Morgunblaðið - 07.11.1985, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.11.1985, Blaðsíða 30
30 MORQUNffLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985 Fagnadarfundir AP/Sfmamynd Reagan Bandaríkjaforseti og Ines Guadalupe Duarte Duran, dóttir J.N. Duarte forseta, fallast í faðma við komu hennar til Hvíta hússins á fimmtudag. Mannræningjar létu hana lausa í síðustu viku eftir að hafa haldið henni í 44 daga. Persaflóastríðið: Eldflaug skotið á grískt olíuskip ÍRASKAR herþotur skutu í dag eldflaug á _ grískt risaolíuskip á Persaflóa. Áhöfnin yfirgaf skipið, eftir að það kviknaði í því. Skipstjór- inn varð þó eftir og neitaði að fara frá borði. Fjórir björgurnarbátar voru sendir á vettvang frá Bahrain og Dubai, er neyðarkall barst frá skipinu. Strandgæzlubátar frá íran komu einnig til hjálpar og var áhöfn skipsins flutt yfir í þá. Olíuskipið, sem siglir undir grískum fána, ber heitið Canaria og er um 300.000 tonn. Lenti íraska eldflaugin í vélarrúmi skipsins og kveikti í þvi. Var skipið um 100 km fyrir sunnan hafnarborgina Busher í íran og aðeins 15 km frá strönd landsins, er árásin var gerð. írakar hafa aldrei gert loftárás jafn sunnarlega á Persaflóa áður og bendir það til þess, að þeir hafi notað langdrægar herþotur af Mirage-gerð til árásarinnar. I dag lauk fjögurra daga ráð- stefnu Saudi-Arabíu og bandalags- ríkja hennar við Persaflóa. Var þar samþykkt yfirlýsing, þar sem skor- að var á Iran að virða frjálsar siglingar um Persaflóa. Þar var þó jafnframt látin í ljós nokkur gagnrýni í garð Iraks, sem Saudi- Arabía hefur þó stutt leynt og ljóst í stríðinu við írani. Er talið, að Irak hafi fengið 36 milljarða doll- ara í aðstoð frá Saudi-Arabíu og fleiri ríkjum á Arabíuskaga, síðan styrjöld íraka og írana hófst í september 1980. Bandaríkjaher: Samið við franskt fyrirtæki um gerð fjarskiptabúnaðar Wsshington, 6. nóvember. AP. TILBOÐUM franskra og banda- rískra fyrirtækja hefur verið tekið um gerð fjarskiptabúnaðar fyrir Bandaríkjaher. Fjarskiptabúnaður- inn mun kosta marga milljarða doll- samn- Carrington lávarður, aðalframkvæmdastjóri NATO: Deilur Grikkja og Tyrkja valda margs konar erfiðleikum Ankmrm, Tyrklmndi, 6. nórember. AP. 4. CARRINGTON lávarður, aðalfram- kvæmdastjórí NATO, sagði í gær, að deilur Tyrklands og Grikklands yllu bandalaginu margvíslegum erfiðleikum, m.a. í varnarmáhim. Á blaðamannafundi, sem fram- kvæmdastjórinn hélt í Ankara, kvaðst hann ekki mundu taka afstöðu í deilum þessum og taldi ekki tímabært né vænlegt til ár- angurs nú, að þriðji aðili blandaði sér í málið. Grikkir hafa neitað að taka þátt í heræfingum NATO á Eyjahafi síðastliðin þrjú ár, af því að gríska eyjan Lemnos hefur verið útilokuð frá þeim. Tyrkir halda fram, að samkvæmt alþjóðasamningum eigi Lemnos að vera vopnlaust svæði og geti því ekki verið hluti af æfingasvæðinu. „Jafnvel þótt Lemnos sé lítil eyja, tel ég deilurnar alvarlegar," sagði Carrington á fréttamanna- fundinum. Tyrkir og Grikkir hafa einnig átt í langvinnum deilum vegna yfirráðaréttar í lofti yfir Eyjahafi, nýtingar auðæfa hafsbotnsins og Kýpurmálsins, auk þess sem ríkin hafa lengi þráttað um hernaðar- lega stöðu grísku eyjanna við strönd Tyrklands. Carrington kom til Tyrklands á mánudag ( fjögurra daga opinbera heimsókn. Hann mun skoða her- stöðvar í austurhluta landsins og koma til þorpsins Sarp, sem er á landamærum Tyrklands og Sovét- rikjanna. Sovéskur drengur í hjartaaðgerð London, 5. nóvember. AP. NÍU mánaða gamall sovéskur dreng- ur, Yuri Sobol, kom í dag til London til hjartaaðgeróar. Drengurinn kom meó flugi til Heathrow-flugvallar ásamt móóur sinni, Tatyiönu, og var þegar í stað fluttur í Ormond Street- barnaspítalann til rannsóknar. Móðir hans sagði fréttamönn- um, með aðstoð túlks, að hún væri himinlifandi yfir að vera komin til Englands og vonaði að drengur- inn fengi lækningu. Yuri, sem er frá Moskvu, þjáist af hjartasjúkdómi, og læknar segja, að hann eigi enga lífsvon, nema hann gangist undir þessa aðgerð, en þess var ekki kostur í Sovétríkjunum. Margra vikna samningaviðræð- ur heilbrigðisyfirvalda í Moskvu og London þurfti til að gera það mögulegt, að drengurinn fengi inni á Ormond Street, og náðist það fram á grundvelli gagnkvæms samkomulags Bretlands og Sovét- ríkjanna á sviði læknisfræði. Bandaríkin: Ný laserrannsóknarstöð Nýju Mexíkó, Bandaríkjunum, 5. nóvember. AP. YFIRVÖLD hermála hafa greint frá því, að tekin hafl verið í notkun á Hvítu söndum í Nýju Mexíkó ný rannsókna- og tilraunastöð fyrir las- er-tækni. Tengist hún geimvarna- rannsóknum Bandaríkjanna í sam- bandi við „stjörnustríðsáæthinina" svonefndu. Lee Delorme, upplýsingafulltrúi framkvæmdanefndar geimvarna- áætlunarinnar, kvað fyrstu til- raunirnar á Hvítu söndum „lofa góðu“. Að sögn Delormes er hlutverk tilraunanna að ganga úr skugga um, hvort sá hluti geimvarnaáætl- unarinnar, sem að laser-tækninni snýr, sé framkvæmanlegur tækni- lega og fjárhagslega og hvort þessi tækni muni geta veitt þá vernd, sem að er stefnt. Bonner í hjarta- aðgerð til Boston Hamborg, 4. nóvember. AP. YELENA Bonner, eiginkona sovézka andófsmannsins Andrei Sakharovs sagði í dag, að hún myndi fara til Boston í Bandarikj- unum og gangast þar undir hjartauppskurð, eftir að hún hefði farið til Ítalíu til augnaðgerðar þar. Það var vestur-þýzka blaðið Bild, sem skyrði frá þessu í dag. Hafði Bild frétt sína eftir dóttur og tengdasyni Yelenu, þeim Tatiönu og Efrem Yan- kelewich, sem sögðu, að Yelena hefði hringt í þau frá Sovétríkj- unum. Andrei Sakharov talaði einn- ig við þau Tatiönu og Efrem. Sagðist hann hafa hætt hung- urverkfalli, eftir að hann hafði létzt um 20 kg. Kvaðst hann hafa hætt hungurverkfallinu, eftir að konu hans, Yelenu, hafði verið tilkynnt, að hún fengi vegabréfsáritun til þess að fara frá Sovétríkjunum. Carrington lávarður. ara. Aðalfyrirtækin sem að ingnum standa eru franska fyrirtæk- ið Thomson ásamt GTE-fyrirtækinu í Bandaríkjunum, en tilboð þessara fyrirtæka voru tekin framyflr tilboð Plesseyfyrirtækisins í Bretlandi, að sögn James R. Ambrose aðstoðarrít- ara hjá bandaríska hernum. Varnarmálaráðuneytið í Frakk- landi sagði að þessi ákvörðun stað- festi gæði franskrar rafeinda- og hergagnaframleiðslu en haft var eftir varnarmálasérfræðingi í London að það væru sár vonbrigði fyrir Breta að missa af samningn- um. Samningurinn, sem hljóðar upp á rúmlega 4,3 milljarða dollara greiðslur til Thomson og GTE, mun vera einhver stærsti samn- ingur sem Pentagon hefur gert við erlend fyrirtæki. Thomas Mat- tausch, talsmaður GTE, sagði að um 75 prósent framleiðslunnar myndu fara fram í Bandaríkjunum og væru stjórnendur fyrirtækisins mjög ánægðir með ákvörðun hers- ins. Talsmaður breska varnarmála- ráðuneytisins sagði að þar ríkti auðvitað óánægja útaf því að Plessey-fyrirtækið hefði ekki feng- ið samninginn. „Við höfum misst af þessum samningi, þó við gerðum hvað við gátum til að ná honum. Við vinnum stöðugt að framförum í breskum iðnaði, og við munum reyna allt til að komast inn á bandarískan markað næst þegar tækifæri býðst,“ sagði hann. Gull á N-írlandi ^ Belfast, 5. nóvember. AP. Á NORÐUR-írlandi hefur fundizt stærsti gullforði, sem finnst á einum stað, í allri Evrópu. Við fyrstu sýn virðist sem vinnsla gullsins muni verða ábatasöm. Að sögn talsmanns norður-írska námafélagsins Ulster Base Metals, fundust æðar auðugar að gulli við tilraunaboranir i Sperrin-fjöllum (Tyrone-sýslu. Lengi hefur verið vitað að gull væri að finna í Sperrin-fjöllum og fólki tekizt að skola gull á pönnu í ám og lækjum þar. Hins vegar er það ekki fyrr en nú nýverið að rannsakað er vísindalega hvort það svari kostnaði að vinna gull I fjöllunum. í fyrstu voru nýjustu rafeinda- tæki notuð til að finna líklega leit- arstaði með þeim árangri, að þegar boraðar voru 28 tilraunaholur fannst gull í þeim öllum. Að sögn talsmanns námafélags- ins þarf að finnast að meðaltali einn tíundi úr únsu, eða 2,83 grömm, af gulli í hverri smálest af grjóti til þess að vinnsla svari kostnaði. Tilraunaboranirnar benda til að fimm sinnum meira gull sé að finna í berginu, þ.e. um 15 grömm í hverju grjóttonni. Nýr ritstjóri Times London, 6. nóvember. AP. CHARLES Wilson hefur veríð út- nefndur ritstjórí hins virta dagblaðs Times í London. Wilson er flmmtug- ur Skoti og hóf starfsferíl sinn sem vikadrengur á rítstjórn vikuríts í London 16 ára gamaH. Wilson lekur við rítstjórn Times af Charles Dou- glas-Home, sem lést hinn 29. október sl. 48 ára að aldri. Wilson hefur verið aðstoðarritstjóri við Times síðastliðið ár. Hann verður 13. ritstjóri blaðsins sem bélt uppá 200 ára afmæli sitt fyrr á þessu ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.