Morgunblaðið - 07.11.1985, Síða 7

Morgunblaðið - 07.11.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NðVEMBER 1985 7 Sumargleöinnar Aukasýning sunnudagskvöld Shultz um Rainbow Navigation-málið: Leitað nýrra leiða ef málið tapast fyrir dómstólum Kveðst samþykkur stefnu íslendinga, að samkeppni eigi að ríkja í sjóflutningunum GEORGE Shultz, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, greindi Steingrími Hermannssyni, forsætisráðherra, og Geir Hallgrímssyni, utanríkisráðherra, frá því á fundi þeirra í Ráðherrabústaðnum í Reykjavík í gær, að Banda- ríkjastjórn mundi leita annarra leiða til að leysa deiluna um sjóflutninga fyrir varnarliðið, ef hún tapaði Rainbow Navigation-málinu fyrir dómstólum. Ekki kom fram hvaða leiðir það eru. Shultz sagði blaðamönnum, að bandaríska dómsmálaráðuneytið hefði áfrýjað úrskurði dómara um að útboð á sjóflutningum væri ólögmætt. Jafnframt hefði ráðu- neytið óskað eftir því að úrskurð- urinn tæki ekki gildi fyrr en áfrýj- unarréttur hefði kveðið upp dóm sinn. Kvaðst hann vonast eftir slíkum dómi fyrir lok þessa mán- aðar. Jafnframt lýsti hann sig sammála þeirri stefnu íslenskra stjórnvalda að samkeppni ætti að rikja um flutninga af þessu tagi. Ráðherrarnir og ráðgjafar þeirra ræddust við i um eina klukkustund og vörðu um helming ^ss tíma í mál, er varða samskipti lands og Bandaríkjanna. Shultz gerði síðan grein fyrir viðræðum sinum við sovéska ráðamenn i Moskvu og geimvarnaráætlun Bandaríkjastjórnar var rædd ýtar- lega að frumkvæði Steingríms Hermannssonar. Shultz sagði blaðamönnum, að hann hefði feng- ið í hendur minnismiða frá Stein- grími um hvalveiðimál, sem hann ætlaði að kynna sér er heim kæmi. Að sögn forsætisráðherra hafa borist um það fréttir að Banda- ríkjamenn séu að þrýsta á Japani til að fá þá til að hætta að kaupa hvalkjöt hvaðan sem er. „Þetta veldur okkur að sjálfsögðu áhyggj- um,“ sagði Steingrímur, en Japan er mikilvægur markaður fyrir ís- lenskar hvalaafurðir. Shultz virtist hóflega bjartsýnn um árangur Genfarfundarins. Hann var spurður að því hvað hæft væri í fregnum um að Gor- bachev hefði ekki reynst vera nægilega vel upplýstur um þau mál sem til umræðu voru. Hann sagði, að líklega teldi Gorbachev sig nógu vel upplýstan, en Banda- ríkjamönnum hefði fundist að margir sovéskir viðræðufélagar þeirra sýndu skort á skilningi á aðstæðum í Bandaríkjunum og þeim umræðum sem þar færu fram. Steingrímur Hermannsson sagði, að þetta atriði hefði komið upp og Shultz sagt að ýmsir sov- éskir ráðamenn hefðu ekki haft þær upplýsingar sem nauðsynleg- ar væru. Steingrímur Hermannsson sagði, að það hefði komið skýrt fram í máli Shultz að Bandaríkja- menn gerðu sér grein fyrir efa- semdum ýmissa bandamanna sinna um geimvarnir. Hann hefði hins vegar lagt á það áherslu, að geimvarnir væru eingöngu á rann- sóknarstigi og engar ákvarðanir hefðu verið teknar um hvort ráðist yrði í smíði slíks varnarbúnaðar. Sjálfur kvaðst Steingrímur hafa látið í ljósi vissar efasemdir um að rétt væri að eyða miklum fjár- munum í geimvarnarkerfi og rétt væri að stefna að afvopnun. Um fimmtán manna hópur her- stöðvaandstæðinga safnaðist sam- Að loknum viðræðum í Ráðherrabústaðnum f Reykjavfk: F.v. Robert McFar- lane, öryggismálaráðgjafi Bandarfkjaforseta, Geir Hallgrímsson, utanríkis- ráðherra, George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Steingrfmur Hermannsson, forsætisráðherra. an fyrir framan Ráðherrabústað- inn á meðan á viðræðunum þar stóð. Hafði fólkið uppi hróp um úrsögn úr Atlantshafsbandalaginu og brottför varnarliðsins og dreifði flugriti, þar sem Bandaríkjastjóm var gagnrýnd. Mótmælin fóru frið- samlega fram. „Genfarfundurinn ekki markmið í sjálfu sér“ segir Jack Matlock „VIÐ LlTl'M ekki á fundinn í Genf sem markmið í sjálfu sér,“ sagði Jack Matlock, aðstoðarörygg- ismálaráðgjafi Reagans Banda- ríkjaforseta, í samtali við blaða- mann Morgunbladsins í gær, en hann var í föruneyti Shultz, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sem hafði hér viðdvöl á leið frá Moskvu til Washington. Matlock sagði, að enda þótt ekki tækist umfangsmikið sam- komulag á fundi Reagans og Gorbachevs, þyrftu menn ekki að líta svo á að fundur þeirra hefði misheppnast. Bandaríkja- menn litu á fundinn sem fyrsta skrefið í viðleitni til að bæta sambúðina við Sovétríkin og draga úr spennu þeirra á milli og skapa aðstæður til að leysa ýmis ágreiningsmál. „Það sem gerist að leiðtogafundinum lokn- um er jafnvel enn mikilvægara en það sem gerist á honum sjálf- um,“ sagði Matlock, og áréttaði að það væri ekki hugmyndin að skrifa undir eitthvert tiltekið samkomulag á Genfarfundinum. ,Við verðum að vera raunsæ," sagði Matlock og sagði að menn skyldu ekki búast við því að samband Bandaríkjanna og Sov- étríkjanna breytist í grundvall- aratriðum eftir fund Reagans og Gorbachevs. Blaðamaður spurði Matlock um þau ummæli sem Reagan Bandarikjaforseti lét falla í við- tali við sovéska ritstjóra sl. fimmtudag, aö eldflaugavarnar- kerfi yrði ekki komið fyrir í geimnum fyrr en langdrægar kjarnorkuflaugar stórveldanna hefðu verið eyðilagðar. Matlock sagði, að hér væri ekki um stefnubreytingu að ræða. Hann kvaðst sjálfur hafa setið þennan fund og ekki væri sama að sjá þessi ummæli forsetans á prenti og heyra þau. „Það sem hann var að reyna að segja," ságði Jack Matlock, aðstoðaröryggis- málaráðgjafí Reagans Bandarlkja- forseta, á fíindi með blaðamönnum í gær. Morgunblaðiö/RAX Matlock, „var, að við hefðum engar áætlanir gert um uppsetn- ingu geimvarnarkerfis." Hann kvað ekki unnt að gera slíkar áætlanir meðan geimvarnarhug- myndin væri enn á frumstigi rannsókna. Forsetinn hefði vilj- að láta það koma fram, að yrði tekin ákvörðun um smíði slíks kerfis yrði haft samráð við alla þá, sem málið varðaði. Matlock kvað sögur um skoð- anaraun meðal ráðgjafa Reagans um utanríkis- og öryggismál orðum auknar. Ekki væri rétt að tala um sérstakar fylkingar manna í því sambandi, heldur væri mat hinna ýmsu ráðgjafa á ýmsum tæknilegum efnum oft mismunandi. „Það tel ég styrk- leikamerki, frekar en hitt,“ sagði hann. „Það er gott að forsetinn fær að heyra ólík sjónarmið og röksemdafærslur áður en hann tékur ákvarðanir." 15 ára afmælishátíö Sumargleöinnar heldur áfram um næstu helgi. engin sýning föstudag, geggjaö stuö á laugardag og á AUKASÝNINGU SUNNUDAGSKVÖLD 17 landsþekktir skemmtikraftar fara á kostum og fagna vetri af ein- skærriSumargleði. Sumargleöin hefur aldrei veriö fjörugri, frískari, fjölbreyttari né betri og er þa heilmikið sagt. Karnival — söngur — dans — grín — gleði. Pantiö miöa í tíma í síma 77500 þar sem uppselt hefur verið undanfarnar helgar. \ „Hláturinn it lengir lífi6“ sagöi gamla konan og hló rosalega á Sumargleðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.