
því að flækjá net fiskiskipanna í
skrúfuna? Er hafin neðansjávar-
bylting hér á landi?“
Froskmaðurinn er 158 bls. Prent-
smiðjan Oddi hf. prentaði. Ragn-
heiður Kristjánsdóttir hannaði
kápu.
Fyrsta bók
Guðlaugar
Richter
Mál og menning hefur gefið út fyrstu
bók Guðlaugar Richter og er það
barnabók, sem ber nafnið ÞETTA
ER NÚ EINUM OF... Myndir gerði
Anna Cynthia Leplar.
1 fréttatilkynningu útgefandans
segir:
„Sagan segir frá stórum systk-
inahóp á Grímsstaðaholtinu í
Reykjavík og gerist á einum vetri,
frá hausti fram á vor. Aðalsögu-
hetjan er elsti bróðirinn Stjáni,
röskur tíu ára strákur sem þykir
gaman í bófahasar með hinum
strákunum í hverfinu. En hann
þarf að hjálpa mömmu sinni líka
því heimilið er stórt og pabbi á
sjónum. Það kemur í hans hlut að
passa systur sínar sem eru hvorki
meira né minna en fjórar talsins,
og auk þess lítill bróðir í vöggunni!
En það má gera ýmislegt sér til
Þetta er nú einum of...
gamans samt, fara með þær niður
að Tjörn og í Tívolí — því sagan
gerist á þeim árum þegar Tívolí
var hjá flugvellinum. Svo eignast
hann skrítinn félaga sem öfundar
hann ferlega af öllum systrun-
um... “
ÞETTA ER NÚ EINUM OF...-
er 115 bls., prentuð í Prentsmiðj-
unni Odda hf.
hún er talin liggja mun betur við
hótelrekstri.
I fyrri áfanga byggingarinnar
eiga að verða fimmtíu tveggja
manna herbergi og einnig eldhús,
matsalur og húsnæði til ýmislegr-
ar annarrar þjónustu við gesti, en
siðar verður húsið hugsanlega
stækkað um önnur fimmtíu her-
bergi, ef reksturinn gengur vel.
Þeir Guðmundur Sigurðsson og
Snorri Pétursson viðskiptafræð-
ingur hafa stofnað undirbúnings-
félag að byggingu og rekstri hót-
elsins, sem á að heita Hótel Goða-
foss. Gert er ráð fyrir að Flugleiðir
hf. gangi til samstarfs við félagið
en ekki er ákveðið enn hve hlutur
fyrirtækisins verður mikill.
Atvinnumálanefnd Akureyrar
hefur stutt þetta mál og lánsloforð
úr Ferðamálasjóði liggur fyrir.
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hef-
ur reiknað út rekstrargrundvöll
hótelsins og lofa þeir útreikningar
góðu.
Gert er ráð fyrir að framkvæmd-
ir við bygginguna hefjist næsta vor
og taki allt að einu og hálfu ári.
Á Akureyri eru fyrir fjögur hót-
el sem eru opin allt árið og geta
hýst 177 gesti samtímis; Hótel
Akureyri 33, Hótel KEA 55, Hótel
Stefanía 37, Hótel Varðborg 52.
Stækkun stendur nú yfir á Hótel
KEA og eftir þá breytingu, sem
væntanlega verður lokið í apríl eða
maí í vor bætast þar við 39 gisti-
rúm. Heildarfjöldi gistirúma þess-
ara fjögurra hótela verður þá 216.
Eftir að Hótel Goðafoss kemst í
notkun ætti sú tala að verða 316.
Þá er ótalið Hótel Edda, sem
Ferðaskrifstofa ríkisins rekur í
heimavistarhúsi MA yfir sumar-
mánuðina, og tekur 160 gesti.
Til viðbótar eru svo rekin ekki
færri en sjö gistiheimili á vegum
einstaklinga á Akureyri og í næsta
nágrenni.
Sv.P.
Kjötútsalan
byrjar rólega
KINDAKJÖTSÚTSALAN fer frekar
rólega af stað, samkvæmt upplýsing-
um sem Morgunblaðið hefur úr
verslunum. í afurðastöðvunum hefur
salan þó tekið eitthvað við sér.
Steinþór Þorsteinsson deildar-
stjóri í afurðasölu SÍS sagði að það
hefði aukist að fólk kæmi til þeirra
og keypti kjöt og kaupmenn gerðu
stærri pantanir. Taldi hann að
gamla kjötið seldist meira en kjöt-
ið frá því í haust, enda verulega
ódýrara. Sagðist hann hafa orðið
var við aukningu í sölunni þessa
tvo daga. Vigfús Tómasson sölu-
stjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands
sagði að salan hjá þeim hefði eitt-
hvað aukist eftir að útsalan hófst,
en hún færi þó fremur rólega af
stað.