Morgunblaðið - 07.11.1985, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985
Landsfundiir Alþýðubandalags hefst í dag:
Búist við mikl-
um átakafundi
BÚIST er við því að landsfundur Alþýðubandalagsins sem hefst síðdegis í dag
í Austurbæjarbíó verði átakafundur, i fleiri en einum skilningi, því þar verði
tekist á um menn, málefni og starfshætti. Segjast menn ekki vita hverju þeir
eigi von á, en mikil óvissa og spenna ríki í forjstuliði Alþýðubandalagsins
dag.
Talið er að staða Svavars Gests-
sonar formanns Alþýðubandalags-
ins gæti vart verið veikari en hún
er í dag, þrátt fyrir kjör hans sem
formanns útgáfustjórnar Þjóðvilj-
ans i fyrradag. Svavar túlkaði sjálf-
ur það kjör sitt á þingflokksfundi
Alþýðubandalagsins síðdegis i
fyrradag sem mikinn sigur og sagði
kjörið sýna ótvíræðan styrk for-
mannsins. Fjölmargir alþýðubanda-
lagsmenn segja þessa túlkun for-
mannsins hins vegar vera vísbend-
ingu um ótrúlega pólitíska blindu
hans.
Þeir Svavar, Hjörleifur Guttorms-
son og Steingrímur Sigfússon eru
sagðir vera með Sigriði Stefáns-
dóttur, bæjarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins á Akureyri í huga sem vara-
formannsefni, en lítill vilji er sagður
meðal þeirra sem hafa haft andóf í
frammi við flokksforystuna að und-
anförnu, til þess að styðja Sigríði.
Er í þeim hópi mest rætt um Krist-
ínu Á. Ólafsdóttur sem varafor-
mannsefni, en Kristín sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hún myndi
ekki gera upp hug sinn til þess hvort
hún gæfi kost á sér, fyrr en á lands-
fundinum sjálfum. Sagði hún að það
réðist af því sem gerðist á fundinum
hvort hún gæfi kost á sér.
Helgi Guðmundsson ritari Al-
þýðubandalagsins og eindreginn
stuðningsmaður Svavars gefur ekki
kost á sér til endurkjörs, og eru þeir
Guðmundur Þ. Jónsson og Grétar
Þorsteinsson, úr verkalýðsarminum
einna helst orðaðir við framboð í þá
stöðu. Ekki mun heldur ríkja eining
meðal landsfundarfulltrúa um ann-
an hvorn þessara manna.
Þá er búist við miklum umræðum
um skýrslu starfsháttarnefndar sem
lögð verður fram á fundinum, en þar
þykir koma fram mjög skörp ádeila
á flokksforystuna, jafnvel þótt mála-
miölunarsamkomulag hafi tekist í
nefndinni um mun vægara orðalag,
en upphaflega stóð til. Ástæður
málamiðlunarinnar eru sagðar þær
að ekki hafi mátt hafa ádeiluna of
beitta, því birta ætti skýrsluna opin-
berlega.
Sjá bls. 27 „Alþýðubandalagið verður
að gjörbreyta sínum starfs-
háttum“.
Tillögur Svavars svip-
aðar tillögum Þrastar
SVAVAR GESTSSON formaður Alþýðubandalagsins hefur lagt fram drög aí
stjórnmálaályktun fyrir landsfund Alþýðubandalagsins, þar sem hugmyndir
varðandi það hvernig verkalýðsforystan eigi að haga komandi kjarabaráttu eru
reifaðar, og eru þær hugmyndir samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mjög i
sama dúr og hugmyndir þær sem Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri Dags-
brúnar reifaði á félagsfundi Dagsbrúnar sl. sunnudag.
Er því talið að flokksforystan og forseti ASÍ geti jafnframt fellt sig
framámenn flokksins í verkalýðs-
málum hafi gert með sér samkomu-
lag um það hvernig flokkurinn vill
að verkalýðsbaráttunni verði hagað
á næstunni. Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður Dagsbrúnar og
Verkamannasambands íslands
sagði í samtali við Morgunblaðið að
hann væri í megindráttum hrifinn
af „lífskjarasamningi" í þeim dúr
sem Þröstur hefði boðað á fundinum
sl. sunnudag.
Talið er að Ásmundur Stefánsson,
Landsmálafélagið
Vörður:
Ráðstefna um
utanríkis-
og varnarmál
Landsmálafélagið Vörður efnir
til ráðstefnu um utanríkis- og varn-
armál laugardaginn 9. nóvember
nk.
Dagskrá ráðstefnunnar verður
sem hér segir: Setningarávarp:
Dr. Jónas Bjarnason formaður
Varðar. Stefnumótun í utanríkis-
málum: Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráðherra. „Friðarmálin":
Guðmundur Magnússon blaða-
maður. Hlutverk varnarmála-
skrifstofu: Sverrir Haukur Gunn-
laugsson skrifstofustjóri. Gildi
upplýsingastreymis fyrir al-
menna skoðanamyndun í öryggis-
og varnarmálum: Björg Einars-
dóttir rithöfundur. Orsakir ófrið-
ar: Arnór Hannibalsson lektor.
Þjóðfélagsgerð — varnarsam-
starf: Stefán Friðbjarnarson
blaðamaður. Virkar varnir Sig-
urður M. Magnússon kjarneðlis-
fræðingur. öryggismál: Gunnar
Gunnarsson starfsmaður örygg-
ismálanefndar.
Að loknum framsöguerindum
fara fram almennar umræður og
fyrirspurnir. Ráðstefnan verður
haldin i sjálfstæðishúsinu Val-
höll, Háaleitisbraut 1, og hefst
hún kl. 13.30. Ráðgert er að ráð-
stefnunni ljúki um kl. 17.30. Ráð-
stefnan er opin öllu áhugafólki
um utanríkis- og varnarmál.
(Fréttalilkjuuf)
við margt það sem Þröstur stingur
upp á, enda hefur hann sagt í við-
tölum að hugmyndir Þrastar að
hluta til séu nánast árétting á því
sem gert hefur verið í undangengn-
um samningum, þ.e.a.s. að taka á
fleiri þáttum en launaliðnum einum.
Þar á Ásmundur við húsnæöismál,
verðlag á opinberri þjónustu, gengi,
búvöruverð og fleira. Hins vegar
hefur Ásmundur lýst sig algjörlega
andvigan þeirri hugmynd Þrastar
að kauptryggingarákvæði sé óþarft,
og að slíkt kerfi hafi gengið sér til
húðar. Jafnframt mun hann vera því
algjörlega andvígur að afnema verð-
tryggingu í heild. Telur hann að
reynslan sýni að þótt stjórnvöld séu
reiðubúin til yfirlýsinga um aðhald
í verðlagsmálum, séu þau ekki jafn
reiðubúin til að axla ábyrgðina í
reynd. Þvf verði að vera skýr ákvæði
í samningum um það hvernig launa-
fólki verði bættur skaðinn ef stjórn-
völd bregðast trausti og tryggja ekki
aðhald í verðlagsmálum.
Utanríkisráðuneytið:
Aðalfundur LÍU
Fulltrúar á aðalfundi LÍÍJ
Sjávarútvegurinn:
Morgunblaðið/Bjarni
Eigið fé ekki rýrnað
að raunvirði frá 1980
— segir í skýrslu Seðlabanka íslands
HALLDÓR Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, sagði á aðalfundi LÍÚ, að
í lok síðasta árs hefði eigið fé í sjávarútvegi verið 17,2 milljarðar á móti
17,6 í árslok 1980 samkvæmt mati Seðlabankans miðað við fast verðlag
og samkvæmt tryggingamati. Værí á hinn bóginn notað svokallað þjóð-
arauðsmat værí eigið fé í útveginum 14,7 milljarðar i árslok 1984 á móti
17,3 milljörðum 1980.
Halldór sagði, að undanfarið
hefðu átt sér stað miklar umræður
um eigin fjárstöðu sjávarútvegs-
ins og tölur úr skýrslu Seðlabank-
ans hefðu í fyrra verið afhentar
aðiljum áður en þær hefðu verið
fullunnar. Við þær hefði verið
stuðzt sem heilagan sannleika,
jafnvel þó þær hefðu verið á
vinnslustigi. Það hefði verið mjög
óvarlegt af Seðlabankanum að
afhenda slík gögn og hefði það á
margan hátt haft skaðleg áhrif á
umræðuna, meðal annars hefði
verið fullyrt að andvirði 30 skut-
togara hefði tapazt. Nú hefði þessi
misskilningur verið leiðréttur.
Hann vitnaði í lokaorð skýrslu
Seðlabankans, en þar segir að
sjávarútvegurinn í heild hafi
misst um 15% eigin fjár síns á
mælikvarða þjóðarauðsmats, en
aðeins um 2% á kvarða trygginga-
mats og í því tilviki náð um 9%
endurbata árið 1984. Sé tekið tillit
til þess að lánskjaravísitala hafi
reynzt harður mælikvarði að til-
tölu við eignamat síðustu tvö árin,
virðist raunhæft að álykta að eigið
fé sjávarútvegsins hafi ekki rýrn-
að að raunvirði á umræddu fjög-
urra ára tímabili.
Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar:
Útgerð og frysting
rekin með 2 til 3 % halla
JÓN Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, sagði á aðalfundi LÍÚ, að
áætlað tap frystihúsa væri nú um 2 til 3% af tekjum og botnfískflotinn
rekinn með svipuðu tapi. Söltun virtist á hinn bóginn rekin með hagnaði.
Hagur botnfískveiða væri nú skárrí en um langt skeið, en hagur frystingar
væri með lakara móti og söltun væri betur sett en að undanfornu.
Jón sagði síðustu spár um þjóð-
arhag miðaðar við 3,5 til 4%
aukningu á framleiðslu sjávaraf-
urða. Þetta væri mun minni aukn-
ing en í fyrra, en þá hefði fram-
leiðslan aukizt um 11% milli ára.
Þá bæri að hafa það í huga, að
loðnuveiði hefði þá verið margfalt
meiri en árið áður. Mikilvægar
forsendur þessarar spár væru
þær, að þorskaflinn yrði 316.000
tonn og loðnuaflinn 845.000 tonn.
Nú hefði loðnukvótinn verið auk-
inn um 500.000 tonn, en ekki væri
hægt að áætla hve mikið af því
veiddist fyrir áramót. Hins vegar
mætti nefna að hver 100.000 tonn
af loðnu ykju heildarframleiðslu-
verðmæti sjávarafurða um nálægt
1,5%.
Fyrstu 9 mánuði þessa árs væri
talið, að fiskafli og heildarfram-
leiðsla sjávarafurða hefði aukizt
um 4 til 5% frá síðasta ári, en
aukningin skiptist afar misjafn-
lega á fisktegundir og vinnslu-
greinar. Framleiðsla botnfiskafla
virtist hafa dregizt saman um 2%,
en samdráttur í frystingu botn-
fiskafla væri um 8%. Sala á isfiski
hefði hins vegar aukizt verulega
og söltun aukizt um ríflega fjórð-
ung.
Jón Sigurðsson gat þess einnig,
að í áætlunum stofnunarinnar um
tekjur útgerðar væru verulegar
greiðslur úr Aflatryggingasjóði,
eða um 1,1 milljarður króna á
þessu ári. Þessar greiðslur væru
um 650 milljónum króna hærri,
en þær tekjur sjóðsins, sem ætlað
væri að standa straum af þessum
útgjöldum. Munurinn væri fjár-
magnaður með framlagi úr ríkis-
sjóði, einkum endurgreiðslu upp-
safnaðs söluskatts um 600 milljón-
ir króna auk þess, sem gengið yrði
á eignir sjóðsins um nokkra tugi
milljóna á árinu. Þó 600 milljónir
króna væru ef til vill ekki mjög
há fjárhæð á mælikvarða heildar-
verðmætis sjávarafurðafram-
leiöslunnar eða um 2,5%, væri
full ástæða til þess að staldra nú
við og leita leiða til að breyta
starfsskilyrðum og sjóðakerfi
sjávarútvegsins.
Settar verði ákveðnar reglur
um heimsóknir tiginna gesta
„Fögnum afskiptum flugráðs,“ segir skrifstofustjóri
varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
„ÞAU gögn sem við höfum f höndum gefa ekki tilefni til ad draga ■ efa að
íslenskir fíugumferðarstjórar hafí stjórnað aðgerðum á vellinum þegar umrstt
atvik átti sér stað,“ sagði Sverrír Haukur Gunnlaugsson, skrifstofustjóri á
varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, er hann var spurður hvað liði
rannsókn á töf sovéska utanríkisráðherrans á Keflavíkurflugvelli fyrir réttrí
viku og kröfu flugráðs um frekari skýringar á málavöxtum. Sverrír Haukur
sagði að svo virtist, sem um röð tilviljanakenndra atvika hefði verið að ræða
sem ollu þessu atviki, sem meðal annars hefðu stafað af því, að ekki giltu
neinar ákveðnar reglur um komu og brottfíir tiginna gesta. Utanrfkisráðuneytið
hefði nú ákveðið að setja slíkar reglur á næstu dögum, til að fyrírbyggja að
svipað atvik endurtaki sig.
Sverrir Haukur sagði, að strax
daginn eftir atvikið, þegar skýrsla
flugmálastjórnar lá fyrir, hafi
hann, ásamt Anderson, yfirmanni
varnarliðsins, Pétri Guðmundssyni
flugvallarstjóra og Guðmundi óla
ólafssyni yfirflugumferðarstjóra,
hlustað á upptökur af samskiptum
flugumferðarstjóra og flugmanna
sovésku vélarinnar og bandarísku
F-15-herþotanna. í framhaldi af því
óskaði utanríkisráðuneytið eftir
skýrslum frá flugmönnum herþot-
anna og eftirlitsaðilum varnarliðs-
ins. Jafnframt var óskað eftir
skýrslu yfirflugumferðarstjóra um
atburðina í flugturninum. Sverrir
Haukur sagði að þessar skýrslur
væru nú að berast og myndu trúnað-
armenn flugráðs fá þær til umfjöll-
unar.
nVið fögnum afskiptum flugráðs
af þessu máli. Við teljum á þessu
stigi, miðað við þau gögn sem þegar
liggja fyrir, að ekkert hafi komið
fram, sem bendi til þess að verið
væri á einn eða annan máta að ögra
sovésku vélinni ,“ sagði Sverrir
Haukur. „Svo virðist sem hér hafi
komið til röð tilviljanakenndra
þátta sem ollu þessu leiðindaatviki.
Má þar nefna seinkun sovésku vél-
arinnar út á brautarenda, auk þess
sem bandarísku þoturnar voru við
æfingar við óvenju góð veðurskil-
yrði. Það er venja þessara flugvéla,
þegar þær koma inn til lendingar
að reyna nokkur aðflug áður og hluti
af æfingarverkefninu er að fljúga
lágflug yfir brautunum. Það sem
hefur kannski komið mönnum
spánskt fyrir sjónir, er hversu
margar vélar komu inn á sama tima,
en það stafar einfaldlega af því
hversu góð veðurskilyrðin voru til
æfingaflugs," sagði Sverrir Haukur.
Sverrir Haukur sagði að það væri
ætlun utanríkisráðuneytisins að
setja ákveðnar reglur um komu og
brottför tiginna gesta hingað til
lands, svo að atburðir sem þessir
endurtaki sig ekki. Reglurnar munu
taka gildi á næstu dögum og fela
meðal annars í sér, að þegar flugvél-
ar tiginna gesta eru tilbúnar til að
yfirgefa flughlað njóti þær for-
gangs. Sverrir Haukur sagði, að í
ljósi þessa atviks, sem væri eins-
dæmi hér á landi, væru reglur sem
þessar nauðsynlegar, enda gilda
svipaðar reglur víðast hvar í heim-
inum.