Morgunblaðið - 07.11.1985, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 07.11.1985, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985 Unglinga- bók eftir Maríu Gripe ÚT ER komin hjá Máli og menningu unglingabókin Sesselja Agnes eftir sænska rithöfundinn Maríu Gripe. Vilborg Dagbjartsdóttir þýddi bókina. { fréttatilkynningu útgefandans segir: „Sagan segir frá Nóru sem flytur með fósturforeldrum sínum í gam- alt hús og verður fyrir einkenniiegri lífsreynslu þar. Hún heyrir fótatak í íbúðinni þótt enginn sé heima, hún fær undarlegar upphringingar og gömul klukka með ónýtu úrverki fer að ganga ... afturábak! Svo fær hún skilaboð um að sækja pakka á ákveðinn stað í Stokkhólmi og fylgir boðunum að hún megi engum sýna það sem í pakkanum er. Gátan verður meira og meira spennandi þangað til Nóra leysir hana með dyggri aðstoð Dags, félaga síns.“ Sesselja Agnes er 242 bls., unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Haraid Gripe gerði kápumynd. Bókin er gefin út með styrk frá norræna þýðingarsjóðnum. tlr salnum á neðri hæðinni, hljómsveit leikur fyrir matargesti um helgar. Basar að Hall- veigarstöðum Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur sinn árlega bas- ar næstkomandi laugardag að Hallveigarstöðum kl. 14. í frétta- tilkynningu frá félaginu segir að á boðstólum verði meðal annars handunnir munir, fatnaður, kökur, lukkupokar og happdrætti. Tekið verður á móti munum á morgun, föstudag, eftir kl. 19 og á laugar- dag frá kl. 9 að Hallveigarstöðum. Kosning í safnráð Listasafns íslands Kosning í Safnráð Listasafns íslands fór nýlega fram og hlutur þeir Daði Guðbjörnsson og Hring- ur Jóhannesson myndlistarmenn kosningu sem aðalmenn ásamt Helga Gíslasyni myndhöggvara. Varamenn í ráðinu eru Hafsteinn Austmann, Edda Jónsdóttir og Steinunn Þórarinsdóttir. Kjör- stjórn skipuðu Karla Kristjáns- dóttir, Knútur Hallsson og Sigurð- ur Sigurðsson. Viðtal fór á flakk MISTÖK urðu í niðurröðun efnis í blaðið í gær. Á blaðsiðu 17 birtist frétt um Menntastofnun íslands og Bandaríkjanna og var þar skýrt frá því að 6 milljónum króna yrði varið í styrki í vetur. Á blaðsíðu 26 birtist svo viðtal við Loga Gunnarsson, sem lýkur prófi í heimspeki frá HÍ í vor, en hann hefur hlotið 10 þúsund dala styrk frá stofnuninni. Viðtalið átti að fylgja fréttinni og eru hlutaðeig- endur beðnir velvirðingar á þess- um mistökum. Lollo Asplund Vísnakvöld í Norræna húsinu VÍSNAKVÖLD verður haldið í Norræna húsinu í kvöld, fímmtu- dagskvöld, kl. 20.30 og er það Norræna húsið ásamt íslensk- sænska félaginu sem stendur að vísnakvöldinu í tilefni 100 ára fæðingarafmælis sænska skáldsins Birger Sjöberg. A dagskrá vísnakvöldsins verða ljóð og lög eftir Birger Sjöberg og eru flytjendur Gunn- ar Guttormsson, Katrín Sigurð- ardóttir, Sigrún Jóhannesdóttir og Viðar Gunnarsson ásamt sænska vísnasöngvaranum Lollo Asplund sem kominn er til lands- ins gagngert til að taka þátt í þessu vísnakvöldi tileinkuðu Birger Sjöberg. Nýr veitingastaður í miðbæ Hafnarfjarðar VEITINGAHÚSIÐ A. Hansen var síðastliðinn föstudag. Staðurinn er var reist árið 1880. Verzlun var lei ands Hansen frá 1913 til um 1950. Frá þvi i júní siðastliðið sumar hefur verið unnið að breytingum á húsinu undir stjórn Páls V. Bjarnasonar arkitekts. Húsið er eins að utan og í upphafi og innanstokks var reynt að halda sem mestu af upprunalegum svip þess. Aðaleigendur að veitinga- húsinu eru Sigurður ó. Sigurðs- son og hjónin Birgir M. Jóhanns- son og Jarðþrúður Jónsdóttir, en hún er jafnframt yfirþjónn. Yfir- matreiðslumaður er Rúnar Árnason. Að sögn Birgis er boðið upp á vandaðan matseðil um helgar og þá leikur litil hljómsveit tónlsit fyrir matargesti. Á virkum dög- ipnað á Vesturgötu 4 í Hafnarfírði rúmlega aldar gömlu húsi, en það 'st af í húsinu og á vegum Ferdin- um er einnig boðið upp á smá- rétti og ætlunin að fá ýmsa krafta til að koma fram. I kvöld syngur Bergþóra Árnadóttir fyr- ir gesti. í hádegi er boðið upp á smárétti og salatbar. Veitingastaðurinn er á tveim- ur hæðum tekur um 100 manns í mat. Efri hæðin er einkum ætluð fyrir minni veizlur og samkvæmi og þar er einnig fund- arsalur. Veitingastaðurinn A. Hansen fékk sama dag og opnað var leyfi til vínveitinga með mat. Næstu byggingar við veitinga- staðinn eru Sfvertsenshús og sjó- minjasafn, einnig í gömlum, endurbyggðum húsum. Aðaleigendur veitingahússins A. Hansen, frá vinstri Sigurður Ó. Sigurðs- son, Birgir M. Jóhannsson og Jarþrúður Jónsdóttir, sem jafnframt er yfirþjónn. Bingó og kabarett í Broadway — til styrktar vistheimilinu Sólheimum í Grfmsnesi Meðfýlgjandi mynd var tekin í Nýja biói á Sighifirði nú fyrir skömmu en Leikfélag Sighifjarðar æfir þar leikrit Sólveigar Traustadóttur, „Sólsetur" þessa dagana, en leikritið verður frumsýnt á laugardag. Siglufjörður: Frumsýning á „Sólsetri“ LEIKFÉLAG Siglufjarðar frumsýnir á laugardag leikritið „Sólsetur" eftir Sólveigu Traustadóttur sem jafn- framt er leikstjóri. Er þetta þriðja leikrit Sólveigar, en áður hafa verið sýnd eftir hana „Enginn veit sína ævina" og „Hamingjan býr ekki hér... hún er á hæðinni fýrir ofan“, en þau setti höfundur upp með leik- hópnm frá Alþýðuskólanum á Eiðum. Alls eru hlutverk i leikritinu 10 talsins og gerist leikurinn á elli- heimili. I fréttatilkynningu frá Leikfélagi Siglufjarðar segir að það hyggist bregða undir sig betri fætinum og ferðast með sýninguna um Norðurland og jafnvel einnig um Suðurland, en frumsýning verður sem fyrr segir á næstkom- andi laugardag í Nýja biói á Siglu- firði. Tónleikar í Kristskirkju TÓNLISTARFÉLAG Kristkirkju og Alliance Francaise efna til tónleika í Kristskirkju í kvöld, fimmtudags- kvöld, með franska kontratenór- söngvaranum Jean Belliard, sem einnig leikur á lútu. í fréttatilkynningu frá aðstand- endum tónleikanna segir meðal annars. „Belliard er annars einn af stofnendum hins fræga tónlist- arhóps Ensemble Guillaume de Machaut de Paris, og stjórnar honum jafnframt, og hefur ferðast með honum og haldið tónleika i fimmtíu og tveimur löndum. Efnis- skrá hans nær að öllu jöfnu yfir tónlist frá þvi snemma á miðöldum (gregorísk kirkjutónlist), tónlist trúbadora og annara söngskálda um og eftir árið 1000, endurreisn- ar- og barrokktónlist og tónlist frá okkar dögum.“ Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og verða miðar seldir við innganginn. Leiðrétting HLUTI setningar féll niður í grein Hauks Magnússonar í blaðinu í gær, í tilvitnum í fyrsta dálki. Þar átti að standa: „Þeim mun fleiri kindum sem beitt er á landi, þeim mun minni beitargróður kemur í hlut hverrar skepnu." Þá átti að standa „gífurlegir flot- ar hrossa", en ekki flokkar hrossa, þar sem rætt er um fækkun hrossa á Grímstunguheiði. Blaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. Lionsklúbburinn Ægir heldur bingó og kabarettskemmtun í Broadway í kvöld og hefst skemmt- unin kl. 20. Er þetta liður í fjáröfl- unarstarfsemi klúbbsins en ágóð- anum af skemmtuninni verður varið til framkvæmda að Sólheim- um í Grímsnesi, en eins og kunnugt er hefur nýtt hús verið í byggingu fyrir íþróttaiðkun og leikstarfsemi vistmanna. { fréttatilkynningu sem klúbb- urinn hefur sent frá sér segir meðal annars að landsþekktir skemmtikraftar komi fram, stjórnandi skemmtikvöldsins er Svavar Gests og mun hann ásamt ómari Ragnarssyni ræða við Reyni Pétur Ingvarsson sem sið- astliðið sumar gekk umhverfis landið til að afla fjár til byggingar- innar. Auk þess mun ómar skemmta við undirleik Hauks Heiðars Ingólfssonar, sem enn- fremur leikur undir söng Róberts Arnfinnssonar leikara. Ágúst ís- fjörð sýnir töfrabrögð og Rokk- bræður koma fram. Þá sýna Mód- elsamtökin tískufatnað og milli skemmtiatriða verður spilað bingó, en aðalvinningurinn er þriggja vikna ferð til Mallorka fyrir tvo og alls verða spilaðar tíu umferðir. Verð aðgöngumiða er 250 krónur og gildir miðinn einnig sem happ- drættismiði og er vinningurinn vikudvöl fyrir einn í Skíðaskólan- um í Kerlingafjöllum. Tónleikar í Fríkirkjunni TÓNLEIKAR í Fríkirkjunni ( Reykjavík til styrktar orgelsjóði kirkjunnar verða haldnir næstkom- andi laugardag, og befjast þeir kl. 17. Á tónleikunum koma fram þau Ingibjörg Marteinsdóttir, mezzo- sópran og Daði Kolbeinsson, óbó- leikari. Orgelleikar er Pavel Smid. Á efnisskránni verða verk eftir H&ndel, Bach, Teleman, Pál ísólfs- son, Hanff, Dvorak og Bizet. Að- göngumiðar eru seldir hjá Bóka- verslun Sigfúsar Eymundssonar í Austurstræti 18, Blómabarnum á Hlemmtorgi og við innganginn í Fríkirkjunni. m} Sigrún Guðmundsdóttir, en fatnaður hennar verður sýndur á Hótel Borg f kvöld. Fatasýning á SÝNING á fatnaði sem Sigrún Guðmundsdóttir hefur hannað úr efnum sem fyrirtækið Epal hf. hefur á boðstólum, verður haldin á Hótel Borg I kvöld, fimmtudags- kvöld. Jafnframt sýndur leður- og rúskinnsfatnaður frá Skryddu sem Hótel Borg Eva Vilhelmsdóttir hefur hannað. í fréttatilkynningu frá fyrirtæk- inu Epal hf. segir að fatnaður sá sem sýndur verður að Hótel Borg verði til sýnis og sölu í verslun fyrirtækisins að Síðumúla 20 og I Gallerí Langbrók.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.